Landneminn - 01.12.1951, Side 30

Landneminn - 01.12.1951, Side 30
Hann átti heima á loftinu, lét sig dreyma og var kallaður Spilltur drengur Smásaga eítir Geir Kristjánsson Einkasonur hjónanna á loftinu klemdi saman augun og vildi ekki vakna. Hann var að dreyma að hann væri yngsti sonur kon- ungsins í Stóraríkinu og öllum þætti vænt um sig. Það var þoka og næstum því myrkur, og þau höfðu öllsam- an vængi eins og englar. Það voru krakkarnir á neðri hæðinni og barnfóstran, sem alltaf sagði „mei“ í stað- inn fyrir „nei“, þegar hún borðaði. Þau settust á síma- vírana eins og fuglar, og þegar hann gat ekki flogið jafn hátt og hin börnin, af því hann var vngstur, teygði hún sig í áttina til hans og hjálpaði honum. Það þótti öllum fjarska vænt um hann og voru góðir við hann, því hann var yngsta barnið konungsins og hafði fal- legustu vængina. Hann hélt áfram að leika þennan leik í huganum eft- ir að búið var að klæða hans og eftir að móðir hans hafði sent hann út í það, sem hún kallaði „góða veðr- ið.“ Hann álti prik og litaða tusku, sem hann sveiflaði í loftinu, og hann flaggaði fyrir sjómanni, sem rölti hérna heim á leið með kassann sinn. — Fyrir hverju flaggar þú? kallar sjómaðurinn. — Ég er að flagga fyrir þér, svarar hann, af þvi það var það fyrsta sem honum datt í hug, og af því hann vissi ekki að það væri siður að flagga fyrir ein- hverjum sérstökum þó maður flaggaði. — Þú ert sá fyrsti, sem gerir það, heillin, sagði þá slöttólfurinn mæðulega og var horfinn fram hjá áður en varði. Þegar hann var þreyttur á að flagga, steig hann upp í möskvana á vírnetinu, þangað til hann sá skipið á höfninni. Það var útlent með rauðum stromp, og hann hafði fengið að fara fram að því með pabba sínum, þegar lýsistunnurnar voru teknar, og séð skeggjaða menn, sem hölluðu sér fram á borðstokkinn og spýttu í sjó- inn. Annars voru svona skip ekki eins voðalega stór og hann hafði ímyndað sér á meðan hann var lítill og horfði á þau úr fjörunni. Það var í fjörunni, sem ])abbi hans bræddi lifrina og þar voru grútarþrærnar, steypt- ar niður í sandinn. Þegar þær voru tómar, lék hann sér að því að hóa niður í þær og hlusta á, hvernig hljóðið skoppaði á milli veggjanna. Honum var sagt að þær væru botnlausar, þegar hann var lítill, en seinna, þegar þær stóðu tómar, hafði hann kastað niður í þær steinum og fundið botninn. Þá skoppaði hljóðið líka á milli veggjanna alveg eins og þegar hann hóaði, og það var steinsteypa í botninum. — Hver hefur leyft þér að klifra í vírnetinu hans pabba? Það var Baddi, sem kallaði fyrir aftan hann. Krakkarnir á neðri hæðinni voru komnir út og farn- ir að leika sér með þríhjólið. Hann hafði einu sinni fengið að prófa það hjá þeim, þegar hann gaf þeim bátinn sinn. Það var lítill árabátur, sem frændi hans hafði tálgað, og hallaðist á hliðina ef hann var settur í vatn. Annars var svona þríhjól, sem enginn mótor var í, ekki neinn almennilegur bíll. Sjálfur ætlaði hann að smíða sér alltöðruvísi bíl, bíl, sem væri hægt að keyra uppímóti og gengi fyrir vatni af því það kost- aði ekkert. Þá mundu krakkarnir á neðri hæðinni elta hann í halarófu lil að fá að koma í bíltúr og kannski bjóða honum þríhjólið í staðinn. Þá mundi hann þurfa að búa til veg á túninu og setja brú yfir lækinn og negla plánkana fasta í jörðina. — Það er bannað að klifra í girðingu pabba míns! Baddi, sem var elzlur, var farinn að hrista vírnet- ið eins og hann héldi að hann mundi detla og gæti ekki haldið sér í staurinn. Hann vissi að Baddi var sterkari, því þeir höfðu slundum flogizt á, og einu sinni hafði hann klórað hann 124 LANDNEMINN

x

Landneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.