Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Blaðsíða 50
32
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
2. marz, 1882 — Sólskin og hláka.
Ég er um kyrrt að búa mig undir
brottferð.
4. marz. Norðan rigning. Ég fór
af stað alfarinn frá Minneota til
Wínnipeg og Hjálmar Arngríms-
son með mér. Við fórum til Snorra
um kveldið og vorum þar nóttina.
Ég átti $5.00 eftir það var aleigan.
... Við Hjálmar fengum C.B.
Dougal að aka okkur til Benson ...
Fórum til Breckenridge og gistum
þar á veitingahúsi, því versta er ég
hafði séð. Við fengum ekki að sofa
saman því þeir voru hræddir við
ræningja. Við fengum þar ágætis
máltíð fyrir 35c.... Fórum þaðan
til St. Vincent. Vorum í Pembína
um nóttina hjá ísl., þar var vindur
í þjóðinni. Eða svo!!!
10. marz. Við fórum til Winnipeg
um kveldið.... Kristján sonur Jóns
smiðs skaut yfir okkur skjóls húsi,
og Kristján sonur Jóns frá Héðins-
höfða gaf okkur mat um morgun-
inn.... Fengum húsnæði hjá Jóni,
syni Guðmundar frá Hjallahúsum,
fyrir $4.00 um vikuna. Við vorum
viðstaddir leikinn „N a r f a“ um
kveldið, það kostaði 25c.... V'ið
vorum við lestur í Isl. fél. húsinu,
það fór vel fram.
16. marz. — Ég byrjaði að vinna
á járnbraut við að moka snjó fyrir
$2.00 á dag.... Ég fór með plóg til
Brandon, 133 mílur vestur, hríð um
nóttina.... Við unnum alla nóttina,
héldum áfram til Portage og unnum
þar næsta dag.... Við fórum til
Austin og til baka til Reaburn, þar
um nóttina og þá var hríð, sem ent-
ist fram að hádegi næsta dag. Við
brutum plóginn og vorum að moka
þar allan daginn. ... Við að moka
og leggja járnbraut á sama stað....
26. marz. — ... Við komum heim
í morgun kl. 8. Höfðum innunnið
okkur $39.20 yfir vikuna, en það var
harðsótt, því við höfðum lítinn svefn
og lítinn mat... Ég ýmist á snjó-
plógnum eða við járnbrautarlagn-
ingu.... Ég er heima með snjóbirtu
og ólund....
... Ég fékk borgun fyrir marz,
$70.00 og Hjálmar borgaði mér út.
Ég borgaði konu Eyjólfs fyrir borð
mitt til 20. apríl., og keypti mér
kápu og græn gleraugu.... Fór á
kvennafund í gær, allgóð skemmt-
un.... Fór út með snjóplógnum, við
komumst til Grafield, brutum plóg-
inn, fórum heim um nóttina, 17 kL
tíma vinna.... Fórum út aftur og
unnum allan daginn og nóttina, vor-
um svangir með köflum en kom-
umst til Reaburn ...
Sumardagurinn fyrsti. Norðan
gola og frost. Vinnan sama. Ég
byrjaði að borða hjá Baldvin... •
Asahláka. Mikill vatnagangur braut-
in nálega öll á floti, árnar ófærar.
Brautin þvegin út fyrir sunnan St-
Vincent. Við unnum allan daginn
til kl. 9. Winnipeg bær fullur si
vatni.... Vatnið að lækka. Vinnan
sú sama.... Brenna í Wpg., kveikt
í hverju húsinu á fætur öðru. • • •
Við fórum til Stone Wall í kveld
til að hlaða grjóti í vagn — vond
vinna — komum til baka kl. 3 um
nóttina, fengum $4.00 ...
Ég við messu. Séra H. Brietf1
messaði. Hann var kosinn prestur
Winnipeg ísl. til 4 mánaða. Ég
skrifaði mig í söfnuð með $5.00 til'
lagi...
Afmælisdagur Englands drottn-
ingar. Mikið um dýrðir í Wpg- ^