Bændablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 20
20
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 11. desember 2001
Lánasjóður
landbúnað arins
Inngangur
Lánasjóður landbúnaðarins starfar
samkvæmt lögum nr. 68/1997, með
síðari breytingum. Hlutverk sjóðsins
er að tryggja landbúnaðinum aðgang
að lánsfé til fjárfestinga á
hagstæðum kjörum og stuðla þannig
að æskilegri þróun atvinnuvegarins.
í 8. gr. laga um sjóðinn segir að við
"ákvörðun útlána skuli hafa hliðsjón
af því hverjar rekstrarforsendur
viðkomandi búgreina eru og hversu
há veðlán hvíli á eigninni og skal eigi
veita lán ef ástæða er til að ætla að
búrekstur á jörðinni geti ekki staðið
undir auknum lánum".
Ennfremur segir í 9. grein laganna:
"Lán má veita gegn eftirfarandi
tryggingum:
a) Veði í fasteign, enda hvíli eigi
veðskuldir á henni til annarra
en Lánasjóðsins eða annarra
opinberra sjóða á undan þeim
veðrétti sem sjóðurinn fær.
b) Veði í þeim húsum sem lánað
er til, ásamt tilheyrandi lóð og
lóðarréttindum, ef þau eru
byggð fyrir sjálfstæðan
rekstur.
c) Veði í þeim vélum sem
keyptar eru.
d) Ábyrgð sveitarsjóðs vegna
eigin framkvæmda".
Lán til bænda eru tryggð með veði í
viðkomandi jörð með öllum gögnum
hennar og gæðum, þ.m.t.
framleiðslurétti.
Við ákvarðanir um lánveitingar
Lánasjóðs landbúnaðarins er litið til
eiginfjárstöðu og þekkingar
lántakanda og reynslu af búrekstri.
Einnig ertekið mið af
markaðsaðstæðum í viðkomandi
búgrein og búskaparskilyrðum á
bújörðum, þar með talið
greiðslumarki. Búnaðargjaldsskyld
starfsemi er skilyrði fyrir lánveitingu á
lægri vöxtunum. Ekki eru veitt lægri
lán en kr. 500.000.
Lántökugjald af hverju láni er 1% af
lánsupphæðinni og stimpilgjald 1,5%.
Vaxtakjör eru breytanleg. Gjalddagar
lána eru fjórir á ári nema lántakandi
óski eftir að þeir verði færri.
UpþhafSgjalddagi er þó fyrst einu ári
eftir að lán er veitt. Oll lán eru til 5
ára eða lengri tíma og bera fulla
verðtryggingu. Heimilt er að greiða
upp lánið hvenær sem er á
lánstímanum. Vaxtakjör eru skv.
ákvörðun sjóðsins hverju sinni. Ef
jörð fellur úr landbúnaðarnotum,
dregið er verulega úr
búnaðargjaldsskyldri starfsemi, henni
hætt eða aðrar verulegar breytingar
verða á búrekstri á jörðinni þannig að
árlegt reiknað búnaðargjald af
starfseminni verði undir kr. 12.000
(m.v. vísitölu neysluverðs í desember
2001), er Lánasjóðnum heimilt að
breyta vaxtakjörum allra lána er bera
niðurgreidda vexti í vaxtakjör lána
sem bera óniðurgreidda vexti, nú
7,25%. Upphæð reiknaðs
búnaðargjalds er endurskoðuð
árlega.
Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að
takmarka að einhverju eða öllu leyti
lánveitingar til einstakra búgreina
meti hann það nauðsynlegt með tilliti
rVSftíU! líaðfiái Líl ' i O.
Reglur Lánasjóðs landbúnaðarins
um lánveitingar árið 2002.
Gilda frá 1. janúar 2002
til markaðsaðstæðna eða annarra
aðstæðna í viðkomandi búgrein eða
búgreinum.
Lánaflokkar:
1. Til jarðakaupa
Skilyrði fyrir láni hjá Lánasjóði
landbúnaðarins til kaupa á jörð eru
að kaupandi hafi fasta búsetu á
jörðinni og stundi þar búskap í
atvinnuskyni. Þó má lána til
jarðakaupa án þess að þessum
skilyrðum sé fullnægt, svo sem ef um
er að ræða sameiningu jarða í þeim
Lánasjóður
landbúnaðarins
tilgangi að bæta búskaparskilyrði.
Ekki er lánað umfram 70% af
virðingarverði jarðar og aldrei
umfram kaupverð hennar skv.
kaupsamningi. Hægt er að óska eftir
að jarðakaupalán séu afborgunarlaus
fyrstu tvö árin eftir lántöku. Vexti þarf
þó að greiða á gjalddögum.
1.1. Lán til kaupa á jörðum með
búnaðargjaldsskylda starfsemi.
Lánsupphæð: Eftirfarandi
viðmiðun er meginregla varðandi
lán á 3,43% vöxtum: Jarðir með
árlega veltu yfir kr. 1.500.000 kr.
Lánað er kr. 10,700 á hverjar kr.
10.000 af búnaðargjaldsskyldri veltu.
Hámarkslán á 3,43% vöxtum er kr.
10.000.000.
Heimilt er að veita viðbótarlán á
7,25% vöxtum skv. nánari ákvörðun
hverju sinni, þó aldrei hærra en kr.
6.000.000.
Lánstími: Allt að 40 ár.
Vextir: 3,43% og 7,25%.
1.2. Lán til kaupa á jörð þar sem er
engin eða óveruleg
búnaðargjaldsskyld framleiðsla.
Lánsupphæð: Ákvörðun sjóðsins
hverju sinni.
Lánstími: Allt að 40 ár.
Vextir: 7,25%.
2. Til bústofns- og
vélakaupa
Rétt til láns til kaupa á bústofni eiga
frumbýlingar sem hófu eða hefja
búskap á árunum 2000, 2001 eða
2002, þeir sem eru að taka upp
sauðfjárbúskap að nýju eftir
*
skipulagðan niðurskurð vegna
sauðfjársjúkdóma og bændur sem
hafa hætt búskap í a.m.k. 5 ár, enda
hafi eldra bústofnskaupalán verið
greitt upp eða yfirtekið af öðrum
ábúanda.
Ef búskap er hætt, bústofninn seldur
eða honum fargað, fellur lánið allt í
gjalddaga, en kaupanda bústofnsins
er þó heimilt að yfirtaka lánið. Ekki
er lánað til stækkunar bús umfram
greiðslumark í nautgripa- og
sauðfjárrækt. Lánað er skv. skattmati
á hvern grip.
2.1. Bústofnskaupalán.
Lánað er til kaupa á allt að 30 kúm
eða kelfdum kvígum eða 300
ám/lömbum eða 40 gyltum eða
3.400 varphænum eða 600
minkalæðum eða 150 refalæðum.
Lánstími: Allt að 10 ár.
Vextir: 4,43%.
2.2. Búvélar og tæki.
Lánað til: Kaupa á búvélum, þriggja
ára og yngri.
Lánshlutfall: Allt að 65% af
kaupverði skv. sölureikningi sem
staðfestur er með áritun söluaðila.
Lánstími: Allt að 10 ár. Veð í
fasteign.
Vextir: 7,25%.
Heimilt er að lána nýjum ábúendum
65 % lán til kaupa á búvélum og
tækjum, óháð aldri hins keypta.
Heimilt er að veita lán með veði í
skráningarskyldri vél, t.d. til
félagslegra verkefna bænda.
Lánstími allt að 8 ár. Vextir 8,25%.
3. Framkvæmdalán
Lánað er til
nýbygginga og
varanlegra
endurbóta
Lánasjóðurinn lánar til nýbygginga,
gagngerðra endurbóta og breytinga á
útihúsum. Skilyrði fyrir lánveitingu til
endurbóta og endurnýjunar er að um
sé að ræða verulegar og varanlegar
endurbætur þannig að gera megi ráð
fyrir að þær standist a.m.k. út
lánstímann án frekari aðgerða en
venjulegs viðhalds. Sjóðurinn lánar
ekki til smávægilegra viðgerða eða
venjulegs viðhalds. Lánshlutfall er
að hámarki 65% af samþykktum
kostnaði vegna framkvæmdar eða
kaupverði búnaðar, nema annað sé
sérstaklega tekið fram. Hægt er að
óska eftir að framkvæmdalán séu
afborgunarlaus fyrstu tvö.árin eftir
lántöku. Vexti þarf þó að greiða á
gjalddögum. Sé ekki annað tekið
fram er lánstími vegna nýbygginga
allt að 30 ár, vegna stækkunarallt að
25 ár og vegna.endurbyggingá allt að
20 ár. Lánstími vegna búnaðar er allt
að 12 ár.
Við mat á lánshæfi framkvæmda
vegna lánveitinga á lægri vöxtunum, .
er tekið tillit til fyrri lánveitinga til eldri
bygginga sem fyrir eru á jörðihni.
Byggingar 10 ára og yngri eru að
jafnaði metnar að fullu inn í
stærðarmörk, en eldri byggingar eru
fyrndar um 6,66% á ári fyrir hvert
aldursárumframlO. ,
3.1. Fjós.
Lánað til: Byggingar fjósa,
mjólkurhúsa, mjaltaaðstöðu og
haughúsa. Éinnig kaupa á
fóðruharkerfum, mjaltakerfum og
mjólkurtönkum.
Stærðarmörk (3,43% vextir);
40 básar með tilheýrandi aðstöðu,
þ.m.t. uppeldisaðstöðu fyrir-geldneyti.
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan 7,25%.
3.2. Fjárhús.
Lánað til: Byggingar fjárh.úsa og
áburðarkjallara. Hámarksdýpt
kjallara í mati til-láns er 150.cm.
Stærðarmörk (3,43% vextirj; 500
kindur með tilheyrandi aðstöðu.
Véxtir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan 7,25%. - ' .
3.3. Svíríahús.
Lánaðtil: Byggingar svínahúsa,
haughúsa, innréttinga og
fóðrunarkerfa.
Stærðarmörk (3,43% vextir):
50 gyltur með tilheyrandi
uppeldisaðstöðu.'
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan 7,25%.
3.4. Hænsnahús.
Lánað til: Byggingar hæpsnahúsa
með tilheyrandi búnaði.
Stærðarmörk (3,43% vextir):
4.500 varphænur eða 5.000
holdakjúklingar. .
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum og
síðan 7,25%.
3.5. Hesthús.
Lánað til: Byggingar hesthúsa og
áburðarkjallara.
Stærðarmörk (3;43% vextir): Fyrir
24 hross með tilheyrandi aðstöðu að
mati sjóðsins. •
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan 7,25%.
3.6. Reiðskemmur.
Lánað til: Byggingar reiðskemma
með tilheyrandi aðstöðu að mati
sjóðsins.
Hámarkslán kr. 5.000.000.
Vextir: 7,25%.
3.7..Hlöður.
Lánað til: Byggingar hlaða,
fóðurgeyma fyrir laust fóður og
tæknibúnaðar \ hlöður.
Lánshlutfall: Allt að 65% af
matsverði framkvæmda vegna
byggingar hlaða-og kaupa á
fóðurgeymum fyrir laúst fóður, en allt
að 50% végna kaupa á tæknibúhaði.
Vextir: 3,43% eða 7,25%.eftir
umfangi búnaðargjaldsskyldrar
framleiðslu.
3.8. Gróðurhús.
Lánað til: Byggingar gróðurhúsa,