Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Page 49
Félagsmál VFÍ/TFÍ 47
Iðnsaga íslendinga - Saga TFÍ: Síðastliðin ár hefur verið unnið að undirbúningi að ritun
á sögu TFI, sem stofnað var í júlí 1960. Söguritunin er unnin í samvinnu við Iðnsögu
Islendinga. Gert er ráð fyrir að útgáfa bókarinnar verði hluti af sögu tæknifræðinnar á Islandi,
sem gefin verður út af Iðnsögunni. I ágúst 1998 var gerður samningur við Guðmund
Magnússon sagnfræðing um ritun bókarinnar. Samkvæmt tímaáætlun sem unnið er eftir
undir stjórn sérstakrar ritnefndar er gert ráð fyrir að bókin komi út í lok afmælisársins.
Unnið er að skráningu þeirra Islendinga sem lokið hafa tæknifræðinámi og er gert ráð fyrir
að birta nöfn þeirra í bókinni en þeir eru um 1200 talsins.
Kynningarstarf - fundir og ráðstefnur: Kynningarnefnd TFI og VFÍ er ein ljölmargra
samstarfsnefnda félaganna. Nefndin stendur fyrir svonefndum „samlokufundum“ sem
haldnir eru í hádegi fyrsta fímmtudag hvers mánaðar yfír vetrartímann. Samlokufundir
vetrarins hafa verið vel sóttir og fengið nokkra umijöllun i fjölmiðlum landsins.
Kynningarnefnd félaganna og undirbúningsnefndir setja upp dagskrá, fá fyrirlesara
o.þ.h. fyrir ráðstefnur. Þegar því verki er lokið tekur ráðstefnunefnd TFÍ og VFÍ við
stjórninni, en sú nefnd hefur þann starfa að halda utan um framkvæmdarhlið
ráðstefnuhaldsins.
Auk samlokufundanna voru nokkrir morgunverðarfundir haldnir og er aðsókn að þeim
ekki síðri en hádegisverðarfundunum.
Ráðstefnur félaganna, sem voru óvenju margar á starfsárinu, voru vel sóttar og vel
heppnaðar og ijölluðu margar um efni sem skipta þjóðina miklu og höfðuðu til manna langt
út fyrir raðir tæknimanna.
Yfirlit yfír ráðstefnur og kynningarfúndi fylgja hér á eftir.
Viðhorfskönnun: I nóvember á sl. ári var gerð viðhorfskönnun meðal félaga í TFÍ. Tekið
var 100 manna slembiúrtak þar sem 60 félagsmenn eldri en 40 ára og 40 félagsmenn yngri
en 40 ára voru spurðir m.a. um hver ætti að vera meginstarfsemi félagsins, hvemig þeim liði
í starfí og um fundi, ráðstefnur, ferðir, blað og heimasíðu. Auk
þess um samstarfið við VFÍ og hvort þeir sæju fyrir sér
sameiningu félaganna í framtíðinni.
Tæknidagar: Tæknidagar 1999 - Fjarskipti 21. aldar voru haldnir
20. og 21. mars að Hótel Loftleiðum með sýningu og athyglis-
verðum fyrirlestrum. Rétt eins og í fyrra var almenn ánægja með
Tæknidagana bæði af hálfu sýnenda og þeirra er sóttu sýninguna
en rúmlega 5000 manns sóttu hana báða dagana.
í byrjun árs (7. janúar 2000) var haldinn Hljóðtæknidagur í
Salnum í Kópavogi. Var þar blandað saman erindum um hljóm-
burð og tónlistarflutning. Félögin fengu til liðs við sig helstu
ráðgjafa á sviði hljómburðar og tónlistarflutnings.
Tækni og skóli: Stjórnir TFÍ og VFÍ hafa skipað starfshóp til að
vinna að auknum áhuga og skilningi nemenda og kennara
grunnskólans á tækninni. í þessu sambandi er horft til verkefnis
sem norska tæknifræðingafélagið, NITO, hefúr unnið að sl. tvö ár.
Þeir hafa í samvinnu við skólayfírvöld og fyrirtæki beitt sér fyrir
því að hópur kennara frá nokkrum skólum víðsvegar um landið
hafa farið á tveggja vikna námskeið til York á Englandi til
Einar Þorsteinsson
tœknifrœðingur lést
fyrir aldurfram i
umferðarslysi 6. janúar
2000. Hans er minnst
með virðingu og þökk
fyrir ómetanlegt fram-
lag í þágu lagnaiðn-
aðar á Islandi.