Bændablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 1
21. tölublað 7. árgangur
Þriðjudagur 11. desember 2001
ISSN 1025-5621
- -
L.J
V:,
Kornræktarbændur bjartsýnir á framtíðina
UKLEGA ER HEIMARÆKTAÐ KORN
ÓDÝRASTA FðÐUR SEIM VfiL ER Á
Síðastliðið komræktarsumar var í meðal-
lagi í flestu tilliti. Klaki var víða mikill í vor og
sums staðar var sáð mun seinna en vant er, en
haustið var hins vegar gott. Miðað við tilrauna-
niðurstöður var uppskera ívið betri en í
meðalári. Uppskera úr tilraunum á landinu var
4,5 tonn á hektara í ár en hefur verið 4,1 tonn
að meðaltali síðustu sex ár. Þótt nákvæmar
tölur vanti er ætlað að bygg hafi verið skorið af
um 2000 hekturum á liðnu hausti. Um það bil
45% þess mun hafa verið á Suðurlandi, 35% á
Norðurlandi, 15% á Vesturlandi og 5% á
Austurlandi. Ljóst er að víða má auka verulega
við komræktina.
Þetta kom fram á fundi sem stjóm Lands-
sambands kombænda gekkst fyrir á
Rannsóknastofnun landbúnaðarins á dögunum.
Fundinn sóttu fulltrúar bænda úr flestum
sýslum, fulltrúar þeirra sem flytja inn sáðkom
og starfsfólk RALA. Kynntar voru niðurstöður
úr komræktartilraunum þessa árs og lögð vom
fram drög að rannsóknarverkefnum næstu ára.
Fundarmenn vom bjartsýnir um ffamgang
komræktar næsta árið. Verð á innfluttu fóður-
komi fer nú hækkandi á heimsmarkaði og
gengisbreytingar leggjast á sömu sveif. Nýir
kostnaðarútreikningar Hagþjónustu land-
búnaðarins sýna líka að hver fóðureining i
heimaræktuðu komi er mun ódýrari en fóður-
eining í heyi. Á fundinum kom ffarn að líklega
er heimaræktað kom nú ódýrasta fóður sem
völ er á og ættu menn að hafa beinan hag af því
að auka komræktina sem mest.
íslenskt korn
íslenska yrkið Súla hefúr nú verið í tilrauna-
ræktun hjá bændum í tvö ár. Reynsla af því var
til umræðu á fúndinum. Yrkið er tviraða eins
og kunnugt er og mjög fljótþroska. Súla hefur
Bændablaðið/Jón Eiriksson.
reynst mjög vel sums staðar en annars staðar
miður eins og gengur. Kostir hennar nýtast
fyrst og ffemst þar sem vaxtartími er skammur
og jarðvegur kaldur og fijósamur, með öðmm
orðum á ffamræstri mýri og á fijósömum
moldarjarðvegi. Eins og annað tvíraðabygg
reynist hún betur sunnanlands en norðan.
Undanfarið hefur dugað vel að sá Súlu um
miðjan maí. Á fijósamri jörð hefur hún iðulega
gefið uppskeru sem nemur um 4,5 tonnum af
þurrefni á hektara á liðlega fjögurra mánaða
vaxtartíma. Á sendinni jörð og þurru mólendi á
hún það hins vegar til að hlaupa í bráðan
þroska og stöðva komfyllingu á miðju hausti
og kemur það þá niður á uppskemnni.
Sjálfsagt sýnist að nota Súlu í töluverðan
hluta komakra að minnsta kosti sunnanlands.
Stuttur vaxtartimi hennar gerir það að verkum
að ekki þarf að keppast við að sá henni
snemma og byija má komskurð á henni að
hausti. Þannig nýtast vélar betur en ella. Einnig
má benda á að hún er mun þurrefnisríkari við
skurð en annað kom og þvi hentug til þurrkunar.
Pantið sáðkorn sem fyrst
Rætt var um innflutning á sáðkomi á vori
komanda. Allmörg yrki verða fáanleg en verð
hefúr hækkað nokkuð ffá fyrra ári. j Svíþjóð er
til mun meira af sáðkomi af islenska yrkinu
Súlu en verið hefúr undanfarin ár. Það mun
fást á góðu verði. Bændur em hvattir til að
panta það eða láta að minnsta kosti inn-
flutningsaðila vita af áhuga sínum hið fyrsta til
þess að hægt verði að ákveða hve mikið af
komi þarf að festa i Svíþjóð. /JH
Loðdýrabændur fá 340
minka Irá Danmörku
Á næstu dögum eru væntanlegir
til landsins 340 minkar á vegum
Sambands íslenskra loðdýra-
bænda. Dýrin fara í sóttkví í
Holtsmúla í Skagafirði. Dýr
þessi eru af mismunandi iitum,
en þarna má finna svartmink,
"mahogany",
"scanbrown/-
glow", safír,
hvítmink og
perlu. Þess má
geta að ljósir
litir svo sem
safír, hvítt og
perla eru í háu
verði og hið
sama gildir um dýrin.
Bjöm Halldórsson, formaður
SÍL, sagði að með þessum inn-
flutningi væri verið að reyna að
auka fjölbreytni í framleiðslu ís-
lenskra loðdýrabænda og kynbæta
þau dýr sem fyrir em. "Inn-
flutningurinn er í samræmi við
óskir og áætlun fagráðs í loð-
dýrarækt um innflutning og
aðgerðir til að gera hérlenda ffam-
leiðslu samkeppnishæfari," sagði
Bjöm og bætti því við að Fram-
leiðnisjóður hefði lagt verkefhinu
lið og raunar gert loðdýrabændum
mögulegt að flytja inn þessi dýr.