Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Qupperneq 126
108
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
landnámsmaður í Mountainbyggð, og
Ingibjörg Jóhannesdóttir frá Hofstaða-
seli í Skagafirði. Systir dr. Vilhjálms
Stefánssonar landkönnuðar.
8. Mrs. Erikka Johnson, ekkja Geirs
Johnson, frá Arborg, Man., á sjúkra-
hæli í St. Boniface, Man., áttræð að
aldri.
Thorarinn Sveinn ( T. S.) Gudmund-
son byggingameistari, í Grand Forks,
N.Dak. Fæddur að Mountain, N.Dak.,
24. febr. 1907. Foreldrar: Guðmundur
og Guðrún Jónsdóttir Guðmundsson, er
bjuggu skammt frá Mountain. (Sambr.
dánarfr. hennar 26. nóv. 1962 hér að
framan). Um allmörg undanfarin ár
búsettur í Grand Forks.
13. Ólöf Johnson, kona Lárusar Þórar-
ins Johnson, á heimili sínu að Lundar,
Man. Fædd 12. jan. 1903. Foreldrar:
Steinn og Helga Dalman, er bjuggu í
grennd við Lundar.
16. Rannveig Kristín Guðmundsdóttir
Sigbjörnsson skáldkona, í Foam Lake,
Sask. Fædd 2. des. 1880 í Bolungarvík.
Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Gróunesi í Gufudalssveit og
Steinunn Bergsdóttir frá Bolungarvík.
Flutti vestur um haf til Winnipeg 1902,
og hafði lengstum átt heima í Leslie,
Sask. Gaf út smásagnasöfn bæði á ís-
lenzku og ensku, og hafði ritað fjölda
greina í vestur-íslenzku vikublöðin og
víðar.
23. Hallur Johnson, fyrrum til heim-
ilis í Arborg, á sjúkrahúsinu að Gimli,
Man., 84 ára gamall.
26. Mrs. Gróa Björnson, í Winnipeg,
88 ára gömul. Hafði átt heima í Winni-
peg síðastliðin 60 ár.
27. Mrs. Jónína Christie, að heimili
sínu í Winnipeg, 84 ára að aldri. Ekkja
J. Guðmundar Christie, er lengi rak
hótel á Gimli og síðar kvikmyndahús í
Winnipeg.
27. Sigurjón Björnsson, í Blaine,
Wash. Fæddur 10. des. 1872 að Stóra-
Bakka í Hróarstungu í Norður-Múla-
sýslu. Foreldrar: Björn Sigurðsson frá
Straumi í sömu sveit og Guðrún Jóns-
dóttir frá Litla-Bakka. Fluttist vestur
um haf 1903, og var framan af árum í
Winnipeg og Argylebyggð í Manitoba,
en síðan 1930 í Blaine. Mjög bókhneigð-
ur maður og félagslyndur.
27. Allan Jóhannesson smiður, á Al-
menna spítalanum í Winnipeg, 73 ára
gamall. Fæddur í Glenboro, Man., en
hafði átt heima í Winnipeg undanfarin
67 ár.
MARZ 1963
2. Helgi Thordarson, á elliheimilinu
Betel að Gimli, Man., 87 ára að aldri.
Kom vestur um haf til Kanada um
aldamótin og var bóndi að Arnes, Man.,
þar til hann flutti til Gimli 1942.
6. Mrs. Sigríður Hurdal, ekkja Hjartar
Hurdal, á sjúkrahúsi í Ashern, Man.,
71 árs gömul.
7. Mrs. Sigríður J. Gunnlaugson, kona
Gunnars Gunnlaugson, á heimili sínu í
Winnipeg, 68 ára að aldri.
13. Thorsteinn O. Thorsteinson járn-
brautarvélstjóri frá St. James, Man., á
Almenna spítalanum í Winnipeg, 65
ára gamall. Fæddur að Willow Island,
Man., en búsettur í Winnipeg síðastliðin
40 ár.
14. Bjarni M. Loftson, að Lundar, Man.,
níræður að aldri.
16. Kristján Jóhannes Björnson, á
sjúkrahúsinu að Gimli, Man., 79 ára
gamall. Fæddur í Riverton, Man., og
búsettur þar ævilangt.
17. Stefán Jóhannesson (Johnson), á
sjúkrahúsi í Winnipeg. Fæddur að Litla-
Ósi í Húnavatnssýslu 4. nóv. 1869. For-
eldrar: Jóhann Helgason og Ósk Þor-
kelsdóttir. Fluttist ungur vestur um
haf, átti lengi heima í Glenboro, Man.,
en síðan 1920 í Winnipeg.
19. Mrs. Lois Jean Thompson, kona
John Thompson, frá Blaine, Wash., á
sjúkrahúsi í Bellingham, Wash. Fædd
í Mozart, Sask., 13. nóv. 1932. Foreldrar:
Gísli Guðjónson og kona hans. Fluttist
með þeim til Blaine 1944.
22. Ingibjörg Eggertson, kona Sigur-
björns (Björns) Eggertson kaupmanns,
að heimili sínu að Vogar, Man. Fædd
25. ágúst 1896 á Sleðbrjót í Norður-
Múlasýslu. Foreldrar: Jón Jónsson al-
þingismaður á Sleðbrjót og Guðrún
Jónsdóttir. Kom vestur um haf með
þeim 1903.
23. John Finnbogason kaupmaður, í
Langruth, Man. Fæddur á íslandi 1892.
Hafði rekið verzlun í Langruth í rúm-
lega 50 ár. Tók mikinn þátt í félags-
málum byggðar sinnar.
24. Bergrós J. Helgason, kona Þor-
steins (Steina) Helgason, á heimili sínu
í Riverton, Man., fimmtug að aldri. For-
eldrar: Halli Hallson og kona hans í
Winnipeg.
30. Thorarinn J. Thorarinson, á Al-
menna sjúkrahúsinu í Winnipeg, 71 árs
gamall.