Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Blaðsíða 110
90
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
t
in til að það sé veitt með eftirfylgjandi
skilyrðum:
Þeir af meðlimum “Falcons” sem
kjörgengir eru í Þjóðræknisfélagið, sam-
kvæmt 15. grein, b-lið, grundvallarlaga
þess, gerast meðlimir í því og eru venju-
legir félagar í íþróttafélaginu; aðrir
meðlimir íþróttafélagsins verða auka-
meðlimir (associate members) í því, og
hafa að sjálfsögðu hvorki atkvæðisrétt
né kjörgengi í Þjóðræknisfélaginu.
Nefndin er þeirrar skoðunar, að Þjóð-
ræknisfélagið og stjórnarnefnd þess
ættu að hlynna að iþróttafélaginu eftir
föngum og hvetja það í starfi þess.
n.
Nefndin vill benda félaginu á, að sjái
stjórnarnefndin sér fært að halda fundi
í bygðum Islendinga, eða vinna á annan
hátt að því, að vekja áhuga fólks al-
ment fyrir íslenzkri þjóðrækni, eða að
aðstoða deildir, sem stofnaðar hafa ver-
ið, þá heimilist stjórnarnefndinni að nota
til þess fé, sem nemur væntanlegum
inngöngugjöldum nýrra félaga.
III.
Nefndin er þeirrar skoðunar, að íit-
gáfa islenzku vikublaðanna hér vestan
hafs sé mjög mikilsverður þáttur í þjóð-
ernisviðhaldi voru, og að það sé mjög
áríðandi fyrir útgefendur blaðanna, að
kaupendur þeirra greiði andvirði þeirra
skilvíslega. Vill þess vegna beina þeirri
bendingu til félagsins, að það með at-
beina stjórnarnefndarinnar, leitist við að
benda mönnum á, hver hætta vofir yfir
Þjóðernisfélagi voru, ef svo skyldi fara,
að blöðin yrðu að leggjast niður vegna
fjárhagslegra örðugleika.
Winnipeg 26. febr. 1932.
Guðm. Árnason,
Á. P. Jóhannsson,
J. P. Sólmundsson,
Ásgeir I. Blöndahl,
Benjamín Kristjánsson.
Viðaukatillaga.
Þar sem það er vitanlegt, að fjöldi
fólks óskar þess, að Þjóðræknisfélagið
annist um útgáfu lesbókar fyrir börn
og unglinga, og slíkt fyrirtæki liggur
inn á sviði þeirrar hugsjónar, að efla og
útbreiða íslenzka tungu i Vesturheimi,
og þar sem ennfremur má gera ráð fyrir
að slík útgáfa beri sig kostnaðarlega,
þá leggur nefndin til að stjórnarnefndin
sjái um útgáfu einnar slikrar bókar á.
þessu ári.
Ásgeir I. Blöndahl,
Dr. Rögnvaldur Pétursson lagði til og
Stefán Einarsson studdi, að nefndarálitið-
yrði tekið fyrir lið fyrir lið. Samþykt.
1. liður: Séra Guðm. Árnason gerði
með nokkrum orðum grein fyrir því,
hvað fyrir nefndinni vekti með þessum
lið. Spurningar komu þá fram frá
Guðmundi Bjarnasyni um það fyrst,
hvort Fálkarnir hefði óskað eftir inn-
göngu í Þjóðræknisfélagið — í öðru lagi,
hvað Þjóðræknisfélagið mundi gera við
þá meðlimi “Fálkans”, sem af ýmsum.
ástæðum kynnu ekki að vilja ganga í
Þjóðræknisfélagið og í þriðja lagi, hvort
leitast hefði verið eftir hvort Fálkarnir
skildu með hvaða skilyrðum og skyldum
þeir gengi inn í Þjóðræknisfélagið. For-
seti kvað það hafa verið upprunalega til-
mæli Þjóðræknisfélagsins, að Fálkarnir
gengi inn sem sérstök deild. Kvaðst
hafa farið á ársfund Fálkanna og reifað
málið fyrir þeim og hefði þar veriS
samþykt í einu hljóði að ganga inn í
Þjóðræknisfélagið sem sérstök deild. Séra.
R. E. Kvaran spurðist fyrir um það,
livort ekki hefði verið samþykt auka-
lög í þinginu i fyrra um upptöku félaga.
í Þjóðræknisfélagið undir sérstökum
skilyrðum. Skýrði forseti frá að slílc
aukalög hefði ekki verið samþykt, en
stjórnarnefndartillaga þess efnis lægi
fyrir þinginu nú. Dr. Rögnvaldur Péturs-
son las upp tillöguna.
Forseti Jón J. Bíldfell vék þá úr
forsetastól og flutti snjalt erindi þess.
efnis að rétt væri að gera þessu félagi
Fálkunum sem léttast fyrir, um inn-
göngu í Þjóðræknisfélagið. Það hefði
ekki sóst eftir inngöngu, en tekið mjög
vel í málaleitun sína og væri það óneit-
anlega mjög ánægjulegt, að fá jafn fjöl-
ment félag af ungu fólki inn. Væri
það starf, sem Fálkarnir innu hið nýti-
legasta og þjóðinni til sóma, og aulc
þess lægi í unga fólkinu mestar vonir
um framtíð islenzks Þjóðræknisfélags-