Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 112

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Side 112
92 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA lagði á móti því, að þessi aðferð yrði liöfð, og að borgað yrði annað en ferða- kostnaður við slík ferðalög. Taldi hins -vegar æskilegt að væntanleg stjórnar- nefnd gætti allrar varúðar í fjárveit- ingum til þessara mála. Arni Eggertsson ■óskaði eftir, að lagt væri í sjálfsvald -væntanlegrar stjórnarnefndar, hvað hún -vildi verja miklu til þessarar starfsemi, -eða að tiltekin væri viss fjárupphæð, svo sem að undanförnu, sem verja mætti til hennar. óskaði að tillaga sín væri borin upp. Forseti benti á, að ef lið- urinn væri algerlega feldur burt, væri vafasamt, hvort að hægt væri að koma að síðar, frekari tillögum I þessu máli. Tillaga Arna Eggertssonar og J. J. Húnfjörð borin upp og feld. Kom þá fram tillaga frá séra Guðm. Árnasyni, studd af Mrs. Byron, um að vísa þessum lið til baka til nefndarinn- •ar. Samþykt. 3. liður. -—■ Mrs. Byron lagði til og Halldór Gíslason studdi, að þessi liður væri viðtekinn. Samþykt. Viðaukatillaga Ásgeirs I. Blöndahl. — Dr. Rögnv. Pétursson lagði til og Th. S. Thorsteinsson studdi, að þessum lið verði vísað til baka til nefndarinnar. Samþykt. Var þá liðið fram undir hádegi og fundi frestað til kl. 2 e. h. Sjötti fundur Þjóðræknisfélags Islend- inga í Vesturheimi var settur kl. 2.20 •e. h. á venjulegum stað, föstudaginn 26. febrúar. Fundargerð síðasta fundar var lesin upp og samþykt með lítilsháttar breytingum. Forseti benti á að lögum samkvæmt ættu nú að fara fram kosningar em- bættismanna, en þar sem enn væru ekki afgreidd að fullu mál fráfarandi fram- kvæmdarnefndar, þá taldi hann æski- legt, ef þingið vildi samkvæmt 24. grem félagslaga Ieyfa frestun á kosningum. Jón J. Húnfjörð gerði tillögu og Friðrik Sveinsson studdi, að kosningu embættis- manna yrði frestað þangað til álit fjár- málanefndar hefði verið afgreitt á þing- inu. Var það samþykt. Þá var lagt fram álit fjármálanefnd- ar og lesið upp af Ásmundi P. Jóhanns- .syni, svohljóðandi: Skýrsla fjármálanefndarinnar. Við sem höfum yfirfarið skýrslur em- bættismanna: féhirðis, skjalavarðar og fjármálaritara félagsins, leyfum okkur að gera eftirfarandi athugasemdir við þær: I. Sú prentvilla hefir orðið í skýrslu te- hirðis, að í stað $131.34 á að vera $151.43 í vörzlum féhirðis. II. Með því að nú er erfitt árferði, og að sjálfsögðu ber að gæta allrar varúðar í öllum tilkostnaði, þá finst okkur að útgjaldaliðurinn við prentkostnað að upp- hæð $68.00 í skýrslu féhirðis sé óþarf- lega hár; þannig, að ekki ber að prenta meira af bréfsefnum og umslögum eD bráða nauðsynlegt er fyrir hvert ár, og að jólaspjöld séu sá hlutur, sem félags- menn megi helzt án vera. III. Þá er póstgjald undir Timaritið, að upphæð $51.14 næsta há upphæð, þegar tekið er tillit til þess að allir félagsmenn fá það endurgjaldslaust. Vill nefndin brýna það fyrir tilvonandi stjórnarnefnd að sem mestu af því sé reynt að koma félaginu að kostnaðarlausu út til félags- manna. En alls ekki ósanngjarnt að fé- lagsmönnum sé gert það að skyldu að senda burðargjald til skjalavarðar und- ir ritið, ef þeir ekki á annan hátt gæt.u nálgast það sjálfir. rv. a. Að síðustu finnum við að fjármála- ritara- og skjalavarðalaun, að upp- hæð $275.00, hafa verið borguð út án nægilegra heimilda, samanber 9- grein grundvallarlaga félagsins. Leggjum við samt til að þingið samþykki þessa upphæð sem fulln- aðargreiðslu fyrir síðastliðið ár. b. Aftur á móti teljum við fráleitt, að félagið þoli slík útgjöld á komandi ári til sinna embættismanna, þó haldið verði áfram í sama formi með bækur félagsins. Heldur verði látin nægja $100 þóknun, svo framar- lega sem menn ekki fáist til að gera það fyrir enn þá minna gjald. Leggjum við svo til að fjármála-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.