Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Page 55

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Page 55
ALDARMINNING EINARS H. KVARAN 37 leið á löngu áður hann var að engu hafður, og austur og vestur var kom- ið í gamla vopnakapphlaupið á ný. Er nú svo komið, að ef nú slægi í styrjöld milli Rússa og Ameríkana, myndu hvorir um sig hafa nóg af eldflaugasprengjum og urðarmánum til að gjöreyða heimsálfum óvina sinna. Og svo fullkominn er þessi fjandbúnaður á báða bóga, að ekki þarf neinn guð í skýjum himins að hleypa honum í bál, eins og kristnir menn hafa trúað í nítján aldir, held- ur aðeins skrifstofumann, peð, ann- aðhvort í New York eða Moskva, sem telur rangsælis niður í núll og styður á rafhnapp. Samstundis mun jörðin standa í brunabáli, sem eyða mun öllu mannkyni, en ef einhverj- ar eftirlegukindir kynnu að leyn- &st í Hoddmímisholti, myndu þeir sízt hæfari til undaneldis en aparnir, forfeður vorir vegna drepgeislana, °g því ósýnt að jörðin geti risið úr rústum sínum, eins og þó var spáð í Völuspá. í slíkum horfum virðist það ráð vænst höfðingjum austurs og vest- urs að miðla málum og setja niður deilur sínar, enda eru þeir nú, til allrar hamingju, farnir að fara að veizlum hvorir hjá öðrum. Gætu þeir í þessum friðarerindum gert verra en að ganga með íslendinga- bók í vasanum og lesa ræðu Þorgeirs Ljósvetningagoða um kristnitökuna ^ íslandi. En það hefur lengi verið eitt af höfuðmeinum mannkindar- irmar, að hún hefur viljað renna í °Pinn dauðann sem læmingjar fyrir irú sína eða heiður. íslendingar lifðu af kristnitökuna, af því að þeim gömlu var leyft að blóta á laun og eta hrossakjöt; þeir töpuðu sjálf- stæði sínu á Sturlungaöld, af því að höfðingjarnir mátu meir sóma sinn en landsfriðinn. Hinir vísu lands- feður Bandaríkjanna mundu vel þrjátíu ára trúarbragðastríðið í Evr- ópu og settu því í lög sín að hver mætti hafa trú sína óáreittur í ríkj- um sínum. En þessu hættir þeim við að gleyma nú á dögum, þegar trúin er kommúnismi, og má oft ekki milli sjá, hvort þeir vilji ekki heldur fara brennandi flokkum til himna en að leyfa kommum kreddu sína. Þótt síðari heimsstyrjöldin væri hundrað sinnum ógurlegri hinni fyrri, þá verkaði hún ekki nándar nærri eins sterkt á hugi manna nema áhrif hennar væri þau að þagga nið- ur í mönnum mannlegt mál. Á árun- um 1920—1930 fóru Ameríkanar á syngjandi túr andlega og líkamlega er H. L. Mencken, vitringurinn í Baltimore, leiddi þá í herferð gegn kirkju og klerkum, lýðskrumurum og bannlögum. Varð honum vel ágengt að afkristna borgarlýðinn, þótt sveitamenn fylgdust ekki alltaf með.. En þegar á stríðsárunum höfðu þeir T. S. Eliot og Ezra Pound soð- ið saman ömurlegan moldviðrisstíl, lærðan sem dróttkvæði, sem spegla átti mannkindina á rústum stríðsins og gerði það svo vel, þótt enginn skildi í fyrstu hvað þeir voru að að fara, að þessi stíll varð hinn eini sanni stíll nýtízkuskálda og hefur haldið öllum skáldskap aldarinnar í járngreipum sínum fram á þennan dag, enda fékk T. S. Eliot síðar Nóbelsverðlaun fyrir vikið. En ekki mundu kvæði þessa manns hafa fall- ið Einari í geð, hvorki efni né bún- ingur; því síður mundi honum hafa getizt að sumum kvæðum íslenzkra nýtízkuskálda í þessum stíl frá því eftir 1944. Aftur á móti hefur eitt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.