Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Blaðsíða 46
28
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
við að spila „Lomber“ og fara á
tvo dansleiki, en er þess á milli í
jarðnæðisleit og einhverjum bú-
manns hug. „— Ég gekk ofan til R.
Veland, vildi kaupa uxa, það gekk
eigi, fór heim um kveldið þreyttur
og uxa laus. — Ég fór í businesstúr
með Snorra, ætlaði að fara að
stökkva í að kaupa kvart. Við ókum
8 mílur norður fyrir Minneota og
til baka um kveldið, business laus-
ir.“ Þá fer hann að bjóða sig í vinnu-
mensku, en allstðar er sama sagan
— engin vinna —.
„4. apríl. Við Frank (hann hefur
ekki minnzt á Frank fyrr) fórum til
Marshall með föt okkar í vinnu von.
— Við Frank að höggva eldivið,
hörð vinna — lítil laun —... Við
Frank fórum til Minneota, vorum
þar um nóttina.... Við að höggva
eldivið til miðdags. Ég fór heim með
Snorra og var í illum ham, reiður
við allt... 9. apríl. Mikill sléttu-
eld.ur. 11. apríl — Ég var við messu
hjá séra Jóni Bjarnasyni. Góður
dagur.“
Frá 12-16 apríl vinnur Páll af og
til við eldiviðar högg í Marshall.
Vinnan er erfið og illa borguð og
hann óánægður með lífið.
17. apríl byrjar hann svo að vinna
á járnbrautinni. Veðrið er vont og
vinnan erfið, „... Rigning, lítil
vinna. Ég barðist við írskan mann
um kveldið, lagði hann á bak ofan
í for.“ Allan maí er hann við járn-
brautarvinnuna og eina tilbreyting-
in er járnbrautar ferð til Minneota
um hvítasunnuhátíðina.
„1. júní. Ég var um kyrrt í Mars-
hall. Fékk bréf að heiman frá pabba,
Dóra bróður og Páli mági. Frétti
lát Guðrúnar systur minnar. Ritaði
Páli og pabba lítinn miða. Það var
enginn gleðidagur, því ég var illa
undir búinn fyrir þær fréttir.
Ég fór frá Marshall til Minneota
með járnbrautinni og um kveldið til
Magnúsar Gíslasonar og var þar um
nóttina.... Við Dalman gengum til
Lake Benton og svo til Aurora,
keyptum ticket til Volga og skók-
umst tólf mílur til Norland og lágum
þar í vagni um nóttina. Keyptum
far til De Smith, gengum þaðan tíu
míiur.... Höfðum eina máltíð um
daginn. — Lítið um peninga —
Fengum fría ferð tuttugu mílur,
sváfum ekkert um nóttina.... Við
keyptum máltíð fyrir 36 cent, geng-
um 30 mílur. Réðum okkur í vinnu;
voruð orðnir lamaðir.
7. júní. Við vinnum í ergi, hörð
vinna (hann segir ekki við hvað),
kaup $1.50, borð $3.42 um vikuna.
8. jan., regn, drykkjuskapur, unnið
eina og hálfa klukkustund ... regn,
kuldi, engin vinna. Við Dalman
höfðum grimmdar áflog við íra um
daginn og höfðum sóma af. Fórum
þaðan um kvöldið fimm mílur upp
eftir og vorum þá 25 mílur vestan
við James-river. Þar fengum við
vinnu.... Ég lasinn en vann þó.. •
Ég var mikið veikur í höfði en vann
þó til miðdags.... Ég er þungt hald-
inn af mislingum.
Ég er með óráði. Menn héldu að
ég ætlaði að hafa heimaskifti.
19. júní. Ég er lítið eitt betri og
mér var ekið ofan til Huron, það
var harðleikið ferðalag. Ég var þar
nóttina, fékk meðöl og batnaði dálít-
ið.... Við héldum áfram allan næsta
dag og lágum úti um nóttina. Héld-
um áfram, lágum úti, fengum regn
og flugur. Við náðum ofan til Volgn,