Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Blaðsíða 45
dagbókarbrot
27
þar fyrst aðferð að keyra hey og
höggva maís.
— Við Loftur gengum til Sigur-
bjarnar, en hann var ekki heima.
fór til Bjössa á Stórholti og það-
an heim var þá með ólund og leið-
indi.
Næstu dögum ver Páll svo í heim-
sóknir til nágrannanna. „ ... Hjó
ofurlítið af korni fyrir Loft — Ég
var hjá Sveinbirni að læra að
Piægja —. í dag gekk ég 14 mílur
°g Loftur með til norsks snikkara
því ég var ráðinn hjá honum mán-
aðar maður upp á $16.00. Mér þótti
gott að koma þangað — Ég byrjaði
að plægja hjá Óla Ansette. Það gekk
slysalítið. Ég vann nú þann daginn
fyrir ekkert, því ég var vankunn-
andi — Tvo fyrstu dagana plægði
eg 3 ekrur og það kallast gott, þó
vanir séu“.
Það sem eftir er af október dvelst
^áli í þessu nágrenni, fer bæ frá
hæ eftir því sem vinna gefst, þresk-
*ng, plægingar, maíshögg og fjósa-
ttiokstur. 30. okt. Norðankuldi, ég að
P^sogja í ergelsi fyrir 50c um daginn
2. nóv. Norðan stormur, mikið
frost. Ég fór til kirkju. Það var
Predikað, gefin saman hjón, skírð
tvö börn og nokkrir tóku sakra-
^rontið; mér sýndist það líkt og
heima. Ég var einn heima um kveld-
og mjólkaði kýrnar og þótti það
eksi ágangsverk! — Ég ók til Grenil
(14 mílur.) — All góður bær —
^renil líkist sumum stöðum á ís-
tandi. Þar eru klappir og klettar, á
rennur í gegn um bæinn og þar er
^álitili foss —“. Það sem eftir er af
n.ov. er Páll í vinnumensku fyrir
fimmtíu cent á dag. Hann vinnur
°ll verk sem fyrir koma, hirðir gripi
og plægir eða heggur skóg.“ —
3. des. Logn, snjóaði dálítið um nótt-
ina. Fyrsta sinn sem ég sá snjó í
Ameríku — Vinnan sama —“.
Nú versnar tíðin og vinnu er enga
að hafa. Hann er nokkra daga
hjá norskum manni að bíða eftir
kaupinu sínu „— Ég vinn hér lítið
eitt fyrir mat“, svo fer hann til
landa sinna.
„— Ég fór til Sigurbjörns og verð
hjá honum meðan hann er að keyra
eldivið til Minneota. Aðfangadagur.
Sólskin, norðanstormur og grimmd-
ar frost. Ég fór heim til Lofts og
gjörði mér góða skemmtun um
kveldið með samræðum við hann.
Jóladagur. Norðan hríðar veður.
Ég fór til Eiríks á Hólum og var
þar til kl. þrjú um nóttina. Þar var
dansað, drukkið og sungið. Ég spil-
aði á fiðluna mína. Skemmtunin var
all góð. — Fór í kveld til Sigur-
björns og vakti alla nóttina við að
spila vist — og höfðu ýmsir betur“.
Fyrsti janúar 1880 rennur upp með
sólskini og þíðu og fyrsta vikan er
mild og góð. Páll notar tímann til
að heimsækja og ræða við landa
sína og leita sér að jarðnæði. Um
miðjan janúar fer hann að læra. „—
Fór til Snorra og byrjaði að lesa
ensku.... Ég að læra og gekk seint
— Ég að læra með sveittan skall-
ann.... Allur skólinn með sveittan
skalla.“
Hann sækir skólann til 5. marz
og fer þá aftur til Lofts. Lífið virð-
ist hafa verið tilbreytingarlítið þenn-
an tíma. Hann er samt enn að leita
að landi og hefir skroppið einu
sinni til Minneota og af og til til
nágrannanna.
Eftir skólalok léttir hann sér upp