Foreldrablaðið - 16.12.1939, Síða 23
FORELDRABLAÐIÐ
23
muni eftir því að „sjaldan veldur einn, er tveir
deila“, og mörgum börnum hættir til að skýra
nokkuð einhliða þau mál, er snerta þau sjálf
persónulega. Það er börnunum ósjálfrátt. Þau
eru örlynd og tilfinningar þeirra lítt tamdar,
og því vill frásögn þeirra oft verða hlutdræg,
án þess það sé beinn ásetningur þeirra, og því
er framburði þeirra varlega treystandi að öllu
leyti. Nauðsynlegt er því að kynna sér slík mál
frá báðum hliðum.
Glataðir munir.
Nauðsynlegt er, að munir skólabarnanna séu
merktir greinilega, svo þeir kömizt til skila, ef
þeir tapast. Bækur þeirra með nafni og heim-
ilisfangi og skóhlífar með stöfum þeirra. Þá
vill skólinn mælast til þess við aðstandendur, að
þeir áminni börnin um að taka heim muni sína,
handklæði og gleraugu, þegar þau hætta í ljós-
unum, og eins að láta vitja þessara muna, ef
barn veikist eða verður að hætta í ljósunum.
MiSSIiæjiarskólinii.
Settir kennarar.
Tveir kennarar voru settir við skólann síðast
liðið haust, þau Jón Guðmannsson og Soffía
Benjamínsdóttir. Höfðu þau verið forfallakenn-
arar og stundakennarar við skólann í nokkur ár.
Nemendur og kennarar.
Nemendur skólans eru í ár 1775. Fastráðnir
kennarar skólans eru nú 42, yfirkennari og skóla-
stjóri eru taldir með. Stundakennarar og for-
fallakennarar almennra námsgreina eru 5, en
hinir eru 4, sem sérgreinir kenna.
Klæðleysi.
Borið hefir á því í vetur, að skólabörn eru of
klæðlítil, og gengur treglega að bæta úr því.
Atvinnuleysi og fátækt eru oft aðalorsakirnar.
Þurfa allir að vera samtaka um að útrýma
skortinum.
Þrifnaður.
Heimilisþrifnaði er víða ábótavant. Hjúkrun-
arkona skólans er fús að hjálpa og ráðleggja.
Er nauðsynlegt fyrir aðstandendur barna að
snúa sér til hennar um vandamál gagnvart
hreinlæti og fara eftir ráðleggingum hennar.
Allir foreldrar,
Sem vilja, að börnin
þeirra hafi hvítar og
fallegar tennur, ættu
að kaupa handa þeim
harðfiskinn góða með
merkjum harðfisks-
sölunnar. Hann fæst
í næstu matvöru-
verzlun.
Harðfiskssalan,
Þvergötu - Sími 3448
Þekkt innlend framleiðsla:
Botnvörpur
Vörpugarn
Bíndígarn
EF. HAMPIÐJAN
Símar 4536 - 4390.
Símnefni: Hampiðja.