Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 8
JAKOB V. HAFSTEIN :
Flý þú ekki,
æska!
Þegar núverandi útgefandi barnablaðs-
ins Unga íslands talaði við mig, og bað um
nokkur orð í tilefni af 50 ára afmæli blaðs-
ins, varð ég fyrst dálítið undrandi — en
um leið þakklátur fyrir þetta góða boð.
Var þá Unga ísland raunar orðið 50 ára?
Þessu hafði ég ekki gert mér grein fyrir.
Mér fannst reyndar svo ótrúlega stutt síð-
an að ég hafði beðið með óþreyju eftir
þessum kærkomna vini og góða gesti, í
hvert sinn er blaðið kom út, þegar ég var
iítill drengur fyrir norðan, — og ennþá
styttra síðan ég hafði unnið dálítið að út-
komu blaðsins hér syðra á vegum Rauða
kross íslands.
Já, ungu lesendur. Tíminn er ótrúlega
fijótur að líða, — gerið þið ykkur sem fyrst
grein lyrir því. Og það er öllum til far-
sældar og blessunar að kappkosta að nota
tímann sem allra bezt.
Viðfangsefnin — gagnleg og þjóðholl —
eru á næsta leiti. Erfiðleikarnir láta heldur
ekki bíða eftir sér. En flýjið ekki — skjót-
ið ykkur ekki undan skyldunum, sem á
ykkur kalla, þótt ykkur finnst þær erfiðar
í svipinn. Hagnýting hinnar líðandi stundar
hjálpar ykkur í þeirri baráttu.
Og blaðið ykkar, Unga ísland, gefur ykk-
ur mörg holl og góð ráð til þess að verða
að góðum og nýtum þjóðfélagsþegnum.
Unga ísland er eins og sólargeisli í því
moldviðri hinna mörgu mislitu blaða, sem
nú eru gefin út hér á landi í dag og æskan
seilist ótrúlega mikið eftir.
í 50 ár hefur Unga Island verið boðberi
góðra unglingasagna, viðfangsefna með
uppeldislegu og þroskavænlegu gildi og
fræðandi á öllum sviðum fyrir hina upp-
vaxandi æsku íslands á hverjum tíma.
Það er von mín og ósk, að íslenzk æska,
sú er erfir landið, standi vöxt um Unga
ísland og tileinki sér hið ágæta efni, and-
rúmsloft og hollráð sem blaðið hefur flutt
og mun flytja æskunni nú og æfinlega.
Mundu, íslenzk æska:
enn er margt að vinna,
stærstu störfin bíða
styrkra handa þinna.
Flýðu ekki, æska,
inn í kaldan skuggann,
— sérðu ekki að sólin
sindrar inn um gluggann?
Með þessum orðum vildi ég mega áma
Unga íslandi allr^ heilla á ókomnum árum,
þakka liðnu árin og treysta því að æska
landsins slái skjaldborg um blaðið.
Svo óska ég ykkur öllum, ungu lesendur,
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ár-
um.
Jakob V. Hafstein.
6
UNGA ÍSLAND