Bændablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 24
24
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 11. desember 2001
Landssamband
kúabænda
NRF-málið
Eins og kúabændum er
vafalítið kunnugt hefur verið
hætt við frekari áform um
innflutning NRF-fósturvísa
vegna samanburðartilraunar.
Vegna þessa verður
starfsemi hætt í Nautastöð
LK í Hrísey. I blaðinu eru
auglýstar til sölu kýr sem má
flytja í land. Gert er ráö fyrir
að búið verði aó ganga frá
öllum lausum endum vegna
lokunar stöðvarinnar 1 .mars nk.
Sceðingamál
Nýverið var tekið saman
yfírlit um sæðingakostnað
kúabænda um allt land. Fram
kom að mikill munur er á
milli svæða hvað snertir
kostnað einstakra kúabænda
við sæðingar og er hvert
svæði með sérgjaldskrá.
Nánar má lesa um kostnað
við sæðingamar í blaðinu en
meira um sama mál er á vef
LK.
Agromek 2002
Eins og undanfarin ár
stendur Ferðaskrifstofa
Vesturlands fyrir ferð á
Agromek landbúnaðar-
sýninguna í Danmörku í
janúar nk. Þetta er fímmta
skipulagða hópferðin á þessa
sýningu og sem fyrr er
Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri LK,
fararstjóri. Þessi ferð hefur
notið fádæma vinsælda og
hafa á þriðja hundrað
þátttakendur farið á
sýninguna undanfarin ár á
vegum Ferðaskrifstofu
Vesturlands. Ferðin verður
með svipuðu sniði og
undanfarin ár, þar sem auk
sýningarinnar verða
heimsóttir bændur og auk
þess nokkur fyrirtæki.
Dagskrá sýningarinnar er á
vef LK: www.naut.is, en
einnig er hægt að fá
dagskrána senda beint frá
Ferðaskrifstofu Vesturlands
(s. 437 23 23).
Rannís-skýrslan
Nú ættu allir kúabændur af
hafa fengið Rannís-skýrsluna
svokölluðu í hendur. Ef
einhver hefur ekki fengið
hana er sá hinn sami beðinn
um að hafa samband við
skrifstofu LK.
Verð á greiðslumarki
Undanfamar vikur hafa
viðskipti með greiðslumark
verið með minna móti en oft
áður. Eitthvað er þó um
viðskipti og samkvæmt
nýjustu upplýsingum um
verðþróun, hefur verðið
heldur verið að lækka.
Siðasta staðfesta sala á
greiðslumarki (5. des.), sem
LK hefúr upplýsingar um, er
kr. 200,- og vom þau
viðskipti með 10.000 lítra.
Vænta má þess að þeir
bændur sem kaupa meira
magn í einu geri kröfu um
lægra verð en hér um getur.
Vertu með!
- þánka i félagsmálum bænda
Fyrir nokkm fór fulltrúi úr
Jafnréttisnefnd Bændasamtaka
íslands þess á leit við mig að ég
tæki að mér að skrifa í Bænda-
blaðið um mikilvægi þess að taka
þátt í félagsmálum bænda.
Ég færðist ekki undan, því að
það er grunntónn félagsstarfs að
vera með. Taka þátt sjálfur i stað
þess að ætla það öðmm, skorast
ekki undan þeim verkum sem
vinna þarf og taka erfiðari og
flóknari verkefnum sem jákvæðri
og ögrandi áskorun. Það gildi það
sama í félagsstarfi atvinnugreinar
eins og í öðrum störfum mikil-
vægast er að vera í vinnunni,
mæta, hörfa ekki þó kýrin sparki af
sér, æmar sleppi út um hliðið,
girðingin sé i henglum eftir vetur-
inn og túnið kalið. Hörfa ekki þó
fundurinn sé hundleiðinlegur,
ræðan gleymist um leið og komið
er í ræðupúltið og Jón og Gunna
séu algjörlega á móti þinn skoðun
og fínnist þú ótrúlega vitlaus, held-
ur læra, þróast og þroskast eins og
í hverju öðm starfí.
I mínum huga er fyrsta skrefíð
ákvörðun fremur en áhugi. Að taka
þá ákvörðun að baráttumál minnar
atvinnugreinar séu mikilvæg og að
ég sé tilbúin til að nýta hluta af
tíma mínum í þeirra þágu fremur
en til dæmis að leika með áhuga-
leikfélaginu, syngja í kómum, eða
vera í blakliðinu. Allt eru þetta
spennandi verkefni og áhugaverð
en það er ljóst að þau verkefni sem
snúa að mér sem bónda hafa meiri
og víðtækari áhríf á mig og mína
fjölskyldu sem neytendur og mat-
vælaframleiðendur en það hvort
liðið vinnur leikinn eða hvemig
leiksýningin tekst í ár. Félags^tarf
atvinnugreinarinnar á stóran þátt í
að skapa afkomumöguleika mína
og þína, framtíð okkar og sam-
starfsmanna okkar í bændastétt og
það sem meira er, framtíðarmögu-
leika íslenskra neytenda og þar
með bamanna minna og þinna.
Forgangsröðin og stráin.
Ég starfa i félagsmálum bænda
fyrst og fremst fyrir íslenska neyt-
endur, því næst fyrir kúabændur
Öll tökum við ákvarðanir um
okkar vettvang, innan sveitar-
stjómarinnar, saumaklúbbsins, fót-
boltahópsins, fyrir framan sjón-
varpið, í handverkinu eða björgun-
arsveitinni. Ég skrifa þessa grein
til að hvetja bændur til að setja
verkefni eigin atvinnugreinar í
fyrsta sæti. Að ákveða að taka þátt
í félagsmálum bænda og skorast
ekki undan. íslenska þjóðin þarf á
r
Eg skrifa þessa grein til að hvetja bændur til að
setja verkefni eigin atvinnugreinar í fyrsta sæti.
Að ákveða að taka þátt í félagsmálum bænda og
skorast ekki undan. íslenska þjóðin þarf á því að
halda að við, bændumir sjálfír, tökum á okkur
ábyrgð til að vekja athygli á mikilvægi íslenskra
bænda og því færri sem einingamar verða þeim
mun mikilvægari er hver einstaklingur, segir
Kristín Linda Jónsdóttir í grein sinni.
og síðan bændur almennt. Tökum
kúabændur sem dæmi. í dag er
framleidd mjólk á rétt um eitt-
þúsund sveitabæjum á íslandi. Ég
veit að íslenskir mjólkurfram-
leiðendur eru hörku duglegt, fram-
sækið og metnaðarfullt fólk sem
gæti sannarlega spjarað sig í
öðrum störfum en getur þjóðin
spjara sig án þeirra? Ef svo yrði þá
mundu hryðjuverk sem hefðu áhrif
á flug yfír Atlandshafi þýða
mjólkurskort á íslandi. Er ef til vill
er svo langt síðan matarskortur var
raunveruleiki að enginn getur
lengur ímyndað sér hvað það
þýðir?
Stalosan F 25 kg
Staiosan t
Efni sem sótthreinsar (td. múkk í hestum og júgurbólgu
í kúm) og bætir loft í útihúsum, Einkum ætlað til
notkunar í fjósum og hesthúsum.
n
VersUinirvJEyri
Kaupfélag Skagfirðinga - Verslunin Eyri
Sauðárkróki - S:4554627 F:4554611
því að halda að við, bændumir
sjálfír, tökum á okkur ábyrgð til að
vekja athygli á mikilvægi íslenskra
bænda og því færri sem einingam-
ar verða þeirn mun mikilvægari er
hver einstaklingur.
Viðhorf almennings og ráðam-
anna til stéttarinnar mótast af
hennar eigin sjálfsmati og sýni-
leika. Hvert einasta strá er mik-
ilvægt til að þétta grasrótina. Þann-
ig verður uppskeran ríkuleg und-
irstaða fyrir þá sem vinna verkefn-
in áfram aílt til ábyrgðamiestu
starfanna í félagskerfinu okkar.
Timinn og kynin.
Að taka þátt tekur svo sannar-
lega tíma, en það er einhver besta
faglega örvun sem hægt er að fá að
vinna með áhugasömu og kapps-
fullu fólki að verkefnum sinnar
eign atvinnugreinar. Að fínna að
við emm öll á sama báti þó
skoðanir og áherslur séu mismun-
andi. I félagsstarfi kúabænda hefúr
það verið mér ometanlegur
ánægjugjafi, fróðleikur, hvatning
og uppörvun að fá tækifæri til að
hitta samstarfsmenn mina, sem
vinna eins og ég að því að fram-
leiða mjólk og nautakjöt fyrir
íslenska neytendur, hvort sem er á
heimavelli eða á landsvísu. Það er
líka ögrandi verkefni að leitast við
að setja sig í spor bænda sem fást
við önnur verkefni eins og
skógrækt, loðdýrarækt eða hross-
arækt og átta sig á hvar sameigin-
leg baráttumál liggja. Þegar heim
kemur nýtist umfjöllun um at-
vinnugreinina til beinna ffamfara á
eigin búi og sem hvati til að gera
betur og stefna hærra.
Eins og ég sagði þurfúm við á
hverju einasta strái að halda bæði
ungum og gömlum, konum og
körlum. Því betur er það svo að á
hverju ári berast fregnir af því að
kvenkynið sé að taka að sér ný
ábyrgðarstörf í félagsstarfi bænda
og að konum sé að fjölga í
grasrótinni sem allt starfíð byggir
á. Þrátt fyrir það eru konur of oft
aðeins ein af hveijum tíu, eða
svona þar um bil, þegar verkefni
landbúnaðarins eiga í hlut. Það er
spurt; er það ekki bara allt í lagi,
ekki förum við að draga konurnar
niður sem eru uppi í hlið að planta,
eða úr fjósinu, eldhúsinu eða
fjárhúsunum ef þær ekki vilja það
sjálfar? Starfa þessar sveitakonur
ekki líka flestar við eitthvað annað
en landbúnað? Ef ég þekki íslensk-
ar konur rétt láta þær ekki draga
sig eitt eða neitt en ég skora á ykk-
ur kynsystur mínar að vera með,
mæta og ganga í verkin, taka
áskorunum og hörfa ekki.
Mikil óskapleg gæfa yrði það
fýrir íslenska neytendur og at-
vinnugreinina okkar landbúnað ef
við gætum virkjað það stórfljót
sem íslenskir kvenkyns bændur
eru. Hugsið ykkur að atvinnugrein
sem byggir á ffamleiðslu og sölu
matvæla, uppeldi ungviðis, dýra
og jurta, og þarfnast þess virkilega
að vera í fararbroddi varðandi
tísku á matvælamarkaði, ásýnd og
markaðssetningu skuli nær
eingöngu byggja sitt félagslega-
starf á öðru kyninu, körlum. Að
hitt kynið, kvenkynið, sem einmitt
vegna eiginleika sinna, sögu og
stöðu, líffræðilega og í þjóðfélag-
inu, fyrr og nú hefur svo mikla
reynslu og næma sýn á ræktun.
uppeldi, matvæli, tíðaranda, tísku,
útlit, ásýnd, ímynd, tilfinn-
ingaþroska, tengsl og samskipti sé
i raun aðeins sýnishom í
félagsmálaflóru bænda!
Þetta kyn er auðlind sem við
þurfum á að halda. Ekki, ég endur-
tek EKKI vegna þess að íslenskum
kvenkyns bændum líði illa heima
og þurfí "að fá að vera með" held-
ur vegna þess að atvinnugreinin
yrði ríkari ef sýn, áherslur og
reynsluheimur beggja kynjanna
fengi þar sem jafnast vígi í virkinu
öllu frá jörðu og upp úr. Ætlar þú
að vera með?
Kristin Linda Jónsdóttir
Miðhvammi
Höfundur er i stjóm Lands-
sambands kúabænda, fúlltrúi á
Búnaðarþingi og formaður Félags
þingeyskra kúabænda.
Jólagjöf hestamannsins
Íslandsfengur4.0 kemur út í desember 2001 með nýju gagnasafni.
Gagnasafnið hefur stækkað umtalsvert og inniheldur það
upplýsingar um tæplega 137 þúsund hross. Allir kynbótadómar
sýningarársins 2001 hafa bæst við, sem og nýtt kynbótamat,
sem reiknað var út í september 2001. Ljósmyndir af þekktustu
kynbótahrossunum prýða gagnasafnið. Þá má benda á að í fyrsta
skipti eru nokkur hundruð íslensk hross, fædd erlendis, í
gagnasafninu. Fjöldi þeirra á eftir að aukast verulega á næstu árum
þegar íslandshestafélög erlendis hefja skráningu i WorldFeng af
fullum krafti, en gagnasafn Islandsfengs samanstendur af
gagnasafni WorldFengs.
Verð á Islandsfeng 4,0 er kr. 9.900. Uppfærsluverð er kr. 5.900.
Tryggðarviðskiptavinir fá nýju útgáfuna á kr. 4.990, en það eru þeir
sem keypt hafa islandsfeng eða áskrift að Veraldarfeng á
undanförnum árum. Eigendur Islandsfengs fá 25% afslátt af áskrift
að WorldFeng og 50% afslátt af Veraldarfeng/Hestur.is.
Islandsfengur er nauðsynlegt hjálpartæki í ræktunarstarfinu og
tilvalin jólagjöf.
Hægt er að panta eintak á heimasíðu Bændasamtakanna
www.bondi.is. Einnig má senda tölvupóst á netfangið
helpdesk@bondi.is eða hafa samband í síma 5630300.