Foreldrablaðið - 16.12.1939, Blaðsíða 32
32
FORELDRABLAÐIÐ
þurfti að kaupa slátur, og ég fór með
henni. — Ég gat ekki komið í skólann
í gær, af því að ég var með hálsbólgu.
Þessár afsakanir og auðvitað ýmsar fleiri,
hafa oft verið sagðar í mín eyru. En af
þessu eru hálsbólgutilfellin venjulega
verst, ef ekki helber uppspuni. Það hefir,
sem sé, oft komið á daginn, að hálsbólg-
an var ekki svæsnari en það, að sama
dag og sjúklingurinn gat ekki mætt í
skóla að morgni, hefir maður rekizt á
hann niður í bæ, jafnvel í allskonar
misjöfnum félagsskap, varpandi frá sér
klúryrðum og allskonar ósiðsemi á veg
fullorðinna manna eða þá við blaðasölu.
Það virðist, að ekki hefði það átt að
vera neitt óhollara fyrir sjúklinginn að
mæta í skólanum þann daginn.
Það ætti að liggja í augum uppi, að
fyrir nám hvers barns eru tíðar fjarver-
ur afar skaðlegar; rjúfa heild þess og
gera það grautarlegt og einskisvirði. Og
þótt einhverjir séu nú þeirrar trúar, að
börnin læri ekkert í barnaskólunum, þá
er þeirri staðreynd ekki mótmælanlegt,
að óleyfilegar fjarverur frá fyrirskipuð-
um tímum hafa afar siðspillandi áhrif
á barnið, eins og allar illa ræktar skyld-
ur. Það má taka það fram, að óleyfilegar
fjarverur koma mest niður á tímum,
sem slitnir eru frá aðalnáminu, þó að
vitanlega eigi þær sér þar stað einnig.
Verst verða úti t. d. leikfimitímar, sund,
smíðatímar o. s. frv. Þetta verður að lag-
ast. Allur trassaskapur er einhver leiðasti
löstur hvers manns, en af öllum góðum
dyggðum eru drengskapurinn og skyldu-
ræknin bezt. Ég trúi ekki öðru en allir
góðir menn vilji innræta börnum sínum
þá eiginleika.
Beri nauðsyn til, að barn sé fjarver-
andi frá skóla dag og dag, munu leyfi frá
skólans hálfu venjulega mjög auðsótt
Bókabúð Æskunnar
Kirkjuhvoli
Hefii* á bodstólum:
Úrvals barna og
unglingabækur
Skemmtibækur
Ýmiskonar fræði-
bækur
Ljóðabækur ofl.
Sími 4235