Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 40

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 40
22 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA voru byggðar á 100 ára frásögn, lík- lega frá Weyse hinum danska, sem einna fyrstur reyndi að safna lög- um frá Islandi og birti að sögn eitt, sem Páll Melsted söng fyrir hann. Að minnsta kosti tíu árum áður en Bantock safnaði í þessa bók, hafði þjóðlagasafn séra Bjarna Þor- steinssonar verið prentað, og var því þessi fáfræði lítt afsakanleg. Eins og þetta stórmerkilega safn ber með sér, skipta lögin, sem þar eru nótusett mörgum hundruðum. Langflest eru að vísu rímnalögin, og þau hefir Bantock ef til vill ekki talið þess virði að nefna. En auk þeirra eru samt mörg vikivakalög, tvísöngslög og vanaleg sönglög auk kirkjusöngva (Þorlákstíðir) s e m hvergi finnast annarsstaðar. Um uppruna sumra þessara þjóðlaga hefir náttúrlega verið þráttað fram og aftur; en þótt sum kunni að bera á sér útlendan hreim, þá er það ekkert undarlegra en ljóðagjörðin sem oft er staglazt á, að sé af út- lendri fyrirmynd. Séra Bjarna var þetta ljóst, en hann hikar ekki við að kalla það íslenzk þjóðlög, sem hvergi, honum vitanlega, voru ann- arsstaðar sungin en á íslandi. Þetta varð samt til þess, að hann varð of auðtrúa, blessaður karlinn. Læknir einn í Húnaþingi eða Skagarfirði sendir honum lag á nótum, sem hann sagðist syngja við hestavísu og telur hiklaust íslenzkt rímnalag. Mér fannst eitthvað kunnuglegt við nóturnar og fór að raula það eftir bókinni, og fann þá, að nótu fyrir nótu var þetta enskt húsgangslag við langa raunarollu, sem heitir Clementine. Kvæðishöfundur er í ástum við stúlkuna, sem gengur á Nr 9 skóm. (nine rímar við tine í enda nafnsins). En eftir margar vís- ur deyr svo stúlkan og er skáldið mjög leitt yfir því (dreadful sorry, Clementine). Bjama grunar ekkert um þetta lag, en á einum eða tveim- ur öðrum stöðum er hann ekki alveg ugglaus um upprunann. 5. Oft heyrir maður talað um stefn- ur og strauma í skáldskap. Stundum verða stefnurnar nokkuð krókóttar og straumarnir líkari hringiðu. Ein- ar Ben og St. G. byrjuðu í drembi- læti og sérvizku, en þeir uxu svo fljótt upp yfir sjálfa sig og allan þyrking og stolt, að allt slíkt gleymdist eða var talið þeim til hróss. Gömlu og yngri lýrisku skáldin áttu því um tíma ekki uppá pallborðið. Nú er svo komið, síðan Davíð dó og Tómas þagnaði, að eng- inn, sýnist standa öðrum hærra á föðurlandinu, nema ef telja skyldi rímleysingjana (atómskáldin), sem þó virðast flest deyja jafn óðum og þau fæðast. En þetta reis allt útaf gömlu bréfi frá kærum fornvini, sem kannske hefir skrifað það til að stríða mér. Bréfið var víst skrifað ekki löngu eftir að þeir Stefán frá Hvítadah Davíð Stefánsson, Örn Arnar og einhverjir fleiri, sem þagnað hafa síðan, voru að ryðja sér til rúms- Seinna í bréfinu stendur: Nú eru til dæmis Hannes Hafstein og Þor- steinn Erlingsson ekki lengur taldir stórskáld. Þorsteinn er helzt þekkt' ur fyrir haglega rímaðar hringhend- ur. Þeir ruddu enga nýja braut. Svarið var eitthvað á þessa leiö- Hver er svo þessi nýja braut? Gset1 nokkur af þessum nýju gæðingun1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.