Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 44

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Page 44
26 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA heldur ófélegt grey, en hún var götudrós frá Skotlandi. Presturinn tautaði heillanga romsu yfir brúð- hjcnunum, og mátti þá heyra stóra hlátra. Loks tóku þau höndum sam- an, en það ætlaði að ganga tregt að fá þau til að brúka vinstri höndina. Þar eftir var dansað, sungið og drukkið. Að því búnu voru brúð- hjónin lokuð inni í myrku herbergi um stund. 30. ág. Sólskin, vestan kulda- stormur um morguninn; land á báðar hliðar. Við komum til Quebec kl. 10. e. h. í bezta veðri, mikið um dýrðir. 31. ág. Sólskin og bezta veður. Við fórum í land kl. 8. f. h. Quebec er stór bær en eigi fagur. Þar var skoðað ofan í kistur okkar emi- granta. Við fórum frá Quebec kl. hálf þrjú áleiðis til Toronto. Það vovu allir mjög kátir. Ég varð þá að skilja við félaga mína, sem voru með á sjóferðinni og sögðu þeir allir „Good bye“ til mín að skilnaði. Við komum um kveldið kl. 7 til Rich- mond og kl: 12 til Montreal. 1. sept. Héldum áfram ferðinni til Toronto í allan dag og alla nótt. 2. sept. Fórum framhjá Toronto kl. 4. f. h. og komum til Port Huron um hádegisbilið; þá var rigning af og til. Það voru margir Svíar og Norðmenn með. Þar vorum við all- an daginn og lágum þar á gólfinu um nóttina í miður fínu húsi. 3. sept. Rigning mikil um morgun- inn. Fórum fram hjá Port Huron um hádegi og héldum áfram allan daginn. Ég var þá af og til í vondu skapi. 4. sept. Sólskin og hiti, komum til Chicago kl. hálf átta um morgun- inn. Það er mjög stór bær en ekki mjög fagur. Þar voru allir mjög fautalegir og þursafengnir. Það eru 1020 mílur frá Quebec til Chicago. Fórum þaðan kl. 10. f. h. og héldum áfram allan daginn og alla nóttina. 5. sept. Dynjandi rigning um morguninn en gjörði sólskin og hita seinni partinn. Ég kom til St. Paul kl. 7. f. h. Þar mátti ég bíða þangað til kl. 3:30 e. h. Komum til Kasóta kl. 8. e. h. Ég gisti þar hjá norskum múrara, átti beztu nótt en það kost- aði dollar. 6. sept. Ég fór frá Kasóta kl. 8. f. h. og kom til Minneota kl. 2. e. h. Þar sá ég fyrsta íslendinginn frá því ég fór frá Akureyri. í Minneota var ég hjá Jóhannesi Frost frá Geitafelli í góðu yfirlæti. Þar voru flestir ís- lendingar. 7. sept. Ég fór frá Minneota til Lofts fornvinar míns að Lundar- brekku. Hann og Aðalbjörg frænka mín tóku mér eins og ég hefði verið sonur þeirra. Loftur þekkti mig, en frænka mín eigi... Ég fór með Lofti til Minneota og kom við hjá Jónatan á Eiðum .. Seinni part dagsins gekk ég að Víðirhóli að horfa á þresk- ingu. Þann 10. sept., byrjaði ég að vinna við þreskingu hjá Guðmundi Péturssyni að Glæsivöllum. Nokkuð strangur afmælisdagur — Allir hafa 1 úollar á dag við þreskingu — Ég hjálpaði Lofti við þreskingu um morguninn en fór svo til Snorra a Högnastöðum um hádegið og var við þreskingu þar. Um kveldið gjörði rigningu, þrumur og eldingar svo að það varð all bjart eftir dag' setur. Vann hjá Snorra fram undir ha- degi en labbaði svo til Lofts og sa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.