Foreldrablaðið - 16.12.1939, Side 36

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Side 36
36 FORELDRABLAÐIÐ máls, nota ambögur og orðskrýpi o. s. frv. Barnaskólinn gefir börn, sem þann- ig koma að heiman trauðlega að mál- fræðingum eða rithöfundum, eins og sumir virðast ætlast til, að hann vinn- ur vissulega meira en flestir áhorfendur gera sér grein fyrir, í þá átt að draga úr þeirri ískyggilegu hættu, sem yfir ís- lenzkri tungu vofir á þessum þjóðbylt- ingatímum. Meðal annars vegna þessa, er ábyrgðarhluti að draga úr árlegum starfstíma skólanna, og verður það eigi gert, án þess að það komi niður á móð- urmálsnáminu, meðal annars. 2. Stytting kennslutímans getur að- eins á einn hátt dregið úr útgjöldum ríkisins við skólahaldið, sem sé þann, að laun kennara lækki að því skapi er styttingunni nemur. En barnakennarar eru, svo sem kunnugt er, meðal þeirra starfsmanna hins opinbera, sem allra lægst eru launaðir. Kjör þeirra eru nú þegar svo bág, að fyrir fjölskyldumenn, sem ekkert hafa annað en kennaralaun- in, getur ekki verið nema um tvennt að ræða að líða skort eða safna skuldum. Það virðist því vissulega vera furðuleg bjargráðaráðstöfun að lækka laun þeirra manna, sem búa við skort en gegna þó einhverju vandasamasta starfi þjóðfé- lagsins. En ef hallæri verður í landi, sem réttlætt getur neyðarráðstafanir, hvers vegna þá ekki að láta eitt ganga yfir alla? Hvers vegna þá ekki að veita ríkis- isstjórninni samskonar heimild til að lækka laun presta, lækna, sýslumanna, póstmanna o. s. frv. Kennarar munu ekki skorast undan því öðrum frem- ur að bera að sínu leyti sameigin- legar byrðar þjóðarinnar á erfiðum tím- um. En þeir hljóta að telja það ganga ofsóknum næst, ef þeir, sem um ára- tugaskeið hafa verið lægst launaðir Tí§i§kaffið gerir alla glaða Vélsmiðjan H ÉÐ I N N Reykjavík Símn.: Héðinn Sími 1365 (þrjár línur) Rennismiðja Ketilsmiðja Eldsmiðja Málmsteypa Framkvæmir fljótt og vel viðgerðir á skipum, vél- um og eimkötlum. Utvegum meðal annars hita- og kælilagnir, stál- grindahús og olíugeyma. Hárgreiðslu- og snyrtistofan Laugavegi Permanent, Vella og Egnsin Fljót og góð afgreiðsla.

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.