Foreldrablaðið - 16.12.1939, Qupperneq 39

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Qupperneq 39
FORELDRABLAÐIÐ 39 Jónas B. Jónsson: Foreldrarnir, börnin Eitt það, sem vekur mesta gremju og jafnvel reiði hjá foreldrum og öðrum uppalendum er þrái og óhlýðni barna. Af þessari gremju eða reiði leiðir svo, að refsingin fyrir óhlýðnina verður of hörð í hlutfalli við óhlýðnina. Reiðin glepur uppalandanum sýn, og hann lætur skap- ið bera skynsemina ofurliði. Hann skoð- ar óþægð barnsins, sem persónulega móðgun eða misgerð gagnvart sjálfum sér. Takmarkið er þá ekki lengur vel- ferð barnsins, hugurinn snýst um upp- alandann sjálfan. Afleiðingin verður sú, að refsingin verður óréttlát, en órétt- læti þola börn ekki. Þau fyllast eðli- legri gremju gagnvart refsandanum. Ef til vill forðast þau að endurtaka brotið í nærveru uppalandans, en það stafar meira af því, að þau óttast óþægindi refsingarinnar, en hinu, að þau skilji og viðurkenni að hegðun þeirra hafi verið röng. M. ö. o. ábyrgðin á gerðum barnsins er því raunverulega hjá uppalandanum en ekki hjá barninu, og þá er illa farið. Því að eitt það þýðingarmesta í upp- eldi barna er, að þau sjálf beri ábyrgð á sínum eigin gerðum. Takist það ekki er það foreldranna sök en ekki barn- anna. En foreldrum og öðrum uppal- endum hættir svo oft til, er í óefni er komið með uppeldi barns, að skella skuldinni á það, segjast ekkert skilja í, hvernig á því standi að barnið sé svona og svona. En sökin liggur undan- tekningarlítið hjá þeim sjálfum. Börn, sem alin eru upp hjá hreinskilnum, sannorðum, hollráðum og hugsandi for- eldrum, sem hafa sterka ábyrgðartil- VISIR ER EEZTA DAGBEAÐIÐ Ódýrasta dagblaðið. Aðeins kr. 2.50 á mánuði. Bc/ta fréttablaðið. Gerist áskrifendur Sími 3400. Hreinar, hvítar og fallegar t e n n u r prýða. Gott tanncrem á bæði að hreinsa tennurnar og varð- veita þær fyrir skemmdum. Notið Rósöl tanncrem

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.