Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 90

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 90
70 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA skipi félagsins. Ferðaðist Sveinn um helztu íslenzku nýlendurnar í Manitoba og Vesturlandinu, og skrifaði um það ferðalag ítarlegt mál. Ári seinna fer hann aðra ferð vestur sem túlkur, með talsvert stærri hóp með sér, eða 78 manns. Til þess eigi að vera eftirbátur Dominion línunnar, sendi Allan lín- an aðal-umboðsmann sinn á ís- landi, Sigfús Eymundsson í Reykja- vík, í samskonar ferð 1893. Ferð- aðist Sigfús víða, og eftir að heim kemur, lýsir öllu rækilega, er fyr- ir augun bar. Lofaði hann líðan manna yfirleitt. Ferðasögur þeirra Sveins*) og Sigfúsar eru birtar í ritinu “Landneminn”, er út var gef- ið í Reykjavík 1891—94. Farbréfasalan var að verða að arðvænlegri atvinnugrein. Kom nú Anchor línan í þessa veiðistöð, og var umboðsmaður liennar Sigmund- ur prentari Guðmundsson í Reykja- vík. Kepti hann við Sigfús og All- an línuna og varð allvel ágengt. Skrifaði sig allstór hópur hjá hon- um e.r fór vestur, en óánægja varð megn yfir aðbúnaði á skipinu, og viðskiftum og frammistöðu hans yfir það heila tekið við vesturfara, og þótti mönnum sem honum hefði farist lítilmannlega og haft brögð og fjárdrátt í frammi. Auk þess sem skipafélögin (og agentar þeiiTa) keptust um það hvert við annað, að draga til sín sem flesta vesturfara, hét Canada- *) Sveinn Brynjólfsson flutti skömmu seinna vestur alfari, settist að í Winni- peg og stundaði þar húsabyggingar. Ár- ið 1910 var hann skilpaður danskur kon- súll, en flutti þá nokkrum árum seinna vestur til Crescent, B. C., og andaðist þar 28. júni 1930. stjórn hverjum þeim manni, sem vestur færi, næmi hér land Og flytti á það innan sex mánaða, $12 í peningum, en ef um hjón var að ræða, $18, og að auki $6 fyrir hvert barn þeirra, er komið væri yfir 12 ára aldur. Var þessu fyrst lieitið 1891 og endui'tekið 1892. Mun þetta ásamt ýmsu fleira hafa ýtt undir með vesturferðir. Eigi er fólk þetta, er vestur flutt- ist með þessum mönnum, er nú hafa verið taldir, talið með í skýrslu Baldwinson’s, að því er hann sjálf- ur hefir tjáð.. Skiftir það þó all- hárri tölu. Það má því ætla að á- gizkan sú, sem skýrsla innanríkis- málaráðuneytisins gerir, og áður er nefnd, að 1893 hafi um 10,000 ís- lendinga verið búsettar í Canada, sé sízt of liá. Svo margir voru komnir áður en Baldwinson tók við innflutninga umboðsstöðunni, að þó burtflutningur úr Nýja íslandi yrði töluverður á árunum 1879— 80, þá hefir margfaldlega bæzt í það skarð, með öllum þeim er komu milli 1880 og 1886. Á þeim árum eru vesturferðir tíðar. Árið 1883 fara þrír vesturfarahópar frá ís- landi; hinn fyrsti í júnímánuði frá Akureyri, sá næsti í júlímánuði frá Seyðisfirði og hinn síðasti frá Sauð- árkrók 1. ágúst. í þessum þrem hópum voru hart nær 1,500 manns, að því er ætlað hefir verið. Stöðvun varð engin á innflutn- ingunum með stjórnarskiftunum 1896. Hin nýja stjórn (Laurier- stjórnin) gerðist öllu umsvifameiri en hin eldri. Sótti hún mál þessi af öllu kappi. Var innflutningur nú eigi lengur að mestu einskorðaður við Vestur-Evrópu, en Rússum,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.