Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Síða 109
ÁRSÞING
89
2. Að stjórnarnefnd félagsins á næsts
ári sé falið að gera tilraun til að útvega
hentugar kenslu- og lestrarbækur, fyrii
börn og unglinga hér vestra heiman aí
Islandi, þar sem á þeim er hér tilfinn
anlegur skortur, eins og öllum er kunn-
ugt.
Winnipeg 25. febr. 1932.
Ragnar Stefánsson
Jón Húnfjörð
Barney Skagfjörð.
Bjarni Finnsson gerði tillögu og S
Vilhjálmsson studdi að nefndarálitið yrði
viðtekið í heild. Samþykt.
Sýningarmálið.
Séra Benjamín Kristjánsson gaf þing-
inu þar upplýsingar fyrir tilmæli sýn
ingarnefndar, að hún hefði ekkert að
ieggja fyrir þingið. Formaður nefndar
innar Sigfús Halldórs frá Höfnum væri
sestur að á Islandi og hefði hann lofað
nefndinni að grenslast eftir og senda
henni upplýsingar um hvort konur á
Islandi eða landið yfirleitt hefði hugsað
■sér að taka þátt í sýningunni í Chicagc
1933. Ef svo hefði verið að von væri
sýningarmuna að heiman, þá hefði
nefndinni virst ástæðulaust, að íslenzkai
konur, sem búsettar væru i þessu landi
°g ættu ólíkt örðugra aðstöðu færu að
setja nokkra rögg á sig í þessu máli
Svar um þetta væri ekki komið enn að
heiman og þvi teldi nefndin að hún gæti
nnn ekkert álit lagt fyrir þingið. Hins
vegar hefði nefndin alveg nýlega fengið
skeyti frá Chicago, þess efnis að Xs
iendingafélagið "Visir” þar í borginni
hefði ákveðið að kjósa tvær nefndir
«ðra til að taka á móti væntanlegum
Isl. sýngingar-gestum og sjá um hús
i^aeði handa þeim og hina til að aðstoðs
Islendinga hér eða annarsstaðar, sem
^kynnu að hafa í hyggju að taka þátt i
sýningunni. Bréfaskifti um nánari upp
lýsingar þessu viðvíkjandi mætti hafa
við J s. Björnsson, 2221 South Cali
fornia Ave., Chicago.
Gísli Magnússon gerði tillögu og Sig-
urbjörg Johnson studdi, að nefndin væri
beðin að starfa áfram unz vissa væri
íengin um þetta atriði. Tillagan vai
samþykt. — Arni Eggertsson mælti á
móti því að isl. hér í álfu væri að
skifta sér af þessu máli og taldi það
ekkert nema fyrirhöfn. I sama streng tók
S. Vilhjálmsson.
Forseti mælti þá nokkur orð í sam-
bandi við bókasafnshugmyndina og taldi
illa tilfallið að íslenzkum bókum væri
hallmælt þótt gamlar væri. óskaði eftii
að sem flestar íslenzkar bækur yrði
varðveittar og haldið til haga, því að
hvert bókasafn væri því auðugra sem
það ætti fjölbreyttari bókakost og óslc-
aði eftir að talað væri með virðingu
um allar vorar bókmentir. Síðan á-
minnti hann menn um að sækja Fróns
mótið sem ákveðið var að hefðist kl
8. að kvöldinu.
Fleiri mál lágu ekki fyrir þinginu i
bili. Bar þá Jón Ásgeirsson fram til-
lögu og Benjamín Kristjánsson studdi að
fresta þingstörfum til kl. 10 f. h. næsta
morgun og var það samþykt.
Að kvöldinu fór fram skemtisamkoma
er deildin “Frón” stóð fyrir, og var vel
til hennar vandað að öllu leyti. Skemti
fólk sér hið bezta við ræðuhöld og söng-
list og rausnarlegar veitingar. Að þvi
búnu var dans stiginn fram yfir mið-
nætti.
Fimmti fundur Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi var settur, föstu-
daginn 26. febr. 1932, kl. 10.30 f. h. á
venjulegum stað. Fundargerð síðasta
fundar lesin upp og samþykt.
Árni Eggertsson ávarpaði þingið út
af umræðum þeim sem orðið höfðu á
síðasta fundi um fjárhagsskýrslu Þjóð-
rækinsfélagsins og gerði grein fyrir
störfum féhirðis og fjármálaritara á
siðastliðnu ári og gat þess að hann
mundi ekki taka endurkosningu sem
féhirðir. Þá lá álit útbreiðslunefndar
fyrir og var lesið upp af séra Guðmundi
Árnasyni svohljóðandi:
Nefndarálit útbreiðslunefndar.
Nefnd sú sem sett var í útbreiðslu-
málin, leyfir sér að leggja fyrir þingið
sftirfylgjandi skýrslu:
I.
Með því að Iþróttafélagið “Falcons”
hefir farið þess á leit að komast i sam-
band við Þjóðræknisfélagið, leggur nefnd-