Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1967, Qupperneq 90
72
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
sjóð (þ. e. sjóð þann, sem verja skal til
minnisskjaldar þeirra Bjarna Herjólfs-
sonar og Leifs Eiríkssonar). Forseti
deildarinnar er Frank Olson, en ritari
frú Ragna Baldwinson.
Ungfrú Shirley Thorsteinson flutti
ársskýrslu Þjóðræknisdeildarinnar
„Norðurljós“ í Edmonton. Sú skýrsla bar
vott um sérstaklega blómlegt starf.
Deildin hefir efnt til stjórnarnefnda-
funda í hverjum mánuði að júní og
ágúst undanskildum. Dansleikur var
haldinn í marzmánuði, og á skemmtun
3. maí var íjallkona kjörin. Sunnudag-
inn þann næsta við 17. júní var haldin
útisamkoma og efnt til kvöldverðar.
Einnig var gerð sérstök ferð á slóðir
Stephans G. Stephanssonar og blóm
lögð á leiði skáldsins. Heimili Stephans
var og skoðað og mjög rætt, hversu
helzt mætti prýða og betrumbæta hið
forna býli hans. Þann 4. júlí veittu fé-
lagar í deildinni aðstoð við sérstaka
dagskrá, sem helguð var hinum gömlu
Klondike dögum. Þann 5. óktóber var
háldinn dansleikur og skemmtiskrá á
boðstólum. Söngflokkur deildarinnar
hefir reglubundnar æfingar. Þann 8.
nóv. var haldið samsæti og efnt til
jólabazars. Á þeirri samkomu sýndi frú
Sumarliðason myndir frá Englandi.
Þann 9. des. var haldin jólasamkoma,
og skemmti þar sérstakur barnasöng-
flokkur. Deildin gaf $150.00 í sjóð elli-
heimilisins Betel. Sömu upphæð var og
komið á framfæri við elliheimilið Höfn
í Vancouver; $100.00 dalir voru gefnir
til slaghörpukaupa fyrir Hallveigarstaði
í Reykjavík. Myndir voru teknar við
heimsókn dr. Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra íslands og honum
sendar í jólagjöf. Walter Arason sýndi
myndina „Discover Iceland“ og efnt
var til sýningar á íslenzkum hannyrð-
um. Hér er enn við að bæta, að 10.
janúar tók deildin þátt í skandinavískri
hátíð, en við það tækifæri voru þjóð-
búningar sýndir. Ekki má gleyma þorra-
blótinu þann 11. febrúar. Deildin hefir
lofað fjárupphæð í Leifs Eiríkssonar
sjóðinn. Forseti deildarinnar er Walter
Arason, ritari er ungfrú Shirley Thor-
stcinson. Skýrslu ungfrú Thorsteinson
var mjög fagnað af öllum viðstöddum.
Fjórði fundur
hófst þriðjud. 28. febr. kl. 2 e. h. Fyrsta
mál á dagskrá voru skýrslur þingnefnda.
Dr._ Beck flutti skýrslu milliþinganefnd-
ar í skógræktarmálum. Kvað hann skóg-
ræktarmálum hafa miðað í rétta átt á ár-
inu. Þessu _til sönnunar las hann bréf
fra bæði frú Marju Björnson og Hákoni
Bjarnasyni. í milliþinganefnd í skóg-
ræktarmálum voru kosin þau dr. Ric-
hard Beck, frú Marja Björnson og frú
Kristm Johnson.
í skýrslu fjármálanefndar var lagt til,
að skýrslur embættismanna yrðu sam-
þykktar, að væntanlegri stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins yrði falið að styrkja
Lögberg-Heimskringlu, að styrktarsjóð-
ur félagsins geri kunnugt, að tekið verði
á móti peningagjöfum, svo sem minn-
ingargjöfum o. s. frv., að stjórnamefnd
athugi, hvort ekki sé unnt að fá því
framgengt, að slíkar gjafir verði frá-
dráttarhæfar við skattframtal, að öðr-
um óafgreiddum atriðum, sem fjármál
varða, verði vísað til væntanlegrar
stjórnarnefndar. Skýrslan var samþykkt
samhljóða.
Jakob F. Kristjánsson bar þessu næst
fram tillögu um viðbætur við 11. grein
stjórnarlaga Þjóðræknisfélagsins, en sú
grein ræðir skyldur stjórnarnefndar og
afmarkar starfssvið hennar. Tillagan
hljóðaði þannig, að við 11. grein (F)
yrði bætt „Að stjórnarnefnd sé heimilt
að veita undanþágu frá ákvörðun þess-
ara laga til næsta þings, ef henni virðist
slíkar undanþágur nauðsynlegar í þarfir
deilda eða félagsins" og við sömu grein
(G) „Að leggja skýrslu yfir slíkar und-
anþágur og ástæður fyrir þeim fyrir
næsta þing.“ Tillagan var samþykkt.
Þessu næst var rætt drykklanga stund
um eirplötu þá, sem í ráði er, að verði
komið fyrir í Ottawa til minningar um
Ameríkufund íslenzkra manna.
Fimmti fundur
hófst miðvikudaginn 29. febrúar kl. 10
f. h. Fyrst var flutt álit þingnefndar i
útgáfumálum í þremur liðum, sem eru
þannig: 1) Þingið þakkar ritstjórum
Tímaritsins og þeim, sem hafa lagt rit-
inu efni, 2) þingið þakkar Guðmanm
Levy, Halldóri Stefánssyni og Helga
Johnson á Gimli fyrir auglýsingasöfnun
í Tímaritið, 3) þingið felur væntanlegri
stjórnarnefnd að ráða ritstjóra og ráð-
stafa útgáfu ritsins á komandi ári. Allir
liðir hlutu samþykki. Jón Pálsson og
frú Herdís Eiríkson gátu þess, að ýmsir
söknuðu þeirra þátta, sem felldir hafa
verið úr Tímaritinu, þ. e. „Helztu at-
burðir ársins“ og „Dánarskrár". Flutti
frú Herdís tillögu þessa efnis, að vaent-
anlegri stjórnarnefnd verði falið að at-
huga möguleika á því að taka þessa
þætti upp í ritið að nýju. Sú tillaga var
samþykkt.
Nefndarálit allsherjarnefndar var að-
eins einn liður, þ. e.: Að stjórnamefnd
Þjóðræknisfélagsins sé falið að þakka a
viðeigandi hátt allar þær kveðjur, sem
þinginu hafa borizt. Nefndarálit þetta
var umsvifalaust samþykkt.
Grettir L. Johannson gaf þessu næst
skýrslu um höggmynd þá, sem Þjoð'
ræknisfélagið hefir gengizt fyrir að lata
gera af dr. Vilhjálmi heitnum Stefans-