Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Síða 90
88 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Vaxtamál
Vextir á lánum til sjóðfélaga hafa verið óbreyttir um nokkurra ára skeið eða 3,5%
verðtryggt. Ekki eru uppi nein áform um að breyta því.
Erlend fjárfesting
Lífeyrissjóðurinn hefur nú öðlast allnokkra reynslu og mikinn lærdóm í erlendri ljárfest-
ingu, sem hefur styrkt okkur í að við séum á réttri leið í ávöxtun sjóðsins svo sem árangur
sýnir.
I fjárvörslu hjá Morgan Stanley voru í árslok 1999 tæplega 4.198 milljónir króna, eða
um 52,9 milljónir USD í hlutabréfum, og 5,1 milljón USD í Convertibles-skuldabréfum.
Avöxtun þessara ljármuna gekk mjög vel á árinu 1999 eins og fram kom hér að framan.
Við sendum Morgan Stanley-mönnum kærar kveðjur og þakkir fyrir sérdeilis góðan
árangur á síðasta ári, en árangur í okkar hlutabréfasafni var 22,5 prósentustigum fyrir ofan
MSlCAP-hlutabréfavísitöluna og 25 prósentustigum fyrir ofan S&P500-hlutabréfavísitöluna.
Arangurinn í Convertibles-skuldabréfunum var lítið síðri eða 19,5 prósentustigum fyrir ofan
JPMGOV-skuldabréfavísitöluna.
Hjá Gartmore Capital Management í London er sjóðurinn nú með rúmlega 1,6 milljónir
USD í hlutabréfasjóði. Þar var ávöxtun einnig mjög góð, en hún var 32,4% í USD.
Það sem af er þessu ári hefur hin erlenda fjárfesting verið afar sveiflukennd.
Hlutabréfasafnið hjá Morgan Stanley hefur lækkað um 6,2% í dollurum frá áramótum til
síðustu mánaðamóta. Hlutabréfasjóðurinn hjá Gartmore hefúr lækkað frá sl. áramótum um
9,7%. Convertibles-skuldabréfín hafa lækkað um 7,3% í dollurum frá áramótum. Nú um
stundir er 6,4% gengishagnaður á dollara frá áramótum sem vegur talsvert á móti lækkun
gengis bréfanna.
Sjóðsstjóri sjóðs lífeyrissjóðsins hjá Morgan Stanley er Sigurður Arngrímsson, en sam-
starfsmaður Sigurðar er ungur Svíi, Fredrik Plyhr. Að auki starfa í deild Sigurðar átta manns,
sem stýra sjóðum nokkurra aðila.
Fjárfestingastefna hlutabréfasafns okkar er samkv. samningi flokkuð í næsthæsta flokk
af sex, hvað varðar öryggi, undir lýsingunni: „Long term growth/ income secondary“, sem
oftast er valin af langtímafjárfestum sbr. lífeyrissjóði.
Tryggingafræðileg úttekt
Tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, hefúr nú gert tryggingafræðilega úttekt
á sjóðnum pr. 31. des. 1999. Út úr þeirri athugun kemur að verulegur tryggingafræðilegur
hagnaður hefur orðið á rekstri sjóðsins á árinu 1999 og nemur sá hagnaður 977,9 milljónum
króna.
Bjami leggur til að þessum tryggingafræðilega hagnaði verði nær öllum varið til hækk-
unar á lífeyrisréttindum sjóðfélaganna. Samkvæmt samþykktum sjóðsins er það á valdi aðal-
fúndar að samþykkja þá tillögu eða ákveða að leggja allan afganginn í varasjóð.
Rétt er að vekja athygli á því að úthlutun sem þessi hækkar uppsafnaðan lífeyrisrétt
sjóðfélaganna umtalsvert.