Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Page 77
Félagsmál VFÍ/TFÍ 75
Ný Leonardo da Vinci-áætlun (Leonardo II) mun heijast á þessu ári og mun Mennt
annast umsjón áætlunarinnar og rekstur eins og verið hefur áður með Leonardo I og Comett-
áætlanir Evrópusambandsins.
Eitt af meginverkefnum Menntar á fyrsta starfsárinu var að auka yfirsýn yfir og aðgang
að upplýsingum um það nám seni er í boði í landinu. í því sambandi fékkst styrkur frá starfs-
menntasjóði til að byggja upplýsingaveitu um starfstengt nám. Talið er að hér sé um stórt
neytendamál að ræða sem Mennt hefur lýst sig reiðubúið að annast í samvinnu við stjóm-
völd, skóla og atvinnulífið. Aðilar vænta þess að hagræði verði að því að hafa aðgang að
„rafrænu markaðstorgi menntunar" bæði fyrir þá sem bjóða menntun og þá sem sækja sér
hana. Hefur Mennt boðist til að vera samnefnari seljenda og kaupenda á þessum markaði.
Átta manns skipa stjóm Menntar, tveir tilnefndir af ASÍ, tveir af Samtökum atvinnulífs-
ins, tveir af Sambandi iðnmenntaskóla, einn af Samstarfsnefnd háskólastigsins og einn af
Samstarfsnefnd um menntun í iðnaði. Formaður var kosinn Garðar Vilhjálmsson en aðrir í
stjórn eru Davíð Stefánsson, Frímann Ingi Helgason, Gunnar Kristinsson, Halldór
Grönvold, Ingi Bogi Bogason, Ólafur Jón Arnbjörnsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Framkvænidastjóri er Hrönn Pétursdóttir.
Fulltrúi VFÍ í Mennt er Guðleifur M. Kristmundsson.
Veffang Menntar er: mennt.is.
Steindór Guðmundsson, formaður menntamálanefndar VFÍ
íslandsnefnd FEANI
Tæknifræðingafélag íslands er aðili að FEANI, Evrópusamtökum verkfræðinga- og
tæknifræðingafélaga. í hverju aðildarlandi starfa landsnefndir og standa Tæknifræðingafélag
Islands og Verkfræðingafélag Islands sameiginlcga að Islandsnefnd FEANI. Félögin skipt-
ast á formennsku í nefndinni á tveggja ára fresti og tók TFI við fonnennsku á síðasta ári.
Fyrir hönd TFÍ eru í nefndinni Eiríkur Þorbjörnsson formaður, Jóhannes Benediktsson og
Páll Jónsson. Fyrir liönd VFÍ eru í nefndinni Guðleifur M. Kristmundsson, Sigurður
Brynjólfsson og Steindór Guðmundsson. Að auki er Jón Vilhjálmsson í nefndinni sem full-
trúi eftirlitsnefndar FEANI. Framkvæmdastjóri félaganna er ritari nefndarinnar.
Nefndin hélt þrjá fundi frá síðasta aðalfundi. Formaður sótti ársfúnd FEANI 1999 sem
haldinn var í Rethymno á Krít dagana 28. september lil 2. október sl. Þátttakendur frá 23
þjóðum sóttu fundinn. Skýrsla þessi er samantekt af því helsta sem fram kom á fundinum
og gefur góða mynd af þeim verkefnum sem eru á vegum FEANI.
Ársfundur FEANI: Mikið hefur verið að gerast í herbúðum FEANI á undanförnum árurn
og þá sérstaklega á árinu 1999 en framkvæmdastjóra samtakanna var sagt upp störfúm fyrir-
varalaust í október 1998 og í kjölfarið sögðu formaður og varaformaður af sér störfum.
Mikið hefur verið um fundarhöld í sambandi við þessa uppstokkun svo og málaferli þar sem
fyrrverandi framkvæmdastjóri stefndi samtökunum fyrir ólöglega uppsögn og til að fá
greiddar launagreiðslur samkvæmt ráðningarsamningi. Frarn kom að kröfúr framkvæmda-
stjórans hefðu gert FEANI gjaldþrota. Þetta er hið vandræðalegasta mál og sér ekki fýrir
endann á þessum málaferlum. Menn eru þó á því að aðilar komist að samkomulagi með
launauppgjör þótt enn sé langt í land. Til að bjarga málum var ákveðið að fela tveimur
mönnum seni þckkja vcl til starfseminnar að fara með stjórnun og skipulag samtakannafram