Bændablaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 14.júní2000
BÆNDABLAÐIÐ
21
Istex
verðlaunar
grunn-
skólanema
lyrir lopa-
peysuprjón
„í nútíma þjóðfélagí þar sem
hraðinn verður sífellt meiri,
vinnuálag eykst stöðugt og
möguleikar á afþreyingu verða
fjölbreyttari, þá er nauðsynlegt
að standa vörð um gildi og siði
sem lifað hafa Iengi með þjóðinni.
Það er ekki sist áríðandi fyrir
íslendinga að standa vörð um siði
og hefðir sem sérstakir eru fyrir
land og þjóð. Eitt af því sem á í
vök að verjast er íslenskt
handprjón. Hér áður fyrr lærðu
flestir landsmenn að prjóna af
nauðsyn, en seinni áratugina
hefur fækkað til muna þeim sem
prjóna flíkur á sig og sína,“ sagði
Þrúður Helgadóttir, sölustjóri
hjá Istex, en Ullarverksmiðjan
fstex hf., sem er eini framleiðandi
prjónabands og lopa úr íslenskri
ull, sendi haustið 1998 bréf til
skólastjóra og
handmenntakennara grunn-
skólanna með ósk um samvinnu
um að blása nýju lífi í þennan
þjóðlega sið.
Undirtektir hafa verið all góðar
og fyrir ári sendi Istex hf. rúmlega
sextíu grunnskólanemum viður-
kenningu og vel á annað hundrað
viðurkenningar hafa verið sendar í
ár. Nemendur fengu bók fyrir
handprjón og viðurkenningarskjal.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
handavinnukennara. Istex hefur
gefið út fjölda prjónauppskrifta
fyrir unga sem aldna og þess má
geta að á síðasta ári voru gefnar út
uppskriftir að nýtískulegum peys-
um sem fengu mjög góðar viðtökur
hjá ungu fólki.
í frétt í síðasta Bændablaði um
Blikastaðasjóðinn sem bar fyrir-
sögnina „Styrkir nemendur til
framhaldsnáms erlendis í búvís-
indum“ áttu sér stað þau leiðu
mistök að dóttir Sigsteins Páls-
sonar, bónda á Blikastöðum, var
rangnefnd í myndatexta. Stóð í
textanum að hún héti Helga en hið
rétta er að hún heitir Kristín Sig-
steinsdóttir. Blaðið biður hlutað-
eigandi velvirðingar á þessum
mistökum.
Leiðnéttingan
I síðasta Bændablað slæddist
inn meinleg villa þegar taldir voru
upp búnaðarþingsfulltrúar Bún-
aðarsambandanna. Þar eru taldir
upp búnaðarþingsfulltrúar Ráðu-
nautaþjónustu Þingeyinga en þetta
átti að sjálfsögðu að vera fulltrúar
Búnaðarsambands Suður-
Þingeyinga. Hlutaðeigandi eru
beðnir afsökunar á þessari
rangfærslu.
Spinder
fjósinnréttingar
vörulistinn komin á íslensku
hringið eftir eintaki
verölækkanir
vegna
gengisbreytinga
Vélaval - Varmahlfð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
sveitir!
- -
Asýnd sveitanna skiptir miklu
máli fyrir íslenskan landbúnað.
Út frá einstaka býlum eru heilu
byggðirnar dæmdar.
Hvaða einkunn fær mín sveit?
rmwN* Hnsstns
.* 1
■■
Nei
Göngum vel um sveitir landsins.
Svona rusl á ekki að sjást!
Áfok er frá öllum komið, hvort
sem er á sjó eða landi!
Ataksverkefnið „Fegurri sveitir“ er
samstarfsverkefni
landbúnaðarráðuneytisins,
umhverfisráðuneytisins, Bændasamtaka
ísiands, Kvenfélagasamands íslands og
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Því er ætlað að vera samnefnari fyrir alla þá
sem taka til hendinni við hrei \sun og fegrun
umhverfis í sumar.
Sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félög og
einstaklingar eru hvattir til þátttöku.
Fréttum af góðum verkum, hugmyndum og
hagnýtum upplýsingum verður miðlað
jafnharðan á vefnum til þátttakenda. Þannig
lærir hver af öðrum.
Látið vita af ykkur og takið þátt í
sameiginlegu átaki
Tilkynnið þátttöku í eftirfarandi netfang:
ragnhildur.umhverfi@simnet.is.
eða í síma 4356695
Framkvæmdanefnd „Fegurri sveita"