Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 43

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 43
dagbókarbrot 25 því bærist á. Skotland var mjög óslétt tilsýndar, eigi ólíkt gamla Islandi, ég sá samt, að þar voru ttieiri mannvirki. 18. ág. Gott og hlýtt veður en eigi sólskin. Ég kom til Granton kl. 6 f. h. Tollheimtumaður kom um borð og tók nokkuð af tóbakinu mínu. Ég hafði nærri 5. pd., en hann sagði að ég yrði að borga 24 kr. í toll af því, en sagði að ég mætti hafa y2 pd. tolllaust. Ég var að við hann, þangað til hann lét mig halda 3- pd., en hitt tók hann. 19. ág. Granton er eigi mjög fag- ur staður. Ég fór kl. 12. á hádegi með vagnalest frá Granton til Edin- borgar. Aðeins hálftíma stanz þar. Edinborg er mjög fögur borg. Kom- um til Glagow kl. 2.30. Fór til Mr. A-Uan til Hotel Ansor. Þar voru margir Svíar og Norðmenn. 20. ág. Dimmviðri og rigning Óðruhvoru. Ég skoðaði mig dálítið um í Glasgow. Það er reyndar bæði stór og skrautlegur staður. Þaðan fór ég um borð á Allanlínu skipið Waldensian kl. 12, á hádegi. Allir enskir á skipinu, flestir farþegar órukknir, og ég heldur í þungu skapi. 21. ág. Veður bjart og gott, hægur suðvestan vindur. Margir með sjó- sótt, einkum kvennþjóðin, ég eigi með öllu frí. Þá byrjaði ég að rita eusku en það var ekki neitt, sem þýddi. Tómas félagi minn reyndi mikið að tala ensku við mig. Það Var góðmannlegur maður mikið svipaður Jóni á Auðólfsstöðum. Ég varð áttavilltur á Skotlandi og eftir það á allri ferðinni. 22. ág. Sólskin, norðanvindur. Allt tíðindalaust. Ég við beztu heilsu og með framúrskarandi matarlyst!!! 23. ág. Norðan kuldastormur; gjörði dynjandi skúr um kveldið; ég hef aldrei séð annað eins. Tíð- indalaust, kvennþjóðin farin að líta til mín hýru auga, mér lítið um það gefið!!! 24. ág. Norðanvindur, gott veður. Mikið um dýrðir á skipinu; messað. Presturinn reifst við söfnuðinn eins og grimmur hundur. Allir sungu og þó var söngurinn eigi meiri heldur en þegar einn góður raddmaður söng heima á Fróni. Að lokinni messu kom maður með dekkaðan disk og hver maður borgaði sinn pening fyrir þessa sáluhjálp, er presturinn hafði gefið þeim, ég borgaði eitt penny, og bölvaði presti í hljóði fyrir ágirndina. Tómas fé- lagi sagði mér, að prestur hefði gefið það fátækum og föðurlausum sjófarendum. Næstu fjóra daga ber ekkert til tíðinda. Ferðin gengur vel nema einn dag. „ ... Norðanrok og kuldi; margir með sjósótt. Sigldum fram- hjá hárri eyju kl. 10. e. h. 29. ág. Sigldum fram með Nýja Skotlandi kl. 12. á hádegi. Það var að sjá með fjöll og dali eins og gamla landið, alþakið hrikalegum skógi, og það eins uppi á háfjöllum sem neðst í hlíðum eða dölum, byggð að sjá heldur lítil. Víðast er bratt og sumstaðar að sjá skriðuföll í sjó ofan. Þar næst kom Nýfundna- land, mjög svipað Nýja Skotlandi. Þetta kveld var heldur glatt á skip- inu. Það gaf sig einn emigrantinn út fyrir að vera prestur og gaf sam- an í hjónaband tvær heiðurspers- ónur; brúðguminn var háskozkur,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.