Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 98
78
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
hefir og nefndin látið prenta áramóta-
kort og sent þau öllum félagsmönnum
utan borgarinnar.
Mál þau er nefndin hefir ekki getað
gengið frá til fullnustu eru einkum tvö:
1. Viðskiftamál við fsland. — Tillaga
afgreidd frá þinginu í fyrra, fór fram á
það, að þess yrði farið á leið við Canada-
stjórn, að komist gsetu á verzlunarvið-
skifti við Island, og að skipaður yrði
héðan viðskiftaumboðsmaður, er búsett-
ur væri í Reykjavík. Máli þessu hreyfði
nefndin á síðastliðnu vori við Hon. H. H.
Stevens verzlunarmálaráðherra Canada,
og tók hann því líklega. óskaði hann
upplýsinga um vörukaup og vöruút-
flutning frá Islandi. Eftir upplýsingum
þessu viðvíkjandi var skrifað til Hag-
stofu Islands, og honum sendur útdrátt-
ur úr þeirri skýrslu, er nefndinni var
send. Máli þessu er ekki lengra komið,
en byrjunin er hafin.
2. Námssjóðsmálið. — Mál þetta hefir
verið höfuðmál nefndarinnar á þessu ári,
og á það verið eytt afar miklum tíma,
Það hefir verið til umræðu á hverjum
fundi, og má segja að því hafi þokað á
árinu úr vonleysi og upp í sæmilega vissu
um, að Canadastjórn efni það óákveðna
loforð, er gefið var í maí 1930. Farið er
fram á, að Canadaríki setji til síðu
$25,000 sem stofnsjóð, er af sér gefi ár-
lega sem svarar $1250.00. Sjóðurinn sé
heiðursgjöf til hinnar íslenzku þjóðar á
1000 ára afmælishátíð Alþingis.
Fyrverandi og núverandi forsætisráð-
herra hafa báðir heitið góðu um, að
ganga frá þessu máli samkvæmt óskum
nefndarinnar. Langt er frá því að mál
þetta sé útkjáð enn, en lengra er því
komið en þegar nefndin tók við því á
síðasta þingi.
Helzta málið, er nefndin hefir ekki
fundið úrlausn á, er hið svonefnda
Bókasafnsmál. Er því nú skilað aftur til
þingsins á sama stigi og það var, þegar
það var fengið nefndinni á síðasta þingi.
Ymiskonar fleiri 'mál hafa komið fyrir
nefndina á þessu síðastliðna ári. Verður
frá þeim skýrt annarsstaðar, og þvi á-
stæðulaust að geta þeirra hér.
Frekari greinargerð þýðir þá ekki að
gera fyrir störfum nefndarinnar. Er hér
að því helzta vikið, er á fundum henn-
ar hefir gerst ,og fundaefnin dregin sam-
an.
Kögnv. Pétursson, ritari.
Carl Thorlaksson gerði þá athugasemd
við skýrslu ritara, að verðlaunabikar sá,
sem um getur í skýrslunni, hafi eigi
verið afhentur iþróttafélaginu Fálkan-
um. Gaf forseti þá skýringu, að bikar-
inn sé eign Þjóðræknisfélagsins og verði
aðeins afhentur til umkepni.
Þá kom fram tillaga frá Bjarna Finns-
syni, studd af Árna Eggertssyni, að
skýrsla ritara sé þökkuð og viðtekin
Samþykt.
Var þá útbýtt meðal þinggesta fjár-
hagsskýrslu Þjóðræknisfélagsins, og vaí
skýrsla Skjalavarðar og fjármálaritara
lesin upp af herra ólafi S. Thorgeirssyni
bóksala, en féhirðir félagsins, herra Árni
Eggertsson, las upp reikning yfir tekjut
og gjöld Þjóðræknisfélagsins og yfirlit
yfir sjóðeignir þess.
Jón J. Húnfjörð frá Brown gerði til-
lögu, og Ásgeir Blöndal studdi, að fjár-
hagsskýrslunum verði vísað til væntan-
legrar fjármálanefndar. Samþykt.
Þá las ritari, dr. Rögnv. Pétursson
upp eftirfarandi skýrslur frá deildum
félagsins:
Arssliýrsla deildarinnar “Iðunn”,
Leslie, Saslc.
Þjóðræknisdeildin “Iðunn", að Leslie,
Sask., hafði 4 starfsfundi á árinu og 3
stjórnarnefndarfundi. Stóð fyrir 3 skemti-
samkomum og kveðjusamsæti fyrir hr.
Björgvin Guðmundsson tónskáld. Bóka-
safn deildarinnar telur yfir 300 bindi, og
hafa bæzt við á árinu um 20 bindi. Má
telja bókasafnið bæði gott og mikið. —
Meðlimum hefir fækkað þetta ár, aðeinS
19 borguðu tillag.
Deildin sá sér ekki fært að hafa
Þorrablót, eins og að undanförnu. Hefit
það í för með sér mikla fyrirhöfn og
mikið framlag, sem aðallega hefir kom-
ið á fáa meðlimi deildarinnar, sem vilj*
ugastir hafa verið og mestan áhuga bor-
ið fyrir félagsskapnum. Þótti það alls
ekki gerandi, að leggja neinum það á
herðar í þessu allsleysisári.
Þótt deildin hafi ekki starfað mikið
þetta ár, á hún enn innan sinna vé*