Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1959, Blaðsíða 101
þingtíðindi
83
lætis í framkvæmdum, hefir Þjóðræknis-
félagið þó verið meðal hinna allra þörf-
ustu og nytsömustu félagssamtaka meðal
Vestur-íslendinga. Eru afrek þess ís-
lenzkri þjóð til gagns og sóma þegar
orðin mörg og merkileg. Megi því enn
endast aldur til að vinna mörg fleiri
sömu tegundar. Þjóðræknisfélag íslend-
inga í Vesturheimi lengi lifi!
A. E. Krisijánsson
Að lokum bað forseti alla þá viðstadda,
sem hefðu setið fyrsta þing Þjóðræknis-
félagsins, að rísa úr sætum. Voru það
allmargir. Þakkaði forseti þeim trúnað
við góðan málstað. Féhirðir gerði þá til-
lögu, að kveðjum öllum yrði vísað til
allsherjarnefndar. Frú Marja Björns-
son studdi, og var tillagan samþykkt.
Síðan var fundi frestað til næsta morg-
uns.
3. FUNDUR
hófst kl. 10 f. h. þriðjud. 24. febrúar.
Lesin var fundargerð síðasta fundar
og hún samþykkt. Formaður kjörbréfa-
nefndar tilkynnti, að mættur væri nýr
fulltrúi frá deildinni á Mountain, er færi
naeð 10 atkvæði. Að því búnu skipaði
forseti, dr. Richard Beck, í nefndir sem
hér segir:
i
Allsherjarnefnd:
Grettir L. Johannson,
Séra Jón Bjarman,
Elín Hall.
Samvinnumálanefnd við ísland:
Séra ólafur Skúlason,
Walter J. Lindal,
Marja Björnsson,
Ólafur Hallsson,
Guðbjörg Sigurðsson.
Vfbreiðslumálanefnd:
Séra Valdimar J. Eylands,
Stefán Eymundsson
Kristín Thorsteinsson
Margrét Goodman,
Timóteus Böðvarsson.
ErasSslumál:
Hólmfríður Daníelsson,
Herdís Eiríksson,
Ingunn Thomasson,
Sigrún Nordal.
Ejármálanefnd:
Séra^ Philip M. Pétursson,
Daníel Líndal,
Arni Brandsson.
Úígáfumálanefnd:
Guðmann Levy,
Grettir L. Johannson,
Páll Guðmundsson.
Nefnd til að aihuga tillögur Árna Bjarn-
arsonar:
Hólmfríður Daníelsson,
Haraldur Bessason.
Forseti sýndi þessu næst þinggestum
forkunnar fagran blómvönd, sem borizt
hafði þinginu frá herra Walter Johann-
son, og las kveðju frá frú Margit og
Árna Eylands.
Walter J. Lindal dómari flutti mjög
skilmerkilega ræðu um þjóðræknismál-
in í heild og skýrði frá stofnun félags-
samtaka, er nefnast „CANADA-ICE-
LAND FOUNDATION“. Fer greinargerð
dómarans hér á eftir:
Fáeinar úiskýringar um siarf Canada-
Iceland Foundalion
1. Vestur-fslendingar á krossgötum í
sambandi við menningarmál þeirra.
2. Við verðum að líta á raunveruleik-
ann eins og hann er.
3. Allt okkar þjóðernisstarf byggt á
mörgum máttarstoðum, en nú virðist að
sumar af þeim séu farnar að bila — ekki
fúna, nei, heldur hitt, þær þurfa að fá
það, sem á ensku er kallað „reinforce-
ment“, liðsafla eða lífgjafa.
Máiiarsioðirnar
1. Þjóðræknisfélagið — peningaþröng.
a) leitað til almennings.
2. The Icelandic Canadian Club.
a) á enga peninga.
b) Scholarships — féstyrkir.
3. Vikublöðin — erfitt að halda áfram.
a) styrkur frá íslandi minnkar jafn-
mikið og krónan hrynur,
b) prentkostnaður hækkar.
4. Tímaritin.
a) Tímarit Þjóðræknisfélagsins.
b) The Icelnadic Canadian.
5. Svo mætti nefna kirkjurnar, sem
beinlínis eða óbeinlínis hafa hjálpað
mikið.
6. Það eina, sem er varanlegt, hvað
sem kemur fyrir, er háskólaembættið í
íslenzku. En það í sjálfu sér er ekki nóg,
hvað góður sem kennarinn er, og höfum
við ágætan kennara. Hann verður að
hafa íslendinga, íslenzkan félagsskap,
bak við sig, ef vel á að heppnast.
7. Þess vegna, hvernig sem á er litið,
er nauðsynlegt að halda við okkar vest-
ur-íslenzku stofnunum og félagsskap. En
til þess þarf peninga.