Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Qupperneq 91
TALA ÍSLENDINGA í CANADA
71
Mið- og Suður-Evrópumönnum
leyfð frjáls innganga í landið. Há-
niarki innflutninga var náð 1913.
Það ár fluttu frá Norðurálfunni inn
til Canada 402,432 manns. Á þess-
um tíma eru farnar sendiferðir til
Islands jafn tíðar og áður. Er inn-
flutningur þaðan mikill, aldarloka-
og aldarbyrjunar-árin, svo að eng-
um vafa er það bundið að tölur
innanríkismálaráðuneytisins eru of
lágar. Árin 1899, 1901-2-3-4, kem-
ur margt manna þaðan í stærri og
smærri hópum. Stendur svo fram
að árslokum 1914, er sjóferðir all-
ar teptust við veraldarófriðinn.
Þá er líka innflutningalögunum
breytt á hinum næstu árum, af-
numinn allur ferðastyrkur og far-
gjöld hækkuð upp í okurverð. Tek-
Ur þá og að mestu fyrir allan inn-
flutning, nema frá Bretlandseyjum,
Því að fólk var styrkt þaðan öllu
n’flegar en áður, með stórum fé-
gjöfum og farareyri. íslenzkir inn-
flytjendur hafa fáir verið þessi síð-
ari ár, en þeir sem komið hafa,
verið frá Bandaríkjunum aðallega.
Þó eigi verði að sinni, né án ít-
ai’legra rannsókna nánara ákveðið
Uni tölu íslenzkra innflytjenda en
frá er skýrt, má þó frá þessum
heimildum ráða í hana með nokk-
Urn veginn vissu, svo að eigi er
11111 marga myrka stafi að villast.
Eftir skýrslum stjórnardeilda þeirra,
er nefndar hafa verið, og áætlun
yfir þau ár, er engin aðgreining er
Serð á innflytjendum frá Norður-
löndum, hlutfallslega við hin inn-
flutningaárin, verður tala íslenzkra
innflytjenda á tímabilinu frá 1872
til 1931 þessi:
1872—92, skýrslur, rúmar 10,000
1893—95, skýrslur ....... 1,301
1896—98, áætlað ............ 990
1899, skýrslur ............. 364
1900, áætlað ............... 345
1901—10, Skýrslur* ...... 3,339
1911—20, skýrslur ....... 3,821
1920—31, skýrslur ....... ' 344
Samtals .......... 20,504
Ef treysta má því að tala þessi
sé rétt, eða nærri lagi, verður auö-
velt að reikna sainan hvað margir
íslendingar eru nú í landinu. Sjálf-
sagt er að fylgja í þessum útreikn-
ingi, hinni sömu reglu og höfð er
við manntalið og til þessa hefir ver-
ið lögum samkvæmt. íslendingar
eru allir þeir, sem fæddir eru af ís-
lenzku foreldri, hvort fæddir eru í
Canada eða Bandaríkjunum, sem og
afkomendur þeirra. Eins og ofan-
greindar tölur bera með sér, hafa
yfir 20,000 manna verið þegar
komnar inn í landiö, fyrir eoa um
árslok 1914. Yfir stríðsárin og upp
að 1920 flytjast inn tæp 200, og á
hinum síðustu tíu árum aðeins 344.
Allflestir þeirra eru því búnir að
vera hér um 20 ár og þaðan af
lengur — 60 ár þeir sem lengst
eru búnir að vera og enn eru á
lít'i, frá fyrstu innflutningsárunum.
Hvað ört þeim hefir fjölgað á þess-
um tíma verður eigi sagt með
fullri vissu, en geta má þess til
að eigi hafi það verið minna, en að
jöfnum hlutföllum við hina aðra
íbúa landsins, er fluttust inn um
sama leyti og hafa haft við hin
sömu kjör að búa og þeir. Eftir
*) Innflytjendatalan yfir árin 1901—■
10 er tekin úr bókinni: “Canada and its
Provinces. 1913.