Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 104
84
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLBNDINGA
lögu og Sig. Vilhjálmsson studdi, að
stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins væri
falið að fara þess á leit við íslenzku
stjórnina að gera eitthvað í þessa átt
eða leita eftir möguleikum á því. Var
sú tillaga samþykt í einu hljóði.
Dr. Rögnvaldur Pétursson benti á það,
að gleymst hefði fyrir dagskrárnefnd að
að setja tvö mál á dagskrá, sem undan
farið hafi venjulega verið þar. Það
væri Samvinnumál við ísland og Náms-
sjóðsmálið. Ásgeir Blöndal lagði til og
S. Vilhjálmsson studdi, að þessum mál-
um væri bætt á dagskrá og var það
samþykt.
Þá var tekið fyrir Samvinnumál við
Island. Dr .Rögnv. Pétursson lagði til
og séra Benjamín Kiistjánsson studdi
að forseti skipi þriggja manna nefnd í
þetta mál. Samþykt.
Crtnefndi forseti:
Dr. Rögnv. Pétursson
Bergþór Emil Johnson og
Jónas Jónasson
Námssjóðsmál. Sig Vilhjálmsson gerði
tiilögu og Friðrik Sveinsson studdi að
þessu máli væri vísað til væntanlegrar
stjórnarnefndar. Samþykt. Jóhann P.
Sólmundsson lýsti því yfir að hann
væri þessu máli ósamþykkur og ætlaði
ekki að greiða um það atkvæði. — I
þessu sambandi las dr. Rögnvaldur
Pétursson mjög ítarlegt og vel samið
bréf, sem Marino Hannesson lögmaður
hafði ritað stjórnarvöldunum í Ottawa
viðvíkjandi námssjóðsmálinu. Gerði Frið-
rik Sveinsson tillögu og Sig. Vilhjálms-
son studdi að lögmanninum yrði greitt
þakkar atkvæði fyrir frammistöðu sína
í þessu máli. Tók þingheimur undir
það með því að rísa upp úr sætum sín-
um. Séra Guðm. Árnason gerði þá
fyrirspurn um það hvenær vænta mætti
svars frá Canadastjórn um þessi mál
og gaf dr .Rögnvaldur Pétursson þær
upplýsingar, að það mundi vart verða
fyr en eftir að fjárlögin yrðu lögð fyrir
þingið i vetur.
Með þvi að engin sérstök mál lágu
þá fyrir í bili óskaði Jón Ásgeirsson
eftir því að fá að taka til máls viðvíkj-
andi bókasafnsmálinu og kvaðst hafa
verið fjarstaddur er það var rætt. Leyfði
forseti það. Las þá Jón Ásgeirsson upp
bréf til þingsins undirskrifað af 73
mönnum þess efnis að þeir mundu gang-
ast fyrir stofnun lestrarfélags í Winni-
peg, svo framarlega að Þjóðræknis-
félagið setti ekki rögg á sig og hefðist
handa i málinu.
Urðu um bréfið nokkrar umræður.
Dr. Rögnvaldur Pétursson gerði tillögu
og Mrs. Byron studdi að bréf þetta
yrði lagt fyrir bókasafnsnefndina tii
athugunar áður en það væri rætt frekar
á þinginu og var það samþykt.
Kom þá fram tilaga frá Friðrik Sveins-
syni studd af Halldóri Gíslasyni að Jóni
Ásgeirssyni yrði bætt í nefndina. Enn-
fremur gerði Halldór Gíslason þá til-
lögu og S. Vilhjálmsson studdi, að
foreti skipi fimmta mann i nefndina.
Þessar tiilögur voru samþyktar. ttJ-
nefndi forseti þá:
Ragnheiði Davíðsson.
Þá hreyfði dr. Rögnvaldur Pétursson
því að æskilegt væri að reynt yrði að
efna til einhverskonar samvinnu milli
hinna þriggja norrænufélaga í Canada —
þess sænska, norska og íslenzka. Danii
hefðu ekkert félag með sér. Taldi hann
að af þessari samvinnu gæti margt
gott hlotist og hefði áður borið á góma
að til mála gæti komið að félögin reistu
sér sameiginlegt heimili í Winnipeg
Taldi vel farið að Isl. ættu frumkvæðið
að þessu . Öskaði eftir að skipuð yrði
nefnd i þetta mál .
Friðrik Sveinsson gerði tillögu og Jóh
P. Sólmundsson studdi, að þetta mál
yrði tekið inn á þingið og forseti skipi
í það 3. manna nefnd.
Forseti skipaði í nefndina:
Dr. Rögnvald Pétursson
Asmundur P. Jóhannsson.
Jón Ásgeirsson.
Þá minti forseti þingheim á að frarn
færi að kvöldinu ágæt skemtun er hefð-
ist kl. 8. þar sem fram færi ræður, söng-
urí upplestur, leikfimi o. fl.
Með því að fleiri mál lágu ekki fyr*1
þinginu í bili gerði dr. Rögnv. Pétursson
tillögu og Benjamín Kristjánsson studdi
að fundarhlé yrði til kl. 8 að kvöldinu
er skemtifundur yrði hafinn, en þingið
kæmi saman til reglulegra starfa kl. 1®