Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1932, Page 116
96
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Með því að fleiri mál lágu ekki fyrir
þinginu, var fundi frestað til kl. 8 að
kvöldinu.
* * *
Skemtifundur hófst að kvöldinu kl. 8,
með fiðlusóló Miss Pearl Pálmason. —
Fór því næst fram leikfimissýning
kvenna úr stúlknadeild Fálkans. Miss
Lóa Davíðsson söng einsöng. Séra Ragn-
ar E. Kvaran flutti erindi um skýringar
á mannkynssögunni. Lúðvík Kristjáns-
son las upp gamankvæði. Björg Krist-
jánsson fór með kvæði, Lilly Bergson
lék á píanó.
Samkoman fór hið bezta fram og var
fult hús.
Þegar skemtiskránni var lokið, var
settur fundur að nýju. Fundargerð síð-
asta fundar var lesin upp og samþykt.
Flutti þá ritari félagsins, dr. Rögn-
valdur Pétursson fram svohljóðandi
Þingyfirlýsing
út af andláti séra Kjartans Helgasonar
prófasts í Hruna í Arnessýslu
á Islandi.
Snemma á síðastliðnu sumri bárust
þær sorgarfréttir hingað vestur, að and-
ast hefði á páskadaginn, hinn ágæti og
þjóðkunni fróðleiksmaður, séra Kjartan
Helgason prófastur í Hruna í Árnes-
svslu. Hann var ekki eingöngu í hópi
þeirra leiðtoga þjóðarinnar, er almenn-
astra vinsælda hafa notið á þessum síð-
asta mannsaldri, heldur var hann og
líka hvers manns hugljúfi, er honum
kyntust, því sjaldan hefir þjóðin eign-
ast. víðsýnni, hugsjóna-auðugri, hjarta-
hreinni og drenglundaðri mann, er bor-
ið hafi meiri samúð til allra stétta
manna innan þjóðfélagsins en hann.
Þetta gat engum dulist, er honum kynt-
ust.
Fyrir tólf árum síðan var hann stadd-
ur hér á meðal vor, á þingi Þjóðræknis-
félagsins, sem fulltrúi lands vors og
þjóðar, hingað sendur til þess að vera
hinu unga og nýstofnaða félagi til leið-
beiningar og styrktar í köllun þess og
starfi. Ákjósanlegri og ágætari styrkt-
armann og vin gat Alþingi Islendinga
ekki sent oss. Árið sem hann dvaldi
hér, ferðaðist hann, sem næst um alla
álfuna, heimsótti flest hin dreifðu bygð-
arlög vor, og kynti sig hvarvetna, með-
al allra þeirra, er náðu að hlusta á hann
eða snerta hönd hans, að hinni stökuslu
ástúð og ljúfmensku. Fregnin um and-
lát hans snart því djúpt huga vor allra.
Islendinga hér vestan hafsins. Vér viss-
um að þar með áttum vér á bak að sjá,
hinum ágætasta vin, talsmanni og sam-
tiðarmanni.
tJt af fregn þessari viljum vér því, fé-
lagar Þjóðræknisfélags Islendinga í Vest-
urheimi, staddir á hinu 13 .ársþingi
voru, lýsa yfir hrygð vorri og söknuði
út af missi hans, og tjá ástvinum hans
og skyldmennum vora innilegustu sam-
hygð og hluttekningu í söknuði þeirra
og missi, við burtför þessa ágæta sonar
vorrar kæru þjóðar.
Þingheimur tók undir yfirlýsingu þessa
og mintist hins látna ágætismanns með-
því að standa á fætur.
Séra Guðm. Árnason gerði tillögu og
Halldór Gíslason studdi, að yfirlýsing"
þessi yrði bókuð og að forseta og ritara
Þjóðræknisfélagsins yrði falið að senda.
ættingjum og vandamönnum séra Kjart-
ans Helgasonar samúðarbréf frá þing-
inu. Samþykt.
Þá skýrði forseti frá þvi, að von væri
á góðum gesti til Winnipeg bráðlega, dr.
Sigurði Nordal frá Islandi, sem nú í vet-
ur gegndi Charles Eliot Norton prófessor3-
embætti við Harvard háskólann í Banda-
ríkjunum. Mundi hann koma til Winui-
peg á vegum Þjóðræknisfélagsins seint í
marzmánuði n. k., og bar hann fram
þá tillögu af hendi stjórnarnefndarinnar,
að hann yrði gerður að heiðursfélaga
Þjóðræknisfélagsins. Var sú tillaga sam-
þykt á þann hátt, að þingheimur reis úr
sætum sínum með lófaklappi.
Að lokum ávarpaði forseti þingheim
nokkrum orðum, þakkaði þinggestum
komuna, og las svo upp bréf, sem
þinginu höfðu borist frá fjarverandi vin-
um og velunnurum.
Að því búnu sagði hann þessu þrett-
inda ársþingi Þjóðræknisfélags Islendinga
í Vesturheimi slitið.
Rögnv. Pétursson J. J. Bíldfell
ritari. forseti.