Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Page 60
40
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
lijá þeim meðvitund um það, að
þetta væri land, sem menn af þeirra
kynstofni hefðu fyrst fundið. Það
var um og eftir 1870, að byrjað
var að hreyfa þessu.*) Þá var fræg-
astur meðal Norðmanna Ole Bull,
og var hann hér um hríð í Ameríku.
Árið 1873 stakk Rasmus B. Ander-
son, maður af norskum ættum og
þá prófessor við Wisconsin háskóla,
upp á því við Ole Bull, að það væri
viðeigandi að Leifi væri reist minn-
ismerki í Boston, og félst Bull á
það, og með þeim áhuga, sem hon-
um var lagið, gekk hann nú fremst
í flokki fyrir því að þetta yrði gert.
Hann ferðaðist um landið og hélt
söngleika til ágóða fyrir fyrirtæk-
ið. Svo fór hann til Noregs og safn-
aði þar fé, og jafnvel Bjömstjerne
Björnson veitti honum liðveizlu. —
Margir fremstu menn í Boston og
Cambridge sátu í nefnd þeirri, sem
um þetta fjallaði, og var Miss Anne
Whitney fengin til að gera líkn-
eskju af Leifi. Loks var styttan
reist og afhjúpuð með viðeigandi
hátíðahaldi í Boston, og stendur
þar enn, þótt flestum hafi þótt
heldur lítið til hennar koma. Alveg
samskonar istytta var reist í Mil-
waukee, Wisconsin, þar sem margir
norrænir menn þá bjuggu.
Um þær mundir var Eben Hors-
ford prófessor í efnafræði við Har-
vard háskóla. Hann var ríkur mað-
ur, hafði grætt fé á uppgötvunum
sínum, því að þær komu af stað
þeirri stofnun, sem er kunn mjög
hér í landi, kölluð “Soda Fountain”.
*) I frásögninni um þetta hefi eg stuðst
að nokkru leyti við grein eftir Harry
Sundby-Hansen, sem birt var i American-
Scandinavian Review, 11. bindi, 1923
(Leif Ericson conquering America).
Honum varð þetta Leifsmál mjög
hugfangið, reit um það hvert ritið
eftir annað og þóttist sanna, að
Leifsbúðir hefðu verið nálægt Bos-
ton og lét þar reisa istóreflis tum.
Staðurinn heitir Norumbega, en
það sagði Horsford að væri afbök-
un á hinu latneska nafni Noregs.
Fór hann með málið meira af
kappi en forsjá, en þó vakti hann
mikla athygli á þessu.
Norskir Ameríkumenn létu þó
ekki hér við lenda, og var nú hafist
handa að reisa Leifi annað minnis-
merki, og skyldi það standa í Chi-
cago. Myndin var gerð af norsk-
um listamanni, Sigvald Asbjörnsen,
og stendur hún þar enn í Hum-
boldt Park.
Rasmus Anderson var óþreyt-
andi að berjast fyrir málinu, og
hann vildi ekki láta það viðgang-
ast, að Columbus hefði heiðurinn
af fundi Ameríku. Hann gaf út rit,
sem bar titilinn America not dis-
covered by Columbus, og fékk það
allmikla útbreiðslu, kom út í þrem-
ur útgáfum, og var þýtt bæði á
dönsku og þýzku. Og nú gerðist
hann forgöngumaður þess, að ár-
lega skyldu menn halda sérstakan
dag til minningar um Leif, og vildi
láta kalla daginn “Vínberjahátíð”,
og geta menn skilið uppruna nafns-
ins. Fékk þetta allmikið fylgi með-
al Norðmanna, og norsk félög víðs-
vegar um Bandaríkin héldu þessa
hátíð, jafnvel með skrúðgöngum
og þesskonar.
Nú dró að því, að menn vildu
minnast þess, að fjögur hundruð
ár voru liðin frá því að Columbus
fann Ameríku. Og í tilefni af því
var efnt til hinnar miklu Chicago-