Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Page 25
Félagsmál VFÍ/TFÍ 23
Fjármál: Fjármál Verkfræðihúss eru sem fyrr í góðu lagi og hafa öll fyrri langtímalán nú
verið greidd. Mikilvægum og langþráðum áfanga er náð. Ogreidd eru þó enn nokkur fjöldi
húsbréfa, en eigendum þeirra hefur verið sent bréf þar sem athygli er vakin á málinu.
Eins og kunnugt er hefúr húsið ekki fengið nein framlög frá Verkfræðingafélagi Islands
á þessu starfsári, frekar en þeim síðustu. Leigutekjur hafa staðið undir afborgunum lána,
endurbótum á húsnæði og rekstri að fullu.
Á síðasta ári var ákveðið að hússjóður greiddi til deilda félagsins 500.000 krónur, sem
næmi vel ríflega þeim fjármunum, er deildirnar höfðu áður innheimt beint af félagsmönnum
sínum. Framhald er á slíku.
Leiguniál: Allt húsnæði félagsins er í fullri leigu. Leigutakar hafa að fullu staðið í skilum á
leigu. Miðverk ehf. leigir austurenda þriðju hæðar en VFI og TI leigja vesturendann. VFI,
TÍ, SV, FRV og nýtt fyrirtæki á sviði rekstrarráðgjafar leigja aðra hæð. LVFÍ leigir hálfa
jarðhæð og verðbréfafyrirtækið Burnham International leigir eystri hluta jarðhæðar og
kjallarann.
Viðhaldsmál: Á árinu voru innréttingar í afgreiðslu félagsins á annarri hæð endurnýjaðar og
nam kostnaður tæpum tveimur milljónum.
Fjárhagsstaða hússjóðs þrengist tímabundið vegna kaupa á húsnæðinu á fyrstu hæð, en
að ári eða tveimur ætti að vera möguleiki að ráðast af fullum krafti í viðhaldsverkefnin sem
brýnt er að sinna, bæði utanhúss sem innan.
Málun á stigagangi er eitt þeirra verka sem stefnt er að og áhugi er á að ráðast í uppsetn-
ingu lyftu sem fyrst.
Nokkrar tafír hafa orðið á merkingu hússins og komið upp ákveðin vandamál sem
lögfræðistofa er að skoða sem stendur.
Húsnefnd VFÍ
Halldór Þór Halldórsson fonnaður
Kynningarnefnd VFÍ/TFÍ
Sjá kafla um kynningarnefnd VFÍ/TFÍ í kafla um sameiginlegan rekstur VFÍ/TFÍ.
Menntamálanefnd VFÍ
Skipan nefndarinnar og fundir: Mcnntamálancfnd VFÍ var á starfsárinu skipuð eftirtöldum
mönnum: Steindór Guðmundsson formaður, Gunnar Guðni Tómasson ritari, Fjóla G.
Sigtryggsdóttir, Pétur K. Maack, Ragnhildur Geirsdóttir og Þórður Helgason.
Ragnhildur Geirsdóttir kom ný inn í nefndina í upphafi starfsársins í stað Eiríks
Bjarnasonar, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Fjóla G. Sigtryggsdóttir tók við
af Jóni Vilhjálmssyni sem formaður ENSIM-nefndar VFI, TFI og SV og hún tók jafnframt
sæti Jóns í menntamálanefnd. Fjóla situr í stjórn Endurmenntunarstofnunar HI sem fulltrúi
VFÍ.
Um hlutverk og verkefni menntamálanefndar er fjallað í 19. grein félagslaga VFÍ.
Menntamálanefnd hélt alls 11 fundi á starfsárinu. Venjulegur fundartími er annar
fimmtudagur hvers mánaðar. Auk þess var m.a. haldinn fundur með stjórn VFI þar sem