Landneminn - 01.12.1951, Blaðsíða 22

Landneminn - 01.12.1951, Blaðsíða 22
SVERRIR KRISTJÁNSSON : Heinbich Keine, honimánisminn og framiidin HEINRICH HEINE (1797—1856) var og er eitt yndislegasta ljóðskáld Þýzkalands. Ljóð hans eru þýdd á öll heirasins tungu- mál, þótt þau séu í raun og veru óþýðanleg. En hann vái einn- ig hinn snjallasti rithöfundur á óbundið mál, þótt þau verk hans séu ekki eins kunn og skyldi. Heine flutti búferlum til Frakklands 1831 og bjó í París til æviloka. Á þeim árum skrif- aði hann flest rit sín í óbundnu máli. Hann skrifaði í stærsta blað Þýzkalands þeirra tíma Deutsche Allgemein-e Zeitung, fjölda blaðagreina um listir, stjórnmál og félagsmál Frakklands. Greinum þessum safnaði hann síðan í bók, Lutezia, en það var hið forna nafn á Parísarborg. Heine skrifaði einna fyrstur Þjóð- Tunga vor / J fram yfir flest allar þær tungur, er ég hefi nokkra þekkingu á, nefnilega óendanlegt nýgern- ingaefni, og vona ég, að hún á þeim hætti geti jafnazt við hverja aðra, sem til er eða nokkurn tíma hefur til verið í heiminum.“ Á slíkum hættutímum fyrir íslenzka tungu og menn- ingu sem nú ganga yfir, vegna erlendra afmenningar- áhrifa sem innlendir valdamenn hafa kallað yfir land okkar, er okkur hollt að muna menn eins og Rasmus Kristián Rask. Minning slíkra, og orð þeirra, má vera okkur hvöt til þess að meta gildi tungunnar og standa vörð um menningu okkar. í dag er það ekki á færi neins einstaks manns að bjarga menningararfi okkar, þótt vissulega megni dugandi einstaklingar mikils. Það verður því að vera verk fjölmargra, hinna beztu sona og dætra sem þjóðin á. Sérstaklega mun það falla í skaut æskunnar sem nú er að alast upp að bjarga beim verðmætum til framtíðarinnar, sem spilltir valdhafar íslenzku auðstéttarinnar reyna að hrifsa með sér í fallinu, um leið og hin úreltu þjóðfélagsform þeirra hrapa í feigðargil. verja um kommúnismann og hina róttæku verkalýðshreyfingu Parísar og túlkaði þessa nýju stefnu fyrir löndum sínum. Af- staða Heines til kommúnismans var mörkuð ótta og lotningu, en her einnig vott um óvenjulegan sögulegan skilning, sem i mörgum greinum minnir á söguhyggju Karls Marx og Friðriks Engels. Hér fer á eftir örlítið hrafl úr hlaðagreinum Heines, þar sem hann minnist á þessa róttæku þjóðfélagshreyfingu, kommúnismann, og ræðir framtíð heimsins. Hinn 20. júní 1842 skrifar hann svofelld orð í hið þýzka blað: Þessi hræðilegi andslæðingur (kommúnisminn) fer enn huldu höfði og situr um kyrrt eins og fátækt kon- ungsefni í neðanjarðahvelfingu þjóðfélagsins, í þeim katakombum, þar sem hið nýja líf ber blóm og brum í jarðvegi dauða og rotnunar. Kommúnisminn er dul- nefni þessa óttalega andstæðings, sem teflir fram drott- invaldi öreitralýðsins með öllum þess afleiðingum gegn drottinvaldi borgarastéttarinnar. Það verður hræðileg hólmganga. Hvernig skyldi henni Ijúka? Það veit eng- inn nema guðirnir og gyðiurnar, sem mega skvggnast bak við skvkkiu Skuldar. Vér vitum aðeins eitt - Þótt kommúnisminn sé nú lítt í tal færður og liggi í svelti á aumu hálmfleti í braggabúðum þióðfélagsins, þá er hann hin skuggalega hetia, sem búið er mikið hlutverk í harmleik nútímans, þótt ekki verði nema um stundar- sakir, og híður aðeins kallorðsins áður en hann gengur fram á sviðið. Vér megum því aldrei missa sjónar á þessum leikara, og vér munum endrum og eins segja frá leynilegum æfingum hans, þar sem hann býr sig undir frumsýninguna. ★ Kosningar höfðu farið fram á Frakklandi í júli 1842. Hinn 12. s. m. skrifar Heine blaði sínu: Þér munuð hafa séð kosningarúrslitin í blöðunum. Hér í París þurfa menn ekki fyrst að ráðfæra sig við blöðin, maður getur lesið úrslitin á andlitum manna. 116 LANDNEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.