Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Blaðsíða 47
dagbókarbrot
29
lágum úti.... Við slógum niður
hveiti (líklega fyrir mat)... Náðum
°fan til ísl. Ég gisti hjá Hjálmari,
þeim sem ók mér ofan. 26. júní. Ég
Pillaði mig heim til Lofts og varð
feginn að hvílast.
27. júní. Haldinn prestafundur
hjá Birni á Stórholti.... Við Dal-
^an urðum fyrir því að elta uppi
alla þá sem eigi komu á fundinn
°g biðja þá að mæta á fundi íslend-
inga í Lincoln City, 4. júlí.“
•iúlímánuður er erfiður, vinna
sama og engin nema við að höggva
°g hlaða við og ausa kjallara, því
regn og hiti virðast skiftast á dag
eftir dag. Síðustu dagana er Páll
við að binda hveiti og segir að það
haíi „gengið slysalítið“.
Allur ágúst er rigningasamur og
Dáll vinnur þegar hægt er að vinna,
stakkar hveiti, heggur við og er
einn dag að gera við þreskimaskínu.
)j22. ág.... Ég fór til H. V. Preste-
gaarden um kveldið og byrjaði mína
tv° mánuði þar fyrir $35.00.... Ég
að slá hey með sláttuvél í fyrsta
sinn.... Ég að raka með vél í fyrsta
sinn, gekk heldur illa. 13. sept. Ég
a® aka heyi. Þetta er seinasti dagur-
líln sem ég vinn sem mánaðar mað-
Ur hjá H. Prestegaarden ...
14. sept. Ég vann fyrri partinn við
jnnís högg.... Ég byrjaði að plægja
hjá Reishus. Plægði með uxum, það
v°ru ófínar sviptingar, þó fór svo
þeir urðu að láta í minni pok-
ann.“
^rá september þar til um miðjan
n°v er lítill dagamunur. Páll tekur
agvinnu, þegar hún gefst, og hvaða
Verk sem í boði er.
»14. nóv. Mikið frost. Við Frið-
^eir gengum vestur til M. Gíslason-
ar, komum þangað kl. hálf tólf, hálf-
dauðir af þreytu og kulda. 15. nóv.
Norðan hríð og brunafrost. Ég var
um kyrrt hjá Magnúsi. Þá tók ég
til láns hjá Friðgeiri $143.25 uppá
tíu af hundraði rentu árlangt.
Ég fór ofan til Minneota.... Vann
mér 25c hjá T. D. Seals við snikk-
ara vinnu! ... Ég fór til Minneota
með Jónatan R. settist þar hjá J.
Frost í þeim vændum að fara að
selja eldivið.... Ég ritaði Oddi Jóns-
syni. félaga, bréf og sendi $90.00 í
peningum til að kaupa fyrir eldivið.
... Ég sagaði við fyrir 4. part
af cord og vann mér inn 25c hjá
Coats!!!“. í nóv. og des, er Páll 1
Minneota: „Vann í hveitihúsinu hjá
Mr. Coats.... Ég að vinna hjá Coats
og selja við.... Ég að selja við, gekk
heldur illa.“ Þannig gengur það
fram að jólum.
„24. des. Norðanhríð. Ég leigði
mér hesta og sleða og ók norður til
íslendinga með Þorbergi og tveimur
stúlkum, í myrkri og vondu veðri.
Ég var hjá St. Sigurðssyni um nótt-
ina, lítið um skemmtun.“
Páll er svo þarna meðal landanna,
sem spila á spil sér til skemmtunar.
Armar hesturinn, sem hann fékk að
láni, er særður af uxa og þarf að
fá meðul og gera við sárið. Lækn-
ingin tekur marga daga. „Norðan-
hríð. Ég fór að Gröf að gera við
sárið á hestinum, svo yfir til Lofts
og þaðan gangandi til Minneota. Ég
var þar um nóttna.
Gamlársdagur.... Ég fór norður
aftur og maðurinn með mér, sem
átti hestana. Hann var eins rými-
legur og ég gat búizt við.
Ég var hjá Lofti um nóttina og
var ekki neitt fjörugur né þakklátur