Bændablaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 11. desember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
9
málanna hjá ferðaþjónustu-
bændum um þessar mundir og
það sem mest væri til umræðu á
ráðstefnunni.
„Menn leita allra hugsanlegra
leiða til að bæta úr þessu.
Varðandi það að fá Islendinga til
að ferðast um landið á öðrum tíma
en á sumrin er verið að búa til alls
konar ferðapakka. Við erum að
reyna að búa til einhverjar kveikjur
sem gera það eftirsóknarvert fyrir
fólk að ferðast út á land á öðrum
timum en á sumrin. Við höfum
svo sem ekki fúndið hina einu
sönnu lausn á þessu máli en við
erum að ræða þetta okkar í milli,
bæði hér á ráðstefnunni og annars
staðar," segir Sigrún.
Hún segir að á Dæli hafi
ferðaþjónusta byrjað árið 1988 og
alveg ífá þeim tíma hafi verið jafn
og góður stígandi í henni.
„Við höfum verið að byggja
þetta upp jafnt og þétt og þess eru
dærni að það hafi orðið allt upp i
50% veltuaukning milli ára hjá
okkur. Þá er ég að tala um tímann
ffá því í byrjun júní og fram í
miðjan október. Það er alltaf mjög
gott mánuðina júlí og ágúst en
báðir endamir mættu vera betri. í
byrjun október er stóðréttarhelgi
hjá okkur og þá er allt fúllt í
nokkra daga en síðan er þetta bara
búið þar til að vori."
Sigrún segir það alveg ljóst að
griðarlega mikið markaðsstarf sé
fyrir höndum við að kynna landið
til að auka ferðamannastrauminn
frá hausti og fram á vor, bæði hér
heima og erlendis.
„Ég er hins vegar ekki í
nokkrum vafa um að það er hægt
að gera þetta en það kostar vinnu
og það mikla vinnu," sagði Sigrún
Valdimarsdóttir.
Njótum góðs af
nálœgðinni við Akureyri
Jónas Jónasson, ferða-
þjónustubóndi í Sveinbjarnar-
gerði í Eyjafirði, var meðal þátt-
takanda á ráðstefnu Ferða-
þjónustu bænda og Hólaskóla.
Hann sagði að markaðssókn
væri stærsta málið sem ferða-
þjónustubændur glímdu nú við.
„Ég tel mest áríðandi að kynna
Ferðaþjónustu bænda fyrir ís-
lenskum ferðamönnum og þá 'á ég
við tímann utan háannatíma
sumarsins. Urn þetta hygg ég að
flestir, ef ekki allir ferðaþjónustu-
bændur, séu sammála. Það kvartar
enginn vegna sumartímans en það
eru haustið, veturinn og vorið sem
við þurfúm að markaðssetja betur,"
segir Jónas.
Hann var spurður hvort menn
telji það raunhæft að hægt sé að fá
Islendinga til að ferðast um landið
á öðrum tíma en yfir sumarið.
„Ég held að það sé hægt og
marka það af því að hjá okkur í
Sveinbjamargerði hefur gestum
fjölgað yfír veturinn. Það er
staðreynd að fólk fer orðið meira
en áður út á land utan hins
hefðbundna ferðamannatíma yfir
sumarið. Ferðamannatíminn hefur
verið að lengjast hægt og bítandi,
bara ekki nógu hratt að okkur
finnst.. Island er fallegt land yfír
veturinn jafnt sem sumarið og það
hlýtur að vera hægt að markaðs-
setja landið fyrir erlenda ferða-
menn allt árið um kring," segir
Jónas.
En varðandi tjölgun íslenskra
gesta í Sveinbjamargerði bendir
hann á að það sé skammt ffá
Akureyri og njóti góðs af því sem
gististaður. Fólk sem kemur til að
fara á skíði eða bara í helgarferð
með fjölskylduna til Akureyrar,
gisti gjaman í Sveinbjamargerði
enda ekki nema tíu mínútna akstur
þaðan til Akureyrar.
„Ég, eins og aðrir hér á
ráðstefnunni, hef fulla trú á að
okkur takist að auka ferðamanna-
strauminn út á land á haustin,
vetuma og vorin," sagði Jónas
Jónasson, bjartsýnn eins og aðrir
ráðstefnugestir.
á formannafundi
Formannafundur Bændasamtakanna var haldinn föstudaginn 30. nóvember sl. í húsnæði BÍ.
Til umræðu var nýtt bókhaldskerfi, búrekstraráætlun, verkefnaskráning, námskeiða-
hald/tölvukennsla og sameiginleg verkefni. Síðar um daginn var svo haldinn fundur í búnaðarráði.
Fundarefnið var samkeppnislöggjöf og landbúnaður. Þar flutti Guðmundur Sigurðsson, viðskipta-
fræðingur Samkeppnisstofnunar framsöguerindi en fulltrúar búgreina reifuðu vandamál/árekstra
við samkeppnislöggjöfína. Á myndinni má sjá formann Búnaðarsambands Suðurlartds, Þorfinn
Þórarinsson á Spóastöðum í Biskupstungum, ræða málin en það er Karl S. Björnsson formaður
Búnaðarsambands N.-Þing. sem hlustar af athygli.
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra
jóla og farsœldar á komandi ári!
FOÐURBLANDAN HF.
íséZFLOKKt
Pharmaco
SlmiS3S?00f)
k