Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 93

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 93
l^refttájfíidlsi árs]þ0 Þjóðræl&raisfél&gsins Þrettánda ársþing Þjóðræknlsfélags Islendinga í Vesturheimi var sett af for- seta félagsins Jóni J. Bíldfell, miðviku- daginn 24. febrúar 1932, kl. 10.20 f. h. í samkomuhúsi íslenzkra Góðtemplara i Winnipeg. Hófst þingið með þvi að for- seti bað þinggesti að syngja sálminn 262 í vestur-ísl. sálmabókinni (Drottinn minn guð þú ert bjarg mitt og borg). Að þvi loknu flutti forseti ársskýrslu sína sem hér fylgir: Háttvirtu þingmenn! Árið sem liðið er síðan við vorum hér síðast saman komin, hefir verið eitt J>að erfiðasta, sem komið hefir, að minsta kosti í tíð þeirra manna, sem nú lifa. Það er eins og alt hafi komist Á ringulreið, viðskifti manna, atvinna, framleiðsla, og afstaða manna til margs þess, sem áður þóttu grundvallaratriði mannfélagsins. Félagar Þjóðræknisfélag- sins og Islendingar allir eru að ganga i gegnum hreinsunareld, ásamt fólki flestra eða nálega allra landa heimsins, sem að öllum líkindum ekki sloknar fyr en hismið er útbrunnið og það eitt held- nr velli, sem hæfast er. Bn þrátt fyrir þær kringumstæður er eg ekki hér kom- inn til að flytja yður neitt vesaldarvíl ■eða sorgarsón. Slíkt hefir aldrei verið siður, eða eðlisfar norrænna manna. Andstreymið, hefir verið þeim eggjan og erfiðleikarnir þróttur og svo veit eg að enn er. En þótt harðæris tal hljómi fyrir eyrum manna daglega og að það, stari á móti manni nálega frá hverri síðu dagblaðanna og tímaritanna þá sam- höfum við félagsbræður og systur fyrir mikið að þakka á árinu liðna. Heilsu- far manna hefir yfirleitt verið gott, samlyndi og einnig innan félagsins á- gætt og þótt máské að framkvæmdir á starfsmálum félagsins hafi verið hæg- Xarari á þessu ári, en sumum undan- förnum árum, þá vænti eg samt að þér megið vel við una það sem unnist hefir. Dauðinn hefir gengið um garð hjá meðlimum Þjóðræknisfélagsins, eins og annars staðar, og höggvið skarð í hóp- inn. Við því er náttúrlega að búast — það er lífslögmál sem enginn má rönd við reisa og sem allir verða að lúta fyrr, eða síðar. Á meðal þeirra félaga sem dáið hafa á árinu eru: Kjartan Helgason, prófastur i Hruna í Árnes- sýslu á Islandi; valinkunnur sæmdar- maður og hugljúfi hvers manns er hann þekti. Séra Kjartan var heiðursfélagi í Þjóðræknisfélaginu; mikilhæfur menta- maður og sannur þjóðræknis maður. Á meðal þeirra þjóðræknisfélaga, sem dáið hafa hér vestra, minnist eg: Þorvaldar Þorvaldssonar, Riverton, Man. Magnúsar Jónssonar, Víðir, Man. Þórðar Axdals, Wynyard, Sask. Gunnars Gunnarssonar, Churchb., Sask. Nikulásar Snædals, Lundar, Man. Guðfinnu Einarsson, Selkirk, Man., Og í Winnipeg: Sigurðar Sigurðssonar frá Rauðamel; Brynjólfs Hólms; Hall- dórs Jóhannessonar; Þórarins ólafssonav og Jóns Eggertssonar. Öllum þessum mönnum, og öðrum, sem gleymst kunna að hafa, en safn- ast hafa heim til feðranna á árinu vil eg í nafni Þjóðræknisfélagsins þakka samvinnuna. Trygð þessa fólks til þjóð- ræknismála vorra var mikil. Eg vil votta öllum aðstandendum þess samúð og hlut- tekningu félagsbræðra vorra og systra i skilnaðarsorg þeirra og söknuði. Um starfsmálin get eg verið fáorður, því væntanlega verða þau athuguð af yður sjálfum hér á þinginu. Þó ber að minnast á nokkur þeirra og er þá fyrst námssjóðsmálið. Þið minnist þess, að í sambandi við heimförina og þjóðhátíðina á Islandi 1930 fór Heimfararnefnd Þjóðræknisfé- lagsins fram á, aö Canadastjórn mintist þess merkis-atburðar með þvi að setja til siðu $25,000 námssjóð, og skyldu vextirnir af honum notaðir til námsstyrk.? fyrir efnilega námsmenn frá háskóla Is-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.