Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Page 72

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Page 72
52 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA 1 fleiri járn í eldinum, heldur en þegar hafa talin verið. Á Bægisár- tímabili sínu, þýddi hann, auk hinna meiri rita, sæg styttri kvæða og sálma, bæði úr þýzku og dönsku. Auk þess orti hann meirihluta frumkveðinna kvæði sinna, og eru í þeim hóp næm öll hin merkustu á þessum árum. Það var uppskeru- tíminn í starfslífi hans, og hversu rík og fjölbreytt var sú uppskera eigi! Hliðstæð dæmi jafn merki- legrar bókmentastarfsemi eru ekki á hverju strái; verður þó afkasta- semi hans enn glæsilegri, þegar litiö er á andvígar aðstæður hans. En séra Jón hafði hvílt nærri heilan aldarfjórðung í gröf sinni áður en heildarútgáfa kvæða hans sá dagsljósið. Eins og kunnugt er komu þau út í tveim bindum, í Kaupmannahöfn, 1842—43. Munu flestir verða útgefandanum, Jóni forseta Sigurðssyni, sammála um það, að “ljóðsvanurinn Bægisár” hafi legið alt of lengi óbættur hjá garði, að það liafi verið menning- artap íslenzkri alþýðu og hnekkir sönnu mati skáldsins, að prentun ljóða hans dróst svo lengi úr hömlu, enda þótt ýmsar þeirra veki enn bergmál í brjóstum ljóðhneigöra manna og hugsandi, og mun svo lengur verða. III. Um kvæöalengd líkist séra Jón íslenzkum samtíðarskáldum sín- um; hann frumkvað enga langa ljóðabálka, að undanskildum “Hænsna-Þóris rímum”, en þær feðraði hann ásamt Sveini lög- manni Sölvasyni, orti fjórar síðustu rímurnar. Þar sem annarstaðar í kveðskap Jóns, lýsa sér lipurð hans og málkunnátta, og náin kynni af fornum fræðum íslenzkum. Að bragarháttum eru kvæði hans fjöl- skrúðugri en alment gerðist, og þó nokkurrar margbreytni kennir í yrkisefnum hans, þegar tekið er til greina hversu fáskrúðugt var hið þjóð'félagslega umhverfi hans að flestu því, er lyftir anda skálds- ins á flug. Hann orti marga sálma, fjölda erfiljóða og annara tæki- færiskvæöa, ýms önnur ljóð alvar- legs efnis, margt kímniskvæða og ádeilu, og aragrúa af lausavísum um hin fjarskyldustu efni. Má einn- ig ætla, að ekki hafi öll kurl kom- ið til grafar, þegar farið var að safna kvæðum skáldsins’ á efri ár- um hans, enda hefir eitthvað kom- ið í leitirnar síðan. Séra Jón var eitt hið allra merk- asta sálmaskáld á íslandi sinnar samtíðar. Sálmar lians, sem að vonum bera eyrnamörk tíðaranda og trúarskoðana þeirrar aldar, eru mjúkir að orðfæri, lýsa einlægri trúarkend og eru hvergi nærri snauðir að andagift. Vinsælastur þeirra og hvað ágætastur frá skáld- skaparlegu sjónarmiði er “Sumar- kveðja”, þýð og Ijóðræn, bragar- hátturinn vel samræmanlegur yrkis- efninu. Eins og við á, á mótum sumars og hausts, dregur skáldið athygli vora að hverfulleik jarð- neskra hluta og sjálfs jarðlífs mannanna. Hér hljómar þó ekkert óp örvæntingarinnar: bjartsýni ör- uggrar trúarvissu og sannur karl- menskuhugur tala í þessum Ijóð- línum: X
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.