Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 2
Bendingar til búnaðarbóta
1. GOTX tJTSÆÐI: Manitobabændur skaðast árlega svo mil-jónum dollara
skiftir á því að nota skemt útsæði. Sérhver bóndi ætti að sá til útsæðis í sér-
stakan blett, undirbúa hann sem bezt, nota aðeins beztu korntegund, er laus
væri við ryð og skemdir, óblönduð öðrum tegundum eða illgresisfræi. Hann
ætti svo að láta þreskja þetta sér, geyma það i sérstöku húsi og nota svo til
útsæðis. Með þessu mundi hann stórum bæta uppskeruna árlega.
2. trTRYMING IL.LGRESIS: Vissasti vegurinn til þess að tapa peningum er
að sá í akur, sem er fullur af illgresi. The Weeds Commission, Manitoba De-
partment of Agriculture, Winnipeg, veitir hverjum bónda upplýsingar, hversu
fara skal með land, sem fult er af illgresi.
3. FRJÓSEMI LANDSINS: Notið allan heimafengin áburð á akrana. Ef þér
þarfnist leiðbeininga um hagkvæmustu aðferðir, skrifið, Agronomy Depart-
ment, Manitoba Agricultural College, Winnipegt
4. PLÆGIÐ SNEMMA A HAUSTIN: Reyslan hefir sýnt, að plæging, sem
gerð er snemma á haustin, gefst betur en síðplæging.
5. LEGGIÐ RÆKT VIÐ KYNBÆTUR: Það borgar sig að nota eingöngu
beztu skepnurnar til undaneldis. Ákveðið hvaða alidýra kynstofn er þrifamest-
ur, og verið svo ekki að breyta til með hann. Athuga skal, að það er gagnstætt
lögum að láta graðhesta, eldri en ársgamla, naut eldri en 9 mánaða, gelti eldri
en 4 mánaða, ganga lausa, á hvaða tíma árs sem er. Ennfremur gildir hið
sama um hrúta, er orðnir eru 4 mánaða gamlir, á tímabilinu frá 1. ágúst til 1.
apríl.
6. SKEPNU-HIRÐING * Gefið skepnunum vel, Afhyrnið nautgripi og rófu-
skellið lömbin á réttum tíma.
7. MEÐFERÐ EGGJA: Haldið alifuglahúsunum hreinum, svo eggin verði
ekki óhrein. Skiftið iðulega um hálm í hreiðrunum. Einangrið hanana frá
fuglahjörðinni eftir að hænurnar fara að sitja á.
8. ÓSCR RJÓMI: Rjómi er flokkaður eftir gæðum í smjörgerðarhúsunum, og
borgaður að sama skapi. Geymið rjómann þar sem hann helzt kaldur. Smjör
er betra úr ósúrum en súrum rjóma. Um hvernig búa skuli til kælitrog, fyrir
rjóma, leytið upplýsinga hjá: Dairy Branch, Department of Agriculture, Win-
nipeg.
9. KOMIÐ UPP GÓÐUM GARÐI: Það borgar sig fyrir hvern mann, sem á
blett af landi, að koma upp góðum matjurtagarði. Ef unt er að hafa raðirnar
nógu langar, má nota hest við ræktunina og sparar það mikla vinnu.
10. BÚNAÐARBÆKLINGAR: Margir ágætir bæklingar um akuryrkju hafa
verið gefnir út af The Dominion Department of Agriculture, The Manitoba
Department of Agriculture, The Agricultural Press. Lesið þá eins marga og
pér hafið tíma til. Thc Manitoba Department of Agriculture, sendir yður þá,
ef þér óskið þess.
Hon. D. G. McKenzie
MINISTER OF ACRICULTURE AND IMMIGRATION.