Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Qupperneq 93
þingtíðindi
75
Þá var hér einnig á ferðinni síðastliðið
sumar gamall vinur vor og samverka-
maður, séra Robert Jack. Prédikaði hann
og flutti erindi á ýmsum stöðum á þess-
um slóðum, meðal annars á samkomum
þjóðræknisdeildanna „Esjunnar" í Ár-
borg og „Fróns“ hér í Winnipeg. Þökk-
um vér honum komuna og óskum hon-
um velfarnaðar í prestsstarfinu heima á
ættjörðinni.
Áður en ég lýk þættinum um sam-
vinnumálin við ísland, vil ég því næst
af hálfu félags vors bjóða hjartanlega
velkominn í hóp vorn séra Jón Bjarman,
prest að Lundar, og fjölskyldu hans, en
hann flytur aðalræðuna á „Fróns“-mót-
inu að þessu sinni. Eru okkur slíkir nýir
starfskraftar heiman um haf sérstaklega
kærkomnir.
MannfagnaSir og samkomuhöld
St j órnarnef nd Þ j óðræknisf élagsins
efndi til hádegisverðar fyrir þau pró-
fessor Einar Ól. Sveinsson og frú hans,
er forseti stjórnaði. Auk heiðursgestsins
tóku þar til máls varaforseti og ritari,
sem báðir eru gamlir nemendur pró-
fessorsins, og féhirðir vor.
Þjóðræknisfélagið og The Icelandic
Canadian Club stóðu sameiginlega að
samsæti til heiðurs Senator G. S. Thor-
valdson og frú hans, er fyrstur fslend-
jnga vestan hafs hafði verið skipaður í
þann virðingarsess í kanadíska þjóð-
Þinginu. Varaforseti félagsins hafði sam-
komustjórn með höndum í fjarveru for-
seta, er var á fyrirlestrarferð vestur í
Kaliforníu. Auk heiðursgestsins héldu
ræður þeir Árni G. Eggertson lögfræð-
nigur, Walter J. Lindal dómari, dr. Gest-
ur Kristjánsson, forseti Icelandic Cana-
dian Club, og Frank Olson fyrir hönd
Pjóðræknisdeildarinnar á Gimli. Grettir
L- Jóhannson las upp fjölda heillaóska-
skeyta, en séra Eric Sigmar og frú
skemmtu með söng. Var samsætið fjöl-
sott og um allt hið virðulegasta. Vil ég
þakka undirbúningsnefndinni starf henn-
®r, en hana skipuðu Lindal dómari, séra
Philip M. Pétursson, Grettir ræðismað-
Ur og Guðmann Levy, af hálfu Þjóð-
ræknisfélagsins, en dr. Gestur Krist-
jansson, H. J. Stefánsson og Axel Vopn-
fjörð af hálfu Icelandic Canadian Club.
.Er þá komið að einum allra merkasta
Viðburðinum á starfsárinu, en það er
heimsókn dr. Vilhjálms Stefánssonar og
fruar hans á fornar slóðir þess heims-
træga landa vors bæði í N. Dakota og
Manitoba. Hélt hann fyrirlestra bæði á
Kikisháskólanum í N. Dakota og Mani-
tobaháskóla og ræður á samkomum bæði
a Mountain og í Árborg. Hér í borg hélt
Þjoðræknisfélagið hádegisverð þ e i m
hjonum til heiðurs. Var þar fjölmennt
og mannval mikið, meðal annarra for-
sætisráðherra Manitobafylkis, Hon. Duff
Roblin, og heilbrigðismálaráðherrann, dr.
George Johnson. Margar ræður voru þar
fluttar, og mun öllum viðstöddum verða
minnisstæð hin fróðlega og skemmtilega
ræða heiðursgestsins um frægðarferðir
hans á norðurhjara veraldar. Undirbún-
ing þessarar ánægjulegu samkomu önn-
uðust af hálfu stjórnarnefndar vorrar
þeir séra Philip M. Pétursson, Guðmann
Levy og Haraldur prófessor Bessason, en
forseti hafði veizlustjórn með höndum.
Þakkar Þjóðræknisfélagið dr. Vilhjálmi
og frú hans sögulega og kærkomna heim-
sókn og árnar þeim framtíðarheilla.
Eins og kunnugt er, átti Guttormur J.
Guttormsson skáld áttræðisafmæli hinn
21. nóvember. f tilefni þess merkisaf-
mælis hins góðkunna skálds hélt Þjóð-
ræknisfélagið litlu síðar hér í borg
kvöldvöku honum og frú Jensínu til
heiðurs. Forseti stýrði samkomunni, en
prófessor Haraldur Bessason hélt aðal-
ræðuna fyrir minni skáldsins. Mrs.
Hólmfríður Daníelsson og börn þeirra
Gunnars Sæmundssonar hjónanna í Ár-
borg lásu upp úr kvæðum Guttorms, en
undir stjórn Mrs. Elmu Gíslason sungu
bæði blandaður kór og einsöngvarar
mörg lög og kvæði eftir hann. Sjálfur
flutti Guttormur eftirminnilega ræðu,
þar sem alvara og gaman voru haglega
saman ofin. Samkoma þessi var vel sótt
og öllum þeim til sóma, sem þar áttu
hlut að máli, en undirbúning hennar
önnuðust þau Haraldur Bessason, Mrs.
Hólmfríður Daníelsson, Grettir L. Jó-
hannsson og ólafur Hallsson.
ítarlegri frásagnir um mannfagnaði
þessa og samkomuhöld geta menn lesið í
hinum íslenzku blöðum vorum, en ekki
þarf að fara mörgum orðum um það,
hver ánægjuauki þær eru fólki voru og
hve mikið þær auka á litbrigðin og
menningarbraginn í hinu menningar-
lega félagslífi voru.
Úigáfumál
Fertugasti árgangur Tímariis félags
vors kemur út á þessu ári, og verður
venju samkvæmt útbýtt síðar hér á þing-
inu. Hefi ég þegar í skýrslu þessari vikið
að því, hve merkilegt verk félagið hefir
unnið og vinnur með útgáfu þess, í ljósi
þess álits, sem það hefir áunnið sér hjá
þeim, er um slíka hluti kunna vel að
dæma. Það skulum vér hafa í huga, er
að því kemur að ráðstafa framtíðarút-
gáfu þess hér á þinginu. Gísli Jónsson
varð enn á ný við þeirri eindregnu ósk
stjórnarnefndarinnar að annast ritstjórn
Tímariisins. Hefir hann nú áratugum
saman skipað þann sess með mikilli
prýði, og veit ég, að væntanleg þing-