Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Side 137

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Side 137
þingtíðindi 119 vorra. Hurfu þau hjónin, eins og kunn- ugt er, heim til íslands síðastliðið sumar. Fyljga þeim heilhuga óskir vorar. Sam- tímis bjóðum vér innilega vel komin 1 hóp vorn vestan hafs, og hingað á þing- ið, séra Kristján Róbertsson og frú hans, sem nýlega komu hingað til lands, en hann þjónar nú Argyle-prestakalli. Verð- ur hann aðal-ræðumaður á „Frons - mótinu í kvöld, og megum vér áreið- anlega eiga þar von á snjallri ræðu. Nýkomin eru einnig heiman um haf til dvalar hér vestra Hjörtur Pálsson cand. phil. 0g kona hans, frú Steinunn Bjar- tþann cand. phil. Er hann bókavörður við íslenzka bókasafnið á Manitoba-ha- skóla. Fögnum vér komu þeirra, og hýggjum gott til að kynnnast þeim og njóta starfskrafta þeirra. í sumar, er leið, voru fimmtán ár síð- an fyrsta hópferð var farin á vegum Loftleiða frá Winnipeg til Reykjavíkur, °g skipulagði féhirðir félags vors, Grettir L. Johannson ræðismaður, hana. Síðastliðið sumar voru einnig tíu ár liðm frá því að Loftleiðir hófu reglubundnar flugferðir milli Vesturálfu og íslands, sem íslendingar beggja megin hafsms hafa ríkulega fært sér 1 nyt. Minnug þessara tveggja merkisafmæla, og 1 viðurkenningar skyni fyrir þann mikla skerf, sem Loftleiðir hafa með beinum flugferðum sínum milli íslands og Vesturheims, lagt til eflingar tengslanna *hilli íslendinga heima og hérlendis, akvað stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags- uis að bjóða Loftleiðum að eiga fulltrua hér á þjóðræknisþinginu, sem jafnframt Xpri gestur félagsins. Var það boð þeg- í®> . og Sigurður Magnússon, sem upp- lýsingastarfsemi hefir með höndum fyr- u Loftleiðir, valinn til þess að vera full- trúi þeirra og þá um leið sérstakur gestur vor. Bjóðum vér hann hjartan- lega velkominn í vorn hóp. Hann er r®ðumaður góður, prýðilega ritfær, vin- sæll maður og vel metinn, og því ágæt- ur fulltrúi félags síns og heimaþjóðar- jnnar. Flytur hann kveðjur hér á þing- inu eftir hádegi í dag, ennfremur ermdi 3 samkomu félagsins seinasta þingkvold- jo. En alltaf setur það íslenzkan svip _a þmg vort, og meiri hátíðarbrag, er ver eigum að fagna slíkum gestum sem honum beint heiman af ættjörðinni; þeir flytja hana og heimaþjóðina nær °ss og oss nær þeim. hinn svipurinn ljúfi, þitt líf og þitt mál, 1 iogum þeim hljóma, er kveður min sal, segir Stephan G. Stephansson í „Ásta- visum_ til ísland“, og minnir þar fagur- iega á náin tengsl manns og móður- ^ooldarinnar. Sú meðvitund er einnig sterk í hugum vorum, og þessvegna hit- ar það oss um hjartarætur, þegar ein- hver úr vorum hópi sýnir í verki ó- venjulega rækt til ættjarðarinnar. Það gerði hinn ágæti félagsbróðir vor, Páll Guðmundsson í Leslie, Saskatchewan, er hann í sumar gaf til Rafnseyrar mál- verk af Jóni Sigurðssyni, sem sjálfur forseti íslands og heiðursverndari félags vors, herra Ásgeir Ásgeirsson, afhenti við virðulega athöfn. En Páll hefir áður gefið stórgjafir til fslands. Heiður sé hon- um og hans höfðinglegu ræktarsemi! Þá hefir vafalaust mörgum fleirum en mér hitnað um huga, er þeir lásu nýlega í vikublaði voru tilkynningu frá herra biskupinum yfir íslandi, dr. Sigurbimi Einarssyni, þess efnis, að Ekknasjóði íslands hefði borizt eitt þúsund dollara gjöf frá íslending búsettum í Kanada, er eigi vildi láta nafns síns getið, en þessi höfðinglega gjöf var gefin til minningar um látna eiginkonu gefand- ands. Ekki veit ég neitt um það, hvort þessi maður er í Þjóðræknisfélaginu, enda skiptir það engu máli í þessu sam- bandi. En sá rausnarhugur og mannúð- ar, sem þar kemur fram, er í ætt við það bezta í íslendingseðlinu, og í anda þeirrar ræktarsemi við hugsjónina- og ættarerfðir vorar, sem er og hefir verið vígður þáttur í stefnuskrá og starfi þessa félagsskapar. Vil ég svo ljúka þeim hluta skýrslu minnar, sem fjallar um samskiptin við ísland á liðnu ári, með því að vitna til bréfs, sem mér barst alveg nýverið frá séra Jóni Guðnasyni, fyrrv. skjalaverði í Reykjavík. Eftir að hafa flutt mér og mínum hugheila blessunarósk og kveðju, fórust honum þannig orð: „Og sömu ósk ber ég í brjósti um alla landa vestra. Ég get aldrei slitið mig frá þeim — og reyni að vísu ekkert til þess. Þrátt fyrir fjarlægðir í rúmi erum við heima og þið vestra „dropar tveir, en sami sjór“ í þjóðahafinu. Mun jafn- vel svo verða enn langa framtíð, hvort sem þess gætir á ytra borðinu eða ekki“. Þetta er vel mælt og viturlega, en séra Jón hefir áður sýnt í verki í merk- um ættfræðiritum sínum djúpstæðan á- huga sinn á framhaldandi ættar- og menningartengslum milli íslendinga austan hafs og vestan; meðal annars átti hann mikilvægan þátt í undirbún- ingi hins mikla og merka rits: Veslur- íslenzkar æviskrár, Vil ég jafnframt minna á beiðni séra Benjamíns Krist- jánssonar, er út kom nýlega í Lögbergi- Heimskringlu, varðandi annað bindi ritsins, sem hann hefir nú í undirbún- ingi, og hvetja fólk vort eindregið til þess að bregðast sem bezt við þeirri málaleitun hans. Slík samvinna er það minnsta sem vér getum lagt til fram-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.