Litli Bergþór - 01.06.1993, Síða 28
Búvöruframleiðsla 1992 frh....
Hlutfall af heildarframleiðslu landsins:
Garöyrkjan. 25,3%
Nautgripir. 2,5%
Sauðfé. 0,9%
Hross. 2,0%
Svín. 2,4%
Hlutfallslegt
verðmæti kjötframleiðslu
Svín
Verðmæti
Kindur
Ylrækt
Það er margt sem vekur athygli ef maður skoðar
tölur milli þessara ára. Verðlagsþróun hefur verið
framleiðendum óhagstæð að ýmsu leiti, einkum í
nautakjöti og sumum gróðurhúsaafurðum.
Samdrátturinn í sauðfjárræktinni er í reynd hrun, og
mætti framreikna sig á nokkrum árum í það að við
framleiddum ekki einu sinni kindakjöt í okkur, ef
sama þróun heldur áfram.
Ég læt þessu lokið að sinni, og vil ítreka það að
hérna er ekki um hávísindalega úttekt að ræða, til
þess liggja ekki nægjanlegar upplýsingar fyrir, um
ýmsar afurðir.
Naut
Svín
Kindur
Frá árshátíðanefnd Loga.
Hestamannafélögin í Árnessýslu halda
sameiginlega árshátið fyrir ungmenni 11-16 ára
árlega.
Ungmenni í Hestamannafélaginu Löga í Bisk.
sáu um árshátíðina að þessu sinni, sem haldin
var í Aratungu 30. apríl s.l.
Skemmtunin var ágætlega sótt og tókst í alla
staði mjög vel.
Á árshátíðinni var happdrætti með veglegum
vinningum, sem eftirtaldir aðila gáfu.
Reiðsport Faxafeni 2,
Kaupfélag Árnesinga Selfoss,i
Baldvin og Þorvaldur Selfossi,
Bjarnabúð Biskupstungum,
Ólafur og Drífa Torfastöðum.
Einnig styrkti árshátíðina Ólafur Ásbjörnsson
Víöigerði.
Hér með er þessum aðilum færðar bestu
þakkir fyrir.
Litli - Bergþór 28