Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 95
ÁRSÞING
75
jafnhart í búi hjá almenningi og nú er,
Þvi málið er hugðnæmt og vinsælt. Það
er og ástæðan fyrir því, að gangskör
hefir ekki verið gerð að því að safna
í þenna sjóð af framkvæmdarnefndinni.
En málið má ekki falla i dá, þó þröngt
sé í búi, enda veit eg að það á of marga
vini til þess.
Bókasala á Islandi. -—■ Við höfum á
hverju ári sent Tímaritið og bæk-
br félagsins á bókamarkaðinn heima á
Islandi. Umboðs- og útsölumaður féiags-
>ns þar hefir verið Ársæll Árnason. Nú
hafa reikningssakir við hr. Ársæl verið
gerðar upp, og hefir samist svo um, að
hann lúki skuld sinni við Þjóðræknisfé-
lagið með því, að afhenda því eigulegar
bækur. Við samninga þessa hefir félagið
notið aðstoðar herra (stórkaupmanns
Gunnars Kvaran, sem Þjóðræknisfélagið
stendur í þakklætisskuld við. Verða bæk-
Ur þessar væntanlega sendar vestur áð-
Ur en langt um líður. Um framtíðarút-
sölu á ritum eða bókum Þjóðræknisfé-
lagsins á Islandi hefir verið samið við
herra bóksala Eggert Briem í Reykja-
vík.
Árið 1930 gengust nokkrir áhugasam-
lr menn fyrir stofnun félags, er þeir
nefndu “Fálka”. I það félag gengu all-
margir efnilegir Islendingar, og tóku að
mfa sig í hockey-leikjum á vetrum, en
allskonar líkamsæfingum á sumrin. —
Hefir félagið dafnað síðan með degi
hverjum undir stjórn þessara áhuga-
sömu manna, þar til nú, að það á yfir
að ráða stórefnilegum íþróttamönnum og
meyjum innan sinna vébanda.
Á síðasta þingi fór stjórnarnefnd þess
félags fram á fjárveitingu frá Þjóð-
meknisfélaginu, sem nam $25.00, og fékk
hana. Var meiningin að kaupa bikar
fyrir þá upphæð til að keppa um og auka
Þannig áhuga fyrir hockey-leikjum hjá
yngri mönnum á meðal Islendinga. Þeg-
ar stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins fór
að yfirlíta bikara þá, sem völ var á fyr-
lr það verð, fanst henni að þeir væru
svo lítilfjörlegir, að þeir mundu hvorki
Da tilgangi þeim, sem til var ætlast, né
heldur að sú gjöf gæti verið til sóma fyr-
,r Þjóðræknisfélagið. Svo við létum smíða
hikar, sem er hin mesta gersemi. Er
þnð siifurbúið drykkjarhorn, er stendur
á íbenviðar-fæti og kostaði um $60.00.
Vænti eg að þingið fallist á þá breyt-
ingu félagsstjórnarinnar. Um bikar
þenna var kept af Winnipegflokkunum
i fyrravetur, því þá vanst ekki tími til
víðtækari samkepni. En nú lítur út fyr-
ir að samkepnin verði nokkuð víðtæk.
því nú virðist sem hockey-leikarar frá
Selkirk, Gimli, Árborg, Lundar og Glen-
boro, muni taka þátt í henni, auk flokks-
ins í Winnipeg, sem bikarinn hlaut í
fyrravor.
I sambandi við þessa íþróttaflokka
skal þess getið með þakklæti, að enskur
maður, Clarence Ackland að nafni, hefir
gefið tíma sinn nú upp í tvö ár endur-
gjaldslaust til að æfa þá. Er það ómet-
anleg hjálp og óeigingjarn drengskapur.
Annan leikfimiskennara hefir félagið nú,
hr. Karl Kristjánsson frá Akureyri á
Islandi. Þökk eiga allir þeir menn, sem
fríviljuglega hafa gefið tíma sinn til
stofnunar þessu félagi og þroska þess.
Þeir sjá nú þegar mikinn árangur starfs
síns. En hann kemur betur í ljós, þegar
þeir, er þeir studdu unga á braut leikfim-
innar, eru orðnir heimsfrægir íþrótta-
menn.
Á síðasta þingi var stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins falið að leita fyrir
sér með beinar skipaferðir á milli Ame-
ríku og Islands, og möguleika á, að fá
stjórn Canada til að skipa og kosta
verzlunarerindreka á Islandi. Hvað beinu
skipaferðunum viðvíkur, þá lét formað-
ur Canadiska Kyrrahafs eimskipafélags-
ins það í ljós, að félagið væri ekki ó-
fúst á að hefja slíkar ferðir og halda
þeim uppi — einni ferð á ári — ef far-
þegar og vöruflutningar fengjust, svo að
réttlætt gæti slíka ferð frá fjárhagslegu
sjónarmiði. En sökum kreppunnar verða
framkvæmdir í þessu máli sæmilega að
bíða betri tíma og hagstæðari viðskifta.
Um verzlunarerindrekann er það að
segja ,að nefndin hefir hreyft því máli
við verzlunarmálaráðherrann, Hon. H. H.
Stevens, og lagt honum í hendur þau
gögn i málinu, sem hún átti yfir að ráða.
Og einnig hefir ritari nefndarinnar, dr.
Rögnvaldur Pétursson flutt það mál per-
sónulega við ráðherrann. Ekkert hefir
enn áunnist í þessu máli, sem varla er
heldur að búast við, því fæst tré falla.