Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Page 61
bréf frá stephani g. og sigfúsi blöndal
43
en ég hefi ekki betri tök í bráðina,
því ég vildi ekki draga gamlan vin
a svari. Kannske getum við senzt
Hnu seinna millum okkar. Konan,
niamma og krakkarnir biðja kær-
lega að heilsa þér og þínum, og við
sem elzt erum og þekktum þig, ósk-
um alls góðs, og berum til þín hlýj-
an hug frá æskudögum okkar.
Þinn einlægur,
Stephan G. Stephanson.
10-11.-1910. Box 78
Markerville, Alta.
Góðvinur, Jón minn. Þökk fyrir
bréf þitt, langt og skemmtilegt, sem
komið er nú fyrir nokkru. Ég var
nú einmitt farinn að kvíða því, og
flaug það líka í hug, strax sem ég
sendi þér bréf mitt, hið fyrra, að
þér myndi finnast ég taka kvæð-
unum þínum fálega, næstum
úrembilega, því það liggur í grun
naínum, að ég hafi þótt um dagana
ehægligjarn í garð annarra kvæða-
nianna, og mun mér það talið til
sfærilætis og kaldlyndis. Og þó er
þsð nú ekki alveg maklegt, því ég
legg mitt eigið á líka vog og hlut
annarra, og er ekki sérlega „upp með
mer“ yfir mínum kveðskap. Eins og
þú kvað ég ekki í fyrstunni nema
við sjálfan mig, bjóst aldrei við að
Vera í flokki höfunda, og ásældist
það ekki, né reyndi að koma ár
niinni þar fyrir borð, því satt að
Segja hefði ég getað verið búinn að
koma rugli mínu út í bókarmynd,
lengu fyr en nú, því mörg ár eru
Slðan að útgefendur og prentsmiðj-
nr vóru að víkja að því við mig, að
Setjast niður og safna því handa
sér, en af því að ég var önnum kaf-
lnn, að hafa ofan af fyrir mér og
mínum, mátti ég ekki við því, ofan
á annað, að kasta í þá margra mán-
aða gjafavinnu minni við skriftir á
því, bara til að gefa prenturum at-
vinnu og útgefendum hagsvon.
Það eru eiginlega allt önnur atvik
en metnaður minn, að Andvökur
eru orðnar til. Ég lét það á endan-
um viljuglega til við vini mína, sem
borguðu mér þau vinnulaun við að
skrifa upp, sem ég setti þeim, og
allt hafa þeir viljað sem bezt gera.
Okkar á milli, ég fékk $500.00 fyrir
hérumbil 10 mánaða uppdubbun á
„Andvökum" og smá aukakostnaði.
Ég sinnti engu öðru þann tíma, og
lagði að mér. Vann sunnudaga eins
og sýkna. Auðvitað er ég óæfður
bóndi við bókaritun, og vönum
seinni, en að náttúrufari er ég ekki
ókjörnari til þess en algengt er. Ég
er nú að segja þér frá þessu, af því
ég veit ekki nema að þú hafi eins
mikið gaman af að heyra það og
sumt annað, sem almennara væri.
En svo ég komi að því sem ég
hvarf frá: mér er nærri sárt um
alla sem við kveðskap fást, en ég
ýti aldrei undir þá. Skáldskapur er
„brauðlaus list“ og allra veðra von-
brigðulust. En mönnum, eins og mér
og þér, getur verið hamingja að
kveðskapnum, sú, „að kveða sér til
hugarhægðar11, og bjóða ekki annað
fé við því, né framavonir. Auðvitað,
ef eitthvað verður fram yfir, er það
£ott.
Vísurnar, sem þú sendir mér núna,
líka mér allar vel. Bezt þykir mér
„Litið um öxl.“ En ef til vill, er
það fremur tilfinning mín, en kost-
ur vísunnar sjálfrar fram yfir hinar,
sem því veldur. Ég er efni hennar
kunnugur, og sárnar oft við forlög-