Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1963, Blaðsíða 139
þingtíðindi
121
framkvæmdum í málinu. Samþykkti
stjórnarnefndin þá tillögu nefndarinn-
ar. Eins og vanalegt er, verða skýrslur
deilda einnig fluttar hér á þinginu, og
vil ég fyrirfram í nafni félagsins, þakka
ollum þeim, sem á þeim vettvangi hafa
lagt hönd á plóg til viðhalds og eflingu
þjóðræknismálanna á liðnu starfsári.
Niðurlagsorð
Dregur nú að lokum þessa máls, en
aður en ég lýk máli mínu, vil ég _leyfa
mér að tilkynna þingheimi að ég sé
mér eigi, af mörgum ástæðum fært að
taka aftur kjöri í forsetaembættið, þó
að þess kynni að verða óskað, enda
hefi ég nú skipað forsetasessinn í sam-
fleytt sex ár. Með tilliti til þeirrar á-
kvörðunar minnar, gríp ég tækifærið
tú þess að þakka hjartanlega þann
soma og þá tiltrú, sem þið í Þjóðrækn-
isfélaginu hafið sýnt mér með því að
kjósa mig í virðulegan og ábyrgðarmik-
inn forsetasessinn hvað eftir annað. Sér-
staklega vil ég jafnframt þakka stjórn-
frnefndinni framúrskarandi samvinnu
n forsetaárum mínum. Um hitt er ó-
Þarft fyrir mig að fara mörgum orð-
að ég mun halda áfram að vinna
Þjoðræknisfélaginu og öðrum félags- og
menningarmálum vorum allt það gagn,
sem ég má, og eins lengi og við hjónin
eigum þess kost, þótt um langan veg
kunni að verða að sækja, munum við
sitja þjóðræknisþingin hér í borg.
Þjóðræknisfélagið á sér langa og
roýrka sögu að baki, og er fyrir löngu
buið að margréttlæta tilveru sína. Það
hefir frá fyrstu tíð átt mikilvægu hlut-
yerki _að gegna í félagsmálum og menn-
rrugarlífi vor íslendinga vestan hafs, og
uo öllu athuguðu, mun mega segja, að
það eigi nú enn meira hlutverki að
Segna, eins og háttað er félagsmálum
vorum. óneitanlega liggur þungur
straumur oss í fang í þjóðræknismál-
um vorum, en eigi getum vér verra
gert í þeim efnum eða öðrum, heldur
en að láta hugfallast og ganga upp-
Slafarstefnu á hönd, því að það er
greiðasti vegurinn til þess að sjá hallir
smar hrynja til grunna og drauma sína
Verða að ösku.
Hitt er mannsæmra, að skipa sér fast-
er um göfugt merki félags vors, að
sameina krafta vora í anda spaklegra
orða Jónasar Hallgrímssonar um mátt
samvinnunnar:
Sterkur fór um veg,
þá var steini þungum
lokuð leið fyrir.
Ráð at hann kunni,
þó ríkur sé
og hefðu þrír um þokað.
Enn er hér ofan moldar í Vesturheimi
stór hópur fslendinga, innan og utan
félags vors, sem ann íslenzkum erfðum.
Ykkur hér samankomin, sem orð mín
heyrið, og aðra, sem kunna að lesa þau,
og annt er um varðveizlu og ávöxtun
menningarerfða vorra, kveð ég til dáða
í orðum Davíðs skálds Stefánssonar:
Gakk þú heill að hollu verki,
heimta allt af sjálfum þér.
Vaxa skal sá viljasterki,
visna hinn, sem hlífir sér.
Já, skáldið hefir laukrétt að mæla,
menn vaxa af því andlega, og að mann-
dómi, að unna og vinna göfugum mál-
stað. Svo býð ég yður velkomin á 44.
ársþing félags vors, til þess að njóta
ánægjunnar, sem fylgir því að koma
saman sem íslendingar, og til þess að
vinna að viðhaldi og framgangi hjart-
fólginna áhugamála vorra.
Samkvæmt sérstakri samþykkt út-
gáfunefndar Tímaritsins verður aðeins
birtur örstuttur útdráttur fundargern-
inga þjóðræknisþings. Hins vegar verða
þeir í heild sinni sérprenaðir eða fjöl-
ritaðir.
Fulltrúar hinna ýmsu deilda á þing-
inu voru: Frá „Fróni“ í Winnipeg:
Haraldur Bessason, Oddný Ásgeirsson,
Kristín Jonhson, Hrund Skúlason, Guð-
mann Levy, Jakob F. Kristjánsson,
Soffía Benjamínsson, Gunnar Baldwins-
son og Jón Hafliðason; Frá deildinni
„Gimli“, Jónas Jónasson, J. B. Johnson,
Sigurbjörg Stefánson og Margrét Sig-
urdson. Frá „Ströndinni“ í Vancouver
og „öldunni“ í Blaine, Marja Björnson;
Frá „Esjunni“ í Árborg: Guðrún Magn-
ússon, Inga Hólm, Björgvin Hólm, Gest-
ur Pálsson, Herdís Eiríksson og Guðrún
Jónasson; Deildin „ísland“ í Morden,
Man.: Jón B. Johnson; Deildin „Lundar“:
Gísli S. Gíslason og J. B. Howardson;
Deildin „Brúin“ í Selkirk: Sigrún Nor-
dal, Guðrún Vigfússon.
Fjölmargir aðrir voru mættir á þingi.
í dagskrárnefnd þingsins voru skip-
uð: Dr. Valdimar J. Eylands, J. B.
Johnson og Herdís Eiríksson. Formaður
nefndar, dr. Eylands flutti þegar skýrslu
nefndarinnar, sem var í meginatriðum
svipuð skýrslum frá fyrri árum.
f kjörbréfanefnd voru skipuð: Guð-
mann Levy, Kristín Johnson og Guðrún
Jónasson.
Fjölmargar kveðjur voru fluttar þing-
heimi, sumar af segulbandi, aðrar voru
lesnar upp af forseta. Kveðjur bárust
frá: Sigurði Sigurgeirssyni forseta Þjóð-
ræknisfélagsins á íslandi, dr. theol. Ás-