Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 86

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 86
66 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENÐINGA slíýrslum þessum eru skrár yfir innflytjendur ár frá ári, er flutt liafa inn til Canada, frá stofnun fylkjasambandsins 1867 og ofan til þessara tíma. Hefjast þær því nokk- urum árum áður en íslendingar byrja að flytjast inn í landið. Þó nú skýrslur þessar séu að ýmsu leyti ábyggilegar, eru þær þó ekki eins nákvæmar og skyldi. Fylgir þeim hinn sami galli og manntalsskránum, að innflytjend- nr eru ekki hvarvetna greindir eft- ir þjóðerni, heldur þjóðstofni. — Hvergi nærri er þetta þó algeng regla, og kemur eigi fyrir nema sum árin. Stafar óreiða þessi af hirðuleysi, og ef til vill þekkingar- leysi umboðsmannanna, er skipað- aðir voru fyr á árum til þess að taka á móti innflytjendum og gera grein fyrir þeim. Sömdu þeir upp- haflega skýrslurnar og sendu skrif- stofunum. Völdust eigi ávalt í em- bættin þeir mennirnir, er fróðastir voru, frenmr þá en nú. Munu sum- ir naumast hafa kunnað aðra grein að gera en þessa og fundist það ærin nóg raun mannlegu viti, að ættfæra aðkomumenn í þessar höf- uðáttir, þótt eigi þyrfti þeir að gera frekari grein fyrir þeim. Und- an má þó skilja hina íslenzku um- boðsmenn þeirra tíma, er allajafn- ast gáfu greinilegar skýrslur. Allmikil breyting hefir orðið á þessum skýrslum á síðari árum jafnframt því sem innflutningalög- unum hefir verið breytt, svo að segja á ári hverju. Eru lögin nú mikið þrengri en áður voru og krefjast meiri rannsóknar á hverj- um einstaklingi, er inn í landið vill flytja til langdvalar. Eru skýrslum- ar samdar með meiri nákvæmni og mun þó enn nokkuö á það skorta að þær séu í alla staði óskeikular. Sem dæmi mætti tilfæra kafla úr inn- flutningaskýrslunni, sem birt er í Canada Árbókinni 1931.*) Gerð er þar ítarleg grein fyrir innflutningi til Canada á fjárhagstímabilinu frá 31. marz 1928 til 31. marz 1930. Eru innflytjendur flokkaðir eftir kynstofni, tungu, þjóðerni og fæð- ingarstað. Fyrst kemur flokkurinn eftir kynstofni (Racial Origin) og eru þar allir taldir, er flutt hafa inn í landið. í skrá þessari er sagt að alls hafi 81 íslendingur flutt til landsins á þessum tíma, 30 er kom- ið hafi sjóleiöis en 51 frá Banda- ríkjunum. í næstu töflu eru inn- flytjendur flokkaðir eftir þjóðerni (Nationality). En þar eru aðeins taldir 44 íslendingar, 38, er komið hafi sjóleiðis og 6 frá Bandaríkjun- um. í þriðju töflunni er flokkunin gerð eftir fæðingarstað (Countrý of Birth). Þar verða íslendingar 55, 41, er komið hafa sjóleiðis, en 14 frá Bandaríkjunum. Hið athuga- verða við töflur þessar er það, að þeim ber eigi saman um tölu þeirra íslendinga, er hingað eiga að hafa komið sjóleiðis. í töflunni yfir lieild- ar tölu innflytjenda, eru þeir sagð- ir 31, — og þar ætti allir að vera taldir, sem þessa leið komu — en í hinum eru þeir gerðir töluvert fleiri. Á öðrum staðnum 38 en hin- um 41. Sjáanjega er eitthvað bogið við þessar tölur, því eigi er það hugsananlegt, að þeir verði taldir til íslenzks þjóðernis, sem ekki eru þá líka af íslenzkum kynstofm- *) The Canada Year Boak, 1931. PP’ 176—79.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.