Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Side 31
hafið í ljóðum vestur-íslenzkra skálda
13
eftir tilvitnunum í kvæðin. Hins
vegar hefi ég ekki farið yfir vestur-
íslenzk blöð og tímarit, enda hefi
eg fæst þeirra við höndina. Vel má
það vera, að þar sé að finna einhver
kvæði um sömu efni, sem vert hefði
verið að geta sérstaklega. Hvað sem
því líður, má óhætt fullyrða, að
framantalin dæmi eru næg sönnun
þess, að sævarljóðin, í beinni og ó-
beinni merkingu eru snar þáttur og
harla eftirtektarverð í skáldskap
íslendinga vestan hafs, og jafnframt
glöggt vitni þess, hve fasttengd þau
skáld eru æskuumhverfi sínu, ætt-
erni og erfðum.
Athugasemd frá riisijórum
Höfundur greinarinnar hér að
Haman, dr. Richard Beck, hefir um
^argra áratuga skeið lagt þessu
tímariti efni, bæði í bundnu máli og
óbundnu. Þangað til nú í ár hefir
hann lengst af átt heima svo til á
itaestu grösum við ritstjórnarskrif-
ftofu okkar, því að ekki er lengi far-
ið milli Grand Forks og Winnipeg.
^fikil breyting hefir nú orðið á
þessu. Dr. Richard Beck á ekki leng-
Ur heima í Grand Forks, og finnst
mörgum heldur erfitt að átta sig á
beirri staðreynd. Síðast liðið vor
fóru þau hjónin, dr. Beck og frú
^fargrét, búferlum vestur til Vic-
t°fia á Vancouvereyju. Hafði pró-
fessorinn þá nýlega fyllt sjöunda
aratuginn og þar með lokið óvenju
fórtgum og viðburðaríkum starfs-
ferli sem opinber embættismaður.
^ó að dr. Richard Beck hafi látið
af epinberu embætti, mun hann ekki
minnka við sig störfin, heldur sitja
við skriftir og rannsóknir myrkr-
anna á milli. Þau sannindi má með-
al annars ráða af því, að þó að hann
hafi nú flutzt tvö þúsund mílur í
burtu frá Tímariti Þjóðræknisfé-
lagsins, er hann jafnnærri því og
fyrr.
í þessum árgangi Tímaritsins eru
dánarfregnir teknar upp að nýju.
Er það gert í því skyni að koma að
nokkru leyti til móts við óskir ým-
issa þeirra fulltrúa, sem sóttu síð-
asta þjóðræknisþing og annarra les-
enda, sem töldu að þessir þættir
mættu alls ekki niður falla. Eins
og á undanförnum árum. hefir dr.
Richard Beck annazt samantekt
þáttarins, og nær skýrsla hans nú
til tveggja ára.
Ritstj.