Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 64
44
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENDINGA
1
gegn katólskum, og skal ekki reynt
að rekja það frekar, fáránlegar
eins og eru staðhæfingarnar, sem
þar eru færðar fram. Eg skal bara
geta hér eins. Fyrir nokkrum árum
fór eg austur um haf með skipi
Norsk-ameríkönsku línunnar. Þar
fann eg til sölu bækling einn, sem
var sérprentun úr hálfsmánaðar-
riti sem hét The American Stand-
ard, málgagni páfafjenda. Titillinn
pésans er svo merkilegur, að eg
set hann hér í þýðingu: “Leifur Ei-
ríksson, Norðmaðurinn, fann Ame-
ríku árið 1000. Uppljóstrun um róm-
verskt-katólsk samsæri með því
markmiði að leyna hinum ‘nor-
diska’ fundi Vínlands (Ný Eng-
lands) og að halda fram fundi þess
af pápistanum Columbusi, sem
aldrei setti fót sinn á vort land.
Líka skýring á uppruna nafnsins
á landi voru, Ameríku, sem er
dregið af Eiríki, viðurnafni finn-
andans, Leifs Eiríkssonar.” Og
skýringin á nafninu Ameríka er
heldur en ekki gáfuleg. Hún er
“Amt Erik” sem smámsaman verð-
ur að Ameríka. Það er bara einn
hængur á þessu, sem sé að Leifur
þekti ekki orðið “amt’’ því að það
kom ekki til Norðurlanda fyr en á
17. öld. En um slíkt lítilræði er ekki
hirðandi, þegar um góðan málstað
er að ræða!
Úr því að þessir krossfarendur
fara svona mortúavilt í kredó, að
því er orðið “amt” snertir, má bú-
ast við því að þeir hafi í byrjun
krossferðarinnar haldið, að Leifur
hafi verið lúterskur. En þeim mun
hafa verið bent á það seinna, að
það hafi hann varla getað verið
fimm hundruð árum á undan Lú-
ther. Þeim mun líka hafa verið
bent á, að það var ljóður á ráði
Leifs að því er trúarbrögðin snerti.
Hann var sem sé nýskírður og hafði
á skipi sínu skjámanninn, eins og
Eiríkur rauði kallaði prestinn. Með
öðrum orðum, Leifur var katólskur
og einskonar trúboði í kaupbæti.
Hins vegar var Columbus ekki í
kirkjunnar þjónustu að neinu leyti,
þótt hann auðvitað játti katólska
trú. En þessu svara krossfarendur
þannig, að vísu hafi Leifur verið
katólskur, en kristin trú kom frá
Englandi til Noregs og íslands, og
enska kirkjan var þá ekki undir
páfanum. Svo þó hann væri kat-
ólskur, þá var hann ekki pápískur,
en það var Columbus í sinni og
skinni. Það er, eins og karlinn
sagði, ‘gaman að börnunum, þeg-
ar þau fara að sjá’. En það má
telja efasamt, hvort nornirnar, sem
spunnu örlagaþræðina við fæð-
ingu Leifs, hafi dreymt um það,
að slík frægð ætti fyrir honum að
liggja — að verða einskonar dýr-
lingur Metódista. Og satt að segja
á hann betra skilið.
En það skeður margt á langri
leið.