Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 97
ÁRSÞING
77'
Tillaga kom frá dr. Rögnv. Péturssyni
studd af Mrs. Byron, að forseti skipaði
þriggja manna kjörbréfanefnd, Samþykt.
Porseti útnefndi þá
Ragnar Stefánsson,
Guðmund Jónsson frá Vogar og
Ásgeir I. Blöndal frá Wynyard.
Meðan kjörbréfanefnd starfaði, var
þingstörfum haldið áfram, og ritari fé-
lagsins ,dr. R. Pétursson, • las eftirfar-
andi skýrslu sína:
Ritaraskýrsla 1931—2.
Á þessu síðastliðna ári hefir stjórn-
arnefnd Þjóðræknisfélagsins setið 13
fundi, er haldnir hafa verið á þessum
stöðum: 1 fundarsal Jóns Bjarnasonar
skóla, 11; að heimili ritara, 2. Fundina
hafa nefndarmenn sótt eftir beztu föng-
um, þegar athugað er, að sumir þeirra
hafa búið utan bæjar og í nokkurri
fjarlægð við fundarstað. Einn fund sátu
5 nefndarmenn, þrjá fundi 6, einn fund
sjö fundi 8, einn fund 9. Verður jafn-
aðartala á fundarsókn sem næst 7^.
Mál þau er þingið afgreiddi i liendur
uefndarinnar, hafa öll verið tekin til
umræðu á fundum. Nokkur hafa verið
afgreidd og frá þeim gengið eftir því
sem nefndin átti kost á. öðrum hefir
verið fylgt eftir og komið í ákveðnara og
skipulegra horf en þau voru í þegar nefnd-
m tók við þeim, þó eigi hafi orðið auðið
að ganga frá þeim til fullnustu. Hafa
þessi mál sérstaklega tekið upp mikinn
hluta af tíma og starfi nefndarinnar. Þá
eru nokkur, er nefndin hefir eigi getað
unnið úr og skilar til baka til þings-
ins aftur að mestu leyti í sömu skorð-
um og hún tók við þeim. Meðal þeirra
mála, er afgreidd hafa verið, má nefna
þessi:
1- Verðlaunabikar, er þingið samþykti
gefa og fela íþróttafélaginu Fálkan-
um til varðveizlu. Um bikar þenna skal
^ept á Hockeymótum að vetrinum, og
þ'ýtur sá íþróttaflokkur hann ár hvert,
er hæsta sigurvinninga ber úr býtum frá
Þeim leikmótum. Nefndinni kom strax
saman um, að bikar þessi skyldi vera
^neð sérstakri gerð, er minti á gefand-
ann. Þótti bezt við eiga að Þjóðræknis-
félagið gæfi drykkjarhorn í fornum stíl,
silfurbúið og þannig skreytt, að vel mætti
sæma við hlið annara verðlaunagripa.
Stóð sérstök nefnd fyrir smíði bikars-
ins. 1 nefndinni voru W. J. Jóhannsson,
P. S. Pálsson og forseti. Var smiðinnr.
lokið og bikarinn formlega afhentur 15..
april s.l.
2. Rithöfundasjóður. — Sjóður þessi
var stofnaður, lagðir til hans $100 úr
félagssjóði, og það gjafafé, er nefndinni
hefir borist á árinu. Mun frá því skýrt
í skýrslu féhirðis.
3. Fjárveitingar. — Þær fjárveitingar
er þingið ákvað, hefir nefndin greitt, og
er frá þeim skýrt í skýrslu féhirðis.
4. Tímaritið. — Frá því hefir nefndiu
gengið, séð um útgáfu þess og prentun.
Verður það til útbýtingar síðar á þing-
inu.
5. Innheimta. — Hana hefir nefndin
annast eftir því sem kostur var á. Samdí
hún snemma á árinu um greiðslu á því
bóka-andvirði, er félagið átti inni hjá
umboðsmanni þess í Reykjavik. Verður
það goldið i bókum, er sendar verða á
sinum tíma til skjalavarðar félagsins.
6. tjtbreiðslumál. — 1 eðli sínu verður
það mál aldrei afgreitt meðan nokkur
Islendingur í álfunni stendur utan við
Þjóðræknisfélagið. En að svo miklu leyti
sem ástæður hafa leyft, hefir nefndin
gengið frá þvi, sem henni var falið að
gera í því efni, á þessu ári. Tvö erindi
hafa verið flutt, sitt af hvorum, forseta
og ritara, í þarfir þessa máls. Leitað
hefir verið eftir því við einstaklinga og
ýmiskonar íslenzk félög, að þau gengju
í Þjóðræknisfélagið. Hefir það borið
þann árangur, að sum þeirra standa nú
nær Þjóðræknisfélaginu en áður. Tillaga
hefir verið samin, er lögð verður fyrir
þingið, um upptöku einstakra félags-
heilda í Þjóðræknisfélagið, og verður
það lagt i vald þingsins, hvað því virð-
ist að gera við hana. Ferðir í útbreiðslu-
erindum hafa ekki verið farnar, og olli
því aðallega hið erviða árferði, sem yfir
stendur. Aftur á móti hefir nefndin sam-
ið við prófessor Sigurð Nordal, er nú
dvelur við Harvard University i Cam-
bridge, Mass., sem Charles Eliot Norton
Professor of Poetry, að hann komi hing-
að til bæjar í lok næsta mánaðar og
flytji hér erindi á vegum félagsins. Þá