Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Page 135
þingtíðindi
117
aðstæðum, en jafnframt notið í þeim
efnum góðrar aðstoðar ýmissa velunn-
ara félagsins nær og fjær.
Fyrrv. forseti félagsins og heiðurs-
félagi, dr. Valdimar J. Eylands,, hefir
nú sem áður í ræðu og riti slegið á þjóð-
fæknisstrenginn og hvatt til varðveizlu
islenzkra menningarerfða. Hann er
einnig jafnan reiðubúinn til þess að
verða félagi voru að liði, þegar til hans
er leitað.
Varaforseti, séra Philip M. Pétursson,
flutti ræðu á samkomum deildanna í
Selkirk og á Lundar. í fjarveru forseta,
afhenti hann Hon. Duff Roblin, forsæt-
israðherra Manitobafylkis, heiðursfé-
fagaskírteini Þjóðræknisfélagsins við
virðulega athöfn, að viðstöddum flestum
stjórnarmönnum félagsins. Varaforseti
hafði einnig samkomustjórn með hönd-
urn í hádegisverði þeim, sem félagið hélt
fil heiðurs ferðamannahópnum frá ís-
jandi, og ávarpaði hina góðu gesti í fé-
iagsins nafni. Einnig flutti hann kveðju
■Pjoðræknisfélagsins á íslendingadegin-
uni að Gimli. Votta ég honum innilega
Þokk fyrir fulltrúastörf hans vegna fjar-
vistar minnar.
Ritari félagsins, prófessor Haraldur
jpessason, hefir á liðnu ári eins og undan-
tarið verið athafnamikill að útbreiðslu-
°g fræðslumálunum. Síðastliðið vor
terðaðist hann vestur á Kyrrahafsströnd
?g flutti erindi á samkomum deildanna
1 Vancouver og Blaine; ennfremur á
samkomum deildanna í Selkirk, Árborg
að Gimli, á almennri samkomu í
f-denboro, og á sumarmálasamkomu í
Wmnipeg. Hann skipar forsetasess í
eeildinni „Frón“ og á einnig sæti í ís-
tendingadagsnefndinni. Auk þess hefir
vann á árinu ritað mikið í vikublað
v.°rf> _ og annaðist ritstjórn þess meðan
ntstjórinn var í íslandsferð sinni, er
siðar getur. f þágu fræðslumálanna
mun og mega telja Leskaflana í íslenzku
nanda byrjendum, sem ritari og forseti
nafa samið og komið hafa um skeið í
“■'’^hergi-Heimskringlu, og átt hafa vin-
jeidum að fagna, og þá væntanlega að
emhverju gagni komið.
■rr^fnritari, Walter J. Lindal dómari.
mli fjölda greina um íslenzk
aiefni og menningarerfðir í Icelandic
^adiaii og víðar. Eins og kunnugt er,
arg hann nýlega 75 ára, og lét þá af
omaraembætti sínu, eftir 20 ár í þeim
essi við ágætan orðstír. Var honum_ á
ffrjm tímamótum, að verðugu, margvís-
sómi sýndur. Vér vottum honum
ekvn®u vora °g þökk fyrir unnin störf,
um 1 vf1Zt a® félagsmálum vorum, og ósk-
ru? ,onura sem lengstra og hamingju-
mastra ævidaga.
Féhirðir, Grettir L. Johannson ræðis-
rnaður, flutti ávarp í embættisnafni á
íslendingadeginum að Gimli, ræðu í
veizlu Þjóðræknisfélagsins til heiðurs
ferðamannahópnum heiman um haf, og
erindi á samkomu Icelandic Canadian
Club um efnahagsmál á íslandi.
Varaféhirðir, frú Hólmfríður Daníel-
son, skemmti með upplestri íslenzkra
kvæða á samkomum deilda félagsins í
Selkirk, á Lundar, í Árborg, á Gimli og
í Winnipeg. Fyrir hönd félagsins annað-
ist frú Hólmfríður einnig og undirbjó
að öllu leyti, þátttöku íslendinga í fjöl-
sóttri skrúðsýningu, er fór fram undir
umsjón Winnipeg Y.MC.A. í sambandi
við fimmtugasta ársþing aðalfélagsins
(National Council of Y.M.C.A.). Þótti
íslenzka sýningin, sem var táknræn um
bókmenntaiðju og menningarlíf þjóðar
vorrar, tilkomumikil og takast prýði-
lega.
Fjármálaritari, Guðmann Levy, hefir,
jafnhliða embættislegu starfi sínu, er
útheimtir eigi litlar bréfaskriftir, og
ýmsum nefndarstörfum, haft með hönd-
um söfnun auglýsinga fyrir Tímaril fé-
lagsins, með aðstoð féhirðis, og skuldar
félagið þeim sérstaka þökk fyrir það
starf. Fjármálaritari á einnig sæti í
stjórnarnefnd „Fróns“.
Vara-fjármálaritari, Ólafur Hallsson,
flutti ræðu um íslenzkar menningar-
erfðir á deildarsamkomu í Selkirk og
Minni Kanada á íslendingadeginum að
Gimli.
Skjalavörður, Jakob F. Kristjánsson,
gegnir, auk þess embættis síns, vara-
forsetaembætti í deildinni „Frón“, og
er ritari íslendingadagsnefndarinnar.
Forseti flutti ræðu um þjóðræknis- og
menningarmál á samkomum deildanna
í Selkirk, að Lundar, í Vancouver,
Blaine og Seattle. Ennfremur flutti
hann erindi um dr. Vilhjálm Stefánsson
á deildarsamkomum í Árborg, að Gimli,
og í Winnipeg, og ræðu um sama efni
við minningarguðþjónustu að Mountain,
N.-Dakota, er síðar var útvarpað frá út-
varpsstöð Ríkisháskólans (Univ. of North
Dakota) í Grand Forks, N.-Dakota.
Einnig flutti forseti kveðju félagsins á
íslendingadeginum í Blaine, ræður í til-
efni af Lýðveldisdegi íslands við guðs-
þjónustur í Hallson og Vídalínskirkjum
í N.-Dakota, og erindi um íslenzk efni
og norræn á ársþingi félags Rogalend-
inga Vesturheimi í Fargo, á Leifs Eiríks-
sonarhátíð í Minneapolis og Kennara-
skólanum í Mayville, N.-Dak. Frú
Margrét Beck sýndi og skýrði litskugga-
myndir frá íslandi á deildasamkomun-
um í Selkirk, á Lundar, í Árborg, að
Gimli og í Winnipeg, og ennfremur á
kvöldsamkomu Rogalendinga í Fárgo.